21.11.1934
Efri deild: 44. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 980 í B-deild Alþingistíðinda. (1300)
26. mál, vinnumiðlun
Frsm. meiri hl. (Sigurjón Á. Ólafsson):
Ég er nú út úr umræðunum, en hefi fengið leyfi hæstv. forseta til að gera stutta aths., og mun ég nota þann tíma til að leiðrétta þann misskilning, sem mér virtist koma fram hjá hv. 1. þm. Reykv. um ráðningarskrifstofu bæjarins. Það er rétt, að líka var borið undir bæjarráðið, en hafnað af meiri hl. þar, að verklýðsfél. fengju að ráða einum manni til að hafa íhlutunarrétt um úthlutun atvinnubótavinnunnar. Það var venja áður, að svo var, en nú sá bæjarstjórnarmeirihlutinn sér þetta ekki fært. Þess skal ég geta, að borgarstjóri var ekki staddur í hænum, þegar þetta skeði, og hefi ég heyrt sagt, að honum hafi þótt þetta óviturleg ráðstöfun, er bæjarráð ákvað og bæjarstj. samþykkti. Ég býst við, að það eitt hafi átt sinn þátt í, að umkvörtunum hefir fjölgað, að Alþýðuflokkurinn átti engan fulltrúa við úthlutunina, og ótti verkamanna ekki ástæðulaus, að illa mundi til takast um úthlutunina ef þeir ættu engan fulltrúann.
Meðan verkamenn áttu fulltrúa við vinnuúthlutun, voru umkvartanir fáar, og enginn ótti þeirra á meðal um, að vegna skoðana þeirra yrðu þeir settir hjá.
Úthlutuninni hefir hrakað frá því, sem verið hefir, undir einræðistj. íhaldsins, og þykir ekki eins réttlátleg og áður. Um formann Varðarfél. er það að segja - (MG: Hann var einu sinni formaður, já.) Ég veit, að það er sá maður, sem unnið hefir að verulegu leyti á skrifstofu flokksins hér í Rvík. Ég skal ekki deila um, hver laun hans hafa verið fyrir það starf, en ólíklegt þykir mér, að hann hafi ekkert fengið frá flokknum fyrir starf sitt, og þess hefir verið getið til, að hann muni ekki búinn að sleppa hendinni af því skipulagi, sem hann hefir unnið að og verið með að skapa í flokksins þágu, og þykir mér það líklegt.
Hv. 1. þm. Reykv. sagði, að það væri ólíku saman að jafna, ráðningarskrifstofunni og starfi sáttasemjara ríkisins. Ég var ekki að líkja því saman. Það, sem ég sagði, var, að þetta frv. ætti að jafna deilu milli bæjarstj. hér og verkamanna. Og þetta frv. væri því sáttasemjari í þeirri deilu, þar sem gert væri ráð fyrir því, að allir aðilar fengju íhlutun í stj. þessarar stofnunar. Þess vegna segi ég, að þetta frv. sé hliðstætt við l. um sáttasemjara.
Vænti ég svo, að hv. d. felli þann eina dóm í þessu máli, með því að samþ. frv. það, sem fyrir liggur.