21.11.1934
Efri deild: 44. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 979 í B-deild Alþingistíðinda. (1298)
26. mál, vinnumiðlun
Magnús Jónsson [óyfirl.]:
Mér skildist hv. frsm. vera að tala um, að harðræði hefði verið beitt af meiri hl. bæjarstj. hér í Rvík um þessi mál o. fl. Mér skildist, að þeim hefði verið neitað um að fá einn mann í einhverja n., ég skildi ekki almennilega, hvað hann átti við, ég er þessu svo ókunnugur. (SÁÓ: Verkalýðsfél. var neitað um mann í vinnuúthlutunarn.). En mér skilst, að ráðningarskrifstofan standi beint undir bæjarráðinu, og það er skipað af báðum flokkum hlutfallslega, svo ekki er hægt að kvarta.
Það er ekki heldur gott að sjá, hvernig forstöðumaðurinn á að vera. Ef hann er ekki algerlega pólítískt litlaus, verður hann úr öðrumhvorum stærsta flokknum hér í bænum. Og það er ekki ástæða til að kvarta yfir, því svo framarlega, sem hann ekki sýnir hlutdrægni í starfi sínu, er út af fyrir sig ekki hægt að segja neitt, þó hann fylgi ákveðinni stjórnmálaskoðun.
Hv. þm. talaði um hlutdrægni í störfum ráðningarskrifstofu bæjarráðs, en hvað hann sagði almennt um harðdrægni meiri hl. í bæjarstj., og að þeir ekki samþ. minnstu till., sem kæmi frá andstæðingum, ég verð að segja, að mér finnst þetta ekkert undarlegt, þetta er það sama og stjórnarflokkarnir taka upp hér, og ég er ekki að kvarta yfir því, þó þeir séu heimaríkir og noti meirihlutavaldið út í ystu æsar. Það er ekki hægt að neita því, að meinlausar brtt. eru látnar falla, þó fjöldi þm. geti fallizt á þær, ef foringjunum finnst það ekki heppilegt. Það er ekki gott fyrir þessa menn að vera með vandlætingu út af öðrum, sú höndin verður að vera hrein, sem af vill þvo annara saur. Hv. þm. var að tala um, að verkamenn treystu ekki skrifstofunni. Hverjum er það að kenna? Hann sagði líka, að verkamenn væru hræddir við þessa stofnun. Hvernig stendur á því? Hver er ástæðan til, að þeir óttast þessa stofnun og halda, að henni verði ekki réttlátlega beitt? Ætli það geti ekki verið, að hans flokksbræður og aðrir skyldir flokkar hafi fyrirfram hjálpað til með blaðaskrifum og öðru að vekja þessa tortryggni? Ég þykist vita, að þegar ákveðið var að setja upp þessa stofnun, þá hafi strax verið ráðizt á hana og slegið föstu, að hún yrði hlutdræg o. þ. u. l. Og það er ekki nema eðlilegt, að einhverjir trúi þessu. Það þýðir því ekki að vera að vitna í þann ótta, sem er búinn til af þeim sjálfum.
Hv. frsm. sagði, að það væri þegar komin óánægja út af störfum skrifstofunnar. Ég hefði nú gaman af að vita, hvernig sú skrifstofa ætti að vera, sem allir yrðu ánægðir með eða enginn setti út á. Ég veit, að svo hefir það a. m. k. verið hér á Alþ. með störf fjvn., þegar verið er að úthluta styrkjum. Þeir, sem útundan eru, finnst þeir hafa verið beittir órétti, þó veitt hafi verið af bezta vilja og sannfæringu. Ég skal ekki segja, hvað mikið kveður að andúð gegn skrifstofunni, en ég býst við, að það sé meira orðrómur og hugboð, því hún er nýbyrjuð. - Frsm. virtist hneykslast mjög á því, og að mér skildist öllu meira, að valinn skyldi vera maður til forstöðu skrifstofunni úr Sjálfstæðisfl. og tekinn í starf hjá bænum, en honum verið launað í flokksþágu. Hann mun sennilega eiga við formann Varðarfél., en mér er ekki kunnugt um, að sú staða hafi verið launuð eða þau störf, sem hann hefir unnið fyrir flokkinn. Þetta er því algerlega gripið úr lausu lofti og er hrein þjóðsaga, þegar verið er að reyna að telja mönnum trú um, að þetta sé hálaunað starf, sem frsm. hefir gripið til, og er náttúrlega hreinn uppspuni. Þetta er náttúrlega ekki sambærilegt við starf sáttasemjara; það er ákaflega ólíkt starf, þó því svipi eitthvað saman. Sáttasemjari ríkisins er sá maður, sem kastað er út í stærstu deilumálin á milli flokka, og því er reynt að velja í það starf sem litlausastan mann, sem báðir flokkar treysta og kemur til að miðla málum, þegar átökin eru sem hörðust. Mér er ekki kunnugt um, að ráðningarskrifstofan geri annað en miðla milli bræðra, miðla vinnu milli flokksbræðra, þar er ekki verið að velja milli Sjálfstæðisflokks og Alþýðuflokksbræðra -, þeim er ekki kastað út í harða deilu, og það er fjarstæða, að velja eigi milli flokka, heldur á að meta, hver hefir mesta þörfina fyrir vinnu. Það er því oft valið milli manna, sem standa saman í stjórnmálum.
Ég hefi nú svarað því að mestu, sem hv. frsm. beindi að hv. frsm. minni hl., ég tók það upp, af því að ég veitti því eftirtekt, að hann var fjarstaddur, þegar hv. frsm. meiri hl. talaði.