17.12.1934
Efri deild: 63. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1456 í B-deild Alþingistíðinda. (1262)
29. mál, markaðs- og verðjöfnunarsjóður
Jón Auðunn Jónsson:
Mér finnst fyrirsögn frv. ekki fullnægjandi. Ég hefði kunnað betur við, að fyrirsögnin hefði verið: Frv. til l. um markaðs- og verðjöfnunarsjóð fiskjar, — og vildi ég beina því til n. að breyta því fyrir 3. umr., því það verða fleiri verðjöfnunarsjóðir eftir l. um mjólkur- og kjötsöluna.