12.12.1934
Efri deild: 59. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2834 í B-deild Alþingistíðinda. (126)
Afgreiðsla þingmála
Pétur Magnússon:
Ég vil eindregið leyfa mér að mælast til þess við hæstv. forseta, að hann taki sem allra fyrst á dagskrá frv. mitt á þskj. 39, sem ég flutti í byrjun þings og var eitt af fyrstu málum, sem vísað var til landbn. Ég og hv. 10. landsk. höfum gefið út nál. um frv. fyrir viku síðan. Ég geri ekki ráð fyrir, að það þurfi að búast við nál. frá hv. meiri hl. landbn. um málið, og þýðir ekki að bíða eftir því. Ég vil heldur, að málið fái einhverja afgreiðslu í þd. en að það dagi uppi.