14.12.1934
Neðri deild: 59. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1437 í B-deild Alþingistíðinda. (1200)

7. mál, gengisviðauki

Ólafur Thors [óyfirl.]:

Hæstv. fjmrh. kom á fund í fjhn. í gær til þess þar að gera gleggri grein fyrir þessu frv. sínu.

Það er rétt, sem hv. formaður fjhn., 2. þm. Skagf., sagði, að við sjálfstæðismennirnir í n. létum ekkert sérstakt uppi um það, hvort við mundum vera með þessari till. eða móti. Þó hygg ég raunar, að nokkuð hafi mátt skilja á undirtektum okkar, að það væri ekki líklegt, að við mundum fylgja till. Sú er líka raunin á, að við sjáum okkur ekki fært að fylgja henni.

Hæstv. fjmrh. gerði n. nokkra grein fyrir því, hverjar horfur hann teldi um afgreiðsu fjárl., og enda þótt ég sé honum ekki að öllu leyti sammála um, hverra tekna er von af hverjum tekjulið, þá hygg ég að áætlanir hans séu nokkuð nærri lagi. Ég hefi þó breytt fjárhagáætluninni ofurlítið, þ. e. ég hugsa mér, eftir núverandi ástandi og horfum, fjárhagsafkomuna ofurlítið öðruvísi. Með því að taka þessar aths. mínar til greina, en leggja að öðru leyti til grundvallar skýrslu hæstv. fjmrh., virðast mér horfurnar vera þessar:

Fjárl. munu nú vera með 1790 þús. kr. tekjuhalla. Þegar svo við bætist tekjumissir ríkissjóðs vegna niðurfellingar útflutningsgjald, af síld og landbúnaðarafurðum, sem ætla má að nemi alls um 150 þús. kr. á ári, þá verður tekjuhallinn að þessu meðtöldu 1940 þús. kr. Til jafnvægis á móti þessum tekjuhalla koma svo hinar væntanlegu tekjur af þeim tekjuöflunarfrv., sem samþ. hafa verið eða verða nú á þessu þingi og enn hafa ekki verið áætlaðar tekjur af í fjárl. Það er fyrst hækkun tekju- og eignarskattsins, sem hæstv. fjmrh. telur, að muni gefa 850 þús. kr. tekjuauka í ríkissjóðinn á ári. Þetta hygg ég of lágt áætlað, og að varlega muni vera áætlað, þótt þessi tekjuauki sé talinn 900 þús. kr. á ári.

Þá hefir verið lækkaður tollur á tóbaki, öll, sódavatni og brjóstsykri, og þær tollhækkanir áætlaði hæstv. ráðh., að muni veita ríkissjóði um 400 þús. kr. tekjuauka. Ég hefi tilhneigingu til að ætla, að sá tekjuauki verði meiri, eða allt að 450 þús. Við þetta bætist tekjuauki af eldspýtnaeinkasölunni og af áfengissölunni, sem hæstv. ráðh. áætlar samtals 100 þús. kr., og hygg ég, að sú áætlun standist. Þá er að telja þessu til vilbótar tekjur af hinu nýja stimpilgjaldi, sem ekki verður með vissu sagt um, hvaða tekjuauka muni gefa ríkissjóði. Ég hefi þó heyrt haft eftir hæstv. fjmrh., að hann áætli, að þessi tekjuauki muni að líkindum nema 100 þús. til 150 þús. kr. á ári. Ég hygg, að þetta sé þó engin vissa, en líklegt þykir mér, að þessi tekjuauki muni nema 150 þús. kr. Ég veit, að hæstv. ráðh. hefir fært þessa tekjuaukaáætlun niður, enda hefir hv. Ed. gert á þessu frv. breyt. Ég hygg, að ekki sé þó óvarlega farið með því að áætla tekjuauka af áðurnefndum tollabreyt. viðvíkjandi tóbaki, öli, sódavatni og brjóstsykri og öðru, sem felst í þeim frv., að viðbættum tekjuaukanum af hinn nýja stimpilgjaldi, 550 til 600 þús. kr.

Hin nýju tekjuöflunarfrv. virðast því færa ríkissjóði 1600 þús. kr. tekjuauka, miðað við 600 þús. kr. tekjuauka af síðasttöldu liðunum tveimur og að hinn aukni tekju- og eignarskattur veiti 900 þús. kr. tekjuauka. Að þessu öllu teknu til greina er tekjuhallaáætlunin komin niður í 340 þús. kr. Þennan tekjuhalla vill hæstv. ráðh. vinna upp með þessu frv., sem hér liggur fyrir, sem hann áætlar, að muni gefa af sér um 347 þús. kr., þannig að gengisviðauki, 25% af hálfum aukatekjum, muni gefa 66 þús. kr. tekjur á ári, samskonar álagning á stimpilgjald muni gefa um 100 þús. kr. á ári og samskonar álagning einnig, 25% gengisviðauki, á nokkurn hluta verðtolls muni gefa af sér 181 þús. kr. á ári. Það er lagt til grundvallar þessari áætlun, að verðtollurinn gaf ríkissjóði árið 1932 950 þús. kr. í tekjur. En undan þeim tolli falla vissir vöruflokkar samkv. milliríkjasamningum við Breta, en af þeim vörum mun tollurinn hafa það ár numið 220 til 230 þús. kr. Eftir af áðurtöldum 950 þús. kr. verða þá aðeins um 724 þús. kr., sem 25% gengisviðauki af nemur 181 þús. kr.

Við sjálfstæðismenn höfum frá öndverðu lýst því yfir, að við værum reiðubúnir til að aðstoða hæstv. stj. til að afgr. tekjuhallalaus fjárlög gegn vissum skilyrðum, sem sé þeim, að sjálfstæðismenn fengju að vera með í ráðum um það, hvernig tekna til þess yrði aflað. Hæstv. stj. hefir ekki viljað á þetta hlusta og ekki taka neitt til greina af till. sjálfstæðismanna um niðurfærslur á útgjöldum ríkissjóðs og ekki viljað veita sjálfstæðismönnum neina eðlilega þátttöku í ákvörðunum um úthlutun þess fjár, sem fjárl. úthluta. Allt þetta leysir Sjálfstfl. frá öllum vanda í þessum málum. Stjórnarandstöðuflokkur getur ekki betur gert en boðið samvinnu um slíkt. Sé því boði ekki tekið á neinn hátt, þá er af stjórnarandstöðuflokki ekki meira hægt að krefjast í þeim efnum.

Það má sjálfsagt um það deila, hvort það sé rétt eða heppilegt að gera þá breyt. á löggjöfinni að afnema gengisviðaukann af kaffi og sykri og koma með þessa nýju tolla í staðinn. Ef um það er að ræða að leggja nýja viðbótartolla annaðhvort á kaffi og sykur eða þær vörur, sem hæstv. ráðh. bendir á hér í frv., þá mun mörgum finnast það orka tvímælis, hvort ekki beri eins að taka þær vörutegundir, sem hæstv. ráðh. bendir á í frv. En þess ber að gæta, að hér hefir að undanförnu gilt kaffi- og sykurtollur, sem hefir fest sig í verðlagi á þessum vörum í landinu, og ég er ekki viss um, að afnám gengisviðaukans á kaffi og sykri komi eins og til er ætlazt til nota almenningi í landinu. Um hitt þarf ekki að efast, að þessi nýju álagningar ákvæði leggjast með fullum þunga á almenning í landinu.

Ég sagði áðan, að við sjálfstæðismenn yrðum vitanlega siðferðislega skoðað lausir allrar ábyrgðar á fjárl. vegna þeirrar meðferðar, sem höfð hefir verið á okkar till., sem fram hafa komið. Samt færumst við ekki undan þessari ábyrgð sjálfir. Það að við teljum, að ekki sé eðlilegt að samþ. frv. það, sem hér liggur fyrir, stafar af því, að við teljum ákaflega vafasamt, að skipta beri svo um sem gert er ráð fyrir í frv., eins og ég tók fram, og líka af því, að þrátt fyrir það, þó að samkv. framteknum útreikningum, að ótöldum tekjum af þessu frv., sé tekjuhalli fjárl. 340 þús. kr., þá er í reyndinni ekki hægt að telja hann þannig, vegna þess að nú er, eins og allir vita, verið að breyta áfengislöggjöfinni, og ég hygg, að við séum allir þeirrar skoðunar, að af þeirri lagabreyt. leiði auknar tekjur fyrir ríkissjóð vegna vínverzlunar. Rekstrarhagnaður af vínverzluninni er nú áætlaður 750 þús. kr. og vínfangatollurinn 570 þús. kr., þannig að tekjur ríkissjóðs af þessum atvinnurekstri eru áætlaðar 1320 þús. kr. Ég hygg, að ekki sé óvarlega farið, þótt þessar tekjur séu áætlaðar hálfri millj. kr. hærri. Það er á allra manna vitorði, að hér á landi er drukkið ákaflega mikið af ólöglega fengnu víni bæði smygluðu og heimabrugguðu. Og ég hygg, að menn megi gera sér vonir um, ef sæmilegs hófs er gætt í verðlagi á þessari vöru, að smygl hverfi og verzlun með landa hætti líka. Af því leiðir aftur það, að neyzla þessara sterku drykkja, sem hingað til hefir að svo mjög miklu leyti farið fram án þess að ríkissjóður hafi hagnazt við það, mun hér eftir verða að miklum tekjulið fyrir ríkissjóð. Ég þykist ekki vera um of bjartsýnn fyrir hönd ríkissjóðs með því að áætla, að þessar tekjur fari um 500 þús. kr. fram úr áætlun. Þetta er skoðun okkar hv. 3. þm. Reykv. En við höfum ekki haft tækifæri til þess að bera þetta undir álit okkar flokks, svo að ég get ekki um þetta talað fyrir flokksins hönd í heild. Skoðun okkar þessara tveggja er sú, að þetta frv. sé ekki nauðsynlegt að samþ. til þess að tryggja tekjuhallalaus fjárlög. Hinsvegar vil ég leita álits Sjálfstæðisfl. um það, hvort hann vill samþ. þetta frv., gegn því, að tekjurnar af áfengisverzluninni, samanlagðar tolltekjur og rekstrarhagnaður, sem fram yfir verður 1320 þús., skuli ekki falla í ríkissjóð til þess að verða notaðar sem eyðslueyrir, heldur leggist í sérstakan sjóð, sem varið verður til þess að koma fótum undir skuldaskilasjóð útgerðarmanna. Vilji hæstv. fjmrh. ganga inn á þetta, þá er ég reiðubúinn til að bera þá ósk fram í Sjálfstfl., að hann gangi inn á samþ. þessa frv. Með þessum hætti fengi hæstv. fjmrh. reikningslegan jöfnuð á fjárl. með okkar samþykki. Ef reyndin sýnir, að mín spá um tekjur ríkissjóðs af áfengisverzluninni er rétt, þá á hæstv. fjmrh. að geta lagt tekjurnar af samþ. þessa frv. til hliðar til þess að koma fótum undir skuldaskilasjóð útgerðarmanna.