12.12.1934
Efri deild: 59. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2834 í B-deild Alþingistíðinda. (127)
Afgreiðsla þingmála
Jón Baldvinsson:
Ég vil beina því til hæstv. forseta, að hann taki nú einungis á dagskrá þau mál, sem lengst eru komin áleiðis og líklegt er, að fái afgreiðslu, en tefji ekki tímann með málum, sem eru hér til 1. umr. og engar líkur eru til, að geti gengið fram á þessu þingi. Ég er flm. að einu af þeim frv., sem ekki er komið lengra áleiðis og vísað var til landbn. Það hefir verið sent til athugunar og umsagnar í ýmsar áttir, og má segja, að n. hafi tafið fyrir því. En ég geri þó ekki kröfu til þess, að það verði tekið á dagskrá, úr því sem komið er.