17.12.1934
Efri deild: 63. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1444 í B-deild Alþingistíðinda. (1216)

7. mál, gengisviðauki

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Þetta frv. hefir tekið allmiklum breyt. í Nd., og vil ég taka það fram, að það hefir orðið ákvörðun stjórnarflokkanna, að breyt. á benzínl. sem fyrir liggja í þessari d., verði ekki afgr. af þeirra hálfu á þessu þingi, en í þess stað að samþ. þá viðauka við þetta frv., sem samþ. hafa verið í Nd., en það er 25% gengisviðauki á aukatekjum ríkissjóðs, sem taldar eru í l. nr. 27 27. júní 1921, I.—IV. kafla, um stimpilgjald samkv. l. nr. 75 27. júní 1921, og ennfremur af verðtolli, þó ekki þeim, er greinir í l. nr. 83 19. júní 1933 og auglýsingu nr. 106 29. júní 1933, og eigi heldur af skófatnaði, öðrum en lakk-, flos- og silkiskóm, og olíufatnaði.

Viðaukinn er á helmingi aukateknanna, og er sá líður áætlaður 66 þús. kr. Viðauki á stimpilgjaldi, og mun hann eftir áætlun fjárl. gefa um 100 þús. kr. Þá er gert ráð fyrir 25% viðauka á verðtolli á vörum þeim, er greinir í l. nr. 11 2. júní 1933, en þau eru viðvíkjandi verzlunar-samningunum við Bretland. Ef miðað er við innflutninginn 1933 og áætlun fjárlfrv., þá verður þessi viðauki 180 þús. kr., en allur gengisviðaukinn samkv. till. milli 340 og 350 þús. kr., en það er 100 þús. kr. meira en áætlaðar tekjur af benzínskattsbreyt., en það ber líka að gæta þess, að síðan það var lagt fram, hafa fjárl. hækkað nokkuð, svo að ekki er óeðlilegt, að það þurfi nokkurn tekjuauka til að vega upp á móti því.

Þá vil ég minna á það, að eins og nú horfir við, er tekjuhallinn á fjárl. 1800 þús. kr. Þar við bætist lækkun á útflutningsgjaldi, 140 þús. kr., svo að tekjuhallinn verður þá 1 millj. 940 þús. kr. Upp á móti þessu kemur svo tekju- og eignarskattur, 850 þús. kr., hækkun samkv. tollabreytingum 400 þús. kr., tekjur samkv. einkasölu á eldspýtum og breyt. á áfengisl. 100 þús. kr., svo viðaukastimpilgjald, sem samþ. var hér á dögunum, 150 þús. kr. Þetta er þá samtals 1 millj. 500 þús. kr. Mismunur er þá 440 þús. kr. Verði nú samþ. þessi 340 þús. kr. gengisviðauki, þá er mismunurinn 100 þús. kr., að viðbættri hækkun, sem verður á fjárlfrv. við 3. umr. Stj. hefir að vísu hugsað sér að beita sér fyrir einhverjum lækkunartill., frá því, sem nú er í frv., en samt má búast við einhverri hækkun, og er það meiningin að leggja út á árið 1935 með þessum tekjuaukum með sérstöku tilliti til þess, að stj. hefir þá í bakhöndinni heimild til einkasölu á bifreiðum og raf-magnsvörum. (MJ: Hvað verða miklar tekjur af því?). Um það höfum við ekki þorað að gera fasta áætlun, en ég hugsa, að óhætt sé að leggja út á árið með þessa heimild í bakhöndinni, þó að mismunur sé 100—200 þús. kr.

Svo hefi ég ekki fleira um þetta að segja, en vil aðeins taka það fram, að í Nd. var ekki mikill ágreiningur um þessa viðauka í sjálfu sér. Ágreiningurinn var um það, að sjálfstæðismönnum fannst ekki ástæða til að afla eins mikilla tekna og stj. fór hér fram á.