21.11.1934
Efri deild: 44. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 971 í B-deild Alþingistíðinda. (1291)
26. mál, vinnumiðlun
Frsm. meiri hl. (Sigurjón Á. Ólafsson):
Ég hefi athugað nál. frá hv. minni hl. dálítið betur og sé, að hann leggur til, að frv. verði fellt. Hann telur það óþarft og færir fram sínar ástæður fyrir því.
Ég ætla ekki að deila um þetta atriði sérstaklega. Hv. minni hl. heldur því fram, að verið sé að taka vald af bæjarstj. með þessu frv. Það er að vísu rétt, að bæjarstj. hafa haft þetta vald, en þær hafa ekki beitt því með fullkomnu einræði fyrr en nú, að bæjarstj. Rvíkur hefir gert það af ástæðum, sem ég hefi þegar nefnt í minni fyrri ræðu.
Aftur á móti hefir verið á undanförnum árum haldið uppi starfsemi, sem stefnt hefir í svipaða átt, í Rvík og öðrum bæjum, í sambandi við atvinnubótavinnuna, enda þótt hún heiti ekki ráðningarskrifstofa.
Væri betra skipulag á þjóðarbúskap okkar en nú er, væri nauðsynlegt, að vinnumiðlun næði víðar um landið en til stærri bæjanna, en þeir hafa að vísu sérstaka þörf fyrir hana. Það er mjög ákjósanlegt, að verkafólk geti haft sem mest gagn af leiðbeiningum slíkra skrifstofa.
Hér er ekki tekið vald af bæjunum. Það er flutt til frá bæjarstj. til þeirra stétta innan bæjarfél., sem þessi mál heyra mest undir. Það mætti finna mörg dæmi þess, að gripið er fram í málefni bæjanna með löggjöf, sem hafa meiri þýðingu fyrir þá en þetta mál. Þetta út af fyrir sig er því engan veginn gild ástæða hjá hv. minni hl. móti frv. (PM: Hvaða hliðstæð dæmi eru í löggjöfinni?). Því skal svarað síðar.
Annað atriði, sem hv. frsm. minni hl. lagði mikið upp úr, var kostnaðurinn. Þegar hann talar um jafnlítinn bæ og Seyðisfjörð, þá vil ég benda honum á það, að í því tilfelli er það skilyrði sett, að bæjarstj. óski eftir skrifstofunni eða að hæstv. ráðh. ákveði það.
Ég geri ekki ráð fyrir, að ráðh. ákveði stofnun skrifstofu með fimm manna stj. í bæ, sem hefir e. t. v. ekki tilefni til skrifstofustofnunar vegna mannfæðar. Skrifstofukostnaður getur því ekki orðið mikill undir slíkum kringumstæðum. Miðað við Rvík skal ég játa það, að tilefni skrifstofuhalds á Siglufirði er ekki nema lítinn tíma ársins. Ráðh. fyrirskipar ekki slíka skrifstofu á stöðum, sem hann álítur, að hafi ekki þörf fyrir hana.
Annar liður þessa kostnaðar, sem hv. frsm. minni hl. talar um, er stjórnarkostnaður. Ég geri ekki ráð fyrir, að þessi stjórnarþóknun yrði svo há fjárupphæð, að það gæti orðið framgangi þessa máls að fótakefli. Þvert á móti. Stjórnin ræður framkvæmdarstjóra, er einir afgreiði dagleg störf, en starf stj. verður aðeins eftirlitsstarf með framkvæmdum skrifstofunnar. Hliðstæð dæmi má finna í ýmsum fyrirtækjum í landinu. Ég álít, að þóknun til stj. hljóti að verða mjög lítil. (MG: Hvernig er það í Rvík?). Í Rvík má t. d. benda á Eimskipafél. Þar hefir hver stj.nefndarmaður 500 kr. í laun. Ég get hugsað mér, að þessi þóknun yrði enn minni, því að í jafnstórum bæ og Rvík er, þarf slík skrifstofa vitanlega að starfa allt árið um kring og þarf því að hafa fasta starfsmenn árið yfir. Enda er því svo farið um skrifstofu þá, sem Rvíkurbær hefir komið á fót. Við hana vinna 2 fastir starfsmenn og sá 3. að einhverju leyti. Samkv. ákvörðun bæjarstj. eru þessum mönnum ætlaðar 400-500 kr. á mánuði. Með þessu móti hygg ég, að hægt sé að ráða að mestu leyti í mögulegan kostnað við þetta fyrirtæki. Enda ekki horft í þennan kostnað af hálfu meiri hl. bæjarstj. til flokksbræðra hv. þm. Rang., er við skrifstofuna vinna. Ég geri ekki ráð fyrir, að það þyrfti að vera kostnaðarauki fyrir bæina, þar sem ríkið á að greiða 1/3 af öllum kostnaðinum. Með þessu er verið að létta af Rvíkurbæ nokkru af kostnaði, sem hann hefir ætlað sér að bera einn. Ég skil ekki að hv. þm. Rang. sem gjaldþegn Rvíkur sé á móti því. - Mér er það vel ljóst, að ekki er hægt að ætlast til þess, að þessi störf séu innt af hendi hér í Rvík, án þess að 1-2 fastir starfsmenn leysi verkið af hendi, ef vel á að fara, enda er það svo nú. Aftur á móti hlýtur skrifstofukostnaður að verða miklu minni í smærri kauptúnum úti um land, þar sem minni þörf er á, að þær starfi allt árið. Það má gera ráð fyrir, að þar megi komast af með einn mann, sem ekki þarf að vinna allan ársins hring, aðeins meðan mest er atvinnuleysið og atvinnubótavinnu er úthlutað. Ég geri ekki ráð fyrir því, að stjórnarnefnd slíkrar stofnunar sé ætlað nokkuð í þóknun í minni bæjunum.
Þetta er álit mitt á þeim kostnaði, sem hv. minni hl. talar um.
Mér skilst hv. frsm. minni hl. álíta rangt að fara fram á það, að ríkissjóður taki þátt í þessum kostnaði. Ég hefi ekki orðið var við það hér í Rvík, að menn væru því neitt mótfallnir, að ríkissjóður legði eitthvað af mörkum undir svipuðum kringumstæðum og hér ræðir um. eins og ég hefi áður tekið fram. Bærinn hefir nóg að borga samt.
Þá kem ég að veigamesta atriðinu í andmælum hv. minni hl. sem sé því, að hér sé um ofbeldi að ræða. Ég veit ekki, hvað skal um það segja, þótt ríkið verði fjórði aðilinn í svo þýðingarmiklu máli eins og þessu, og skárra er það nú ofbeldið, sem framið er, þótt ríkið megi eiga 1 mann af 5 í stj. þeirrar stofnunar, sem úthlutar vinnu, sem ríkið leggur fram til þriðjung, og verkamenn og atvinnurekendur sinn manninn hver. Þótt nú hafi viljað svo til, að í stj. landsins situr maður, sem e. t. v. mundi skipa mann í stj. gegn vilja meiri hl. bæjarstj., þá er þetta út af fyrir sig óþörf hræðsla, að verið sé að heita hér einhverju pólitísku ofbeldi, nema ef hv. þm. telur það pólitískt ofbeldi að velja réttlátlega menn til vinnu. Þeir, sem eiga mest á hættu um, að þetta fari vel úr hendi, eru einmitt verkamennirnir sjálfir. Þeir eiga raunverulega miklu meira undir rekstrarfyrirkomulagi þessarar skrifstofu heldur en atvinnurekendurnir. Meðfram af þeirri ástæðu vildi ég fyrir mitt leyti tryggja fulltrúum verkalýðsins meiri hl. í stj. þessarar skrifstofu. Ef hér er um pólitískt ofbeldi að ræða, þá hefir verið um pólitískt ofbeldi að ræða af hálfu meiri hl. bæjarstj., þar sem hann útilokaði minni hl. bæjarstj., sem er fulltrúi verkamanna, frá þátttöku í vinnumiðluninni. Ég býst við, að sá minni hl., sem þá átti hlut að máli, hafi átt fullkomlega rétt á að hans kröfur yrðu teknar til greina, og ekki síður en sá minni hl., sem hér á hlut að máli í þessari hv. d. E. t. v. hefði þetta frv. aldrei komið fram, ef bæjarstj. Rvíkur hefði ekki gripið til einræðisvalds í þessu máli. Ég drap á, að þetta vald mundi flytjast til með breyttum aðferðum. Það er staðreynd. Ríkið hefir fullkominn rétt til þess að hafa afskipti af þessu máli með tilliti til þess framlags, sem ríkið leggur til atvinnubótavinnunnar, og hinsvegar er ríkið svo stór liður í öllu atvinnulífi landsmanna. Ég skoða atvinnubótaféð alls ekki sem styrk til bæjarins. Ég tel það þvert á móti aðeins óhjákvæmilega nauðsyn, sem ríkið verður að taka á sínar herðar, þegar atvinnuvegirnir geta ekki fullnægt þeirri skyldu, sem þeim ber að inna af hendi gagnvart verkalýðnum í landinu.
Ég ætla ekki að fara út í umræður um notkun meirihl.valdsins hér á þingi, það koma fram kveinstafir minni hl. í hverju máli út af því og því alltaf tækifæri til að svara. Það er ekkert undarlegt, þótt nýir menn með nýjar skoðanir, sem fá meiri hl., vilji breyta til bæði um ný málefni og ýmsar starfsaðferðir. Það er nýi tíminn gegn hinum gamla. Framsókn og framþróun gegn íhaldi, sem svo dásamlega speglast í andstöðu minni hl. hér á þingi. Minni hl. hér verður að læra að sætta sig við þetta hlutskipti. (PM: Er því ekki líka þannig farið með bæjarstj.?). Um þá vinnumiðlunarskrifstofu, sem bæjarstj. Rvíkur rekur nú, er það að segja, að vinnumiðlunin fer verr úr hendi heldur en meðan eldra skipulagið ríkti. Þetta hefir reynslan sýnt þó stutt sé. Þetta stafar e. t. v. af því, að til þessa starfs hafa verið valdir menn, sem ekki eru hæfir til að leysa þetta starf af hendi og hafa e. t. v. aðra hugsun í þessu efni, hvernig vinnuúthlutunin eigi að framkvæmast, en áður hefir ríkt, sem ekki er að undrast yfir, þar sem íhaldið er hér eitt um.
Ég veit það vel, að hv. þm., sem yfirleitt er sanngjarn maður, hefir ekki kynnt sér þetta mál nægilega vei. Það sýndi ræða hans. Hefði hann kynnzt til hlítar atvinnumöguleikum verkamanna og sjómanna hér, þá hefði hann ekki hagað orðum sínum eins og hann gerði.
Það er nauðsynlegt, að til sé eitthvert vald, sem getur skorið úr því, hvort rétt sé að ýta einstökum mönnum til hliðar, þegar um atvinnuveitingu er að ræða. Ég gæti tilfært fjölmörg dæmi mínu máli til sönnunar. Þess vegna er nauðsynlegt, að til sé vald milli verkamanna og vinnuveitenda, sumpart lagalegt vald og sumpart vald, sem grundvallast á lægni og lempni, til þess að kveða niður þá misbeitingu, sem er viðhöfð í úthlutun vinnu af hálfu atvinnurekenda gegn þeim mönnum, sem það eitt hafa til saka unnið, að hafa aðra skoðun á lands- eða bæjarmálum en þeir sjálfir. Reynslan sýnir, hverjir hafa rétt fyrir sér í þessu máli. Ég er sannfærður um það, að eftir því sem fjölmenni eykst hér á landi, verða Íslendingar knúðir til þess að grípa til sömu ráðstafana og nágrannar okkar hafa gert. Hjá þeim er vinnumiðlun búin að standa um margra ára skeið, og er talin ómissandi með tilliti til verkalýðsins yfirleitt. Enda hefir það komið fram í umræðum um þetta mál, að það er ekki deilt um það, hvort stofna skuli vinnumiðlunarskrifstofu, heldur er baráttan háð um það, hverjir eigi að hafa yfirráðin og úrskurðarvaldið milli atvinnurekenda og verkamanna, hverjir eigi vinnuna að fá.
Það má benda á þau ákvæði löggjafarinnar, sem að starfsemi sáttasemjara lúta. Þar hefir löggjafinn gert tilraun til að skapa óháðan oddamann milli þeirra, sem deila. Valinn af verkalýðnum og atvinnurekendum, og einn skipaðan af hálfu hæstaréttar. Hér er um hliðstæðu að ræða.
Læt ég svo máli mínu lokið að þessu sinni.