19.10.1934
Neðri deild: 14. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1462 í B-deild Alþingistíðinda. (1317)
4. mál, bráðabirgðabreyting nokkurra laga
Frsm. (Sigfús Jónsson):
Frv. þetta er shlj. lögum nr. 50 19. júní 1933, að öðru leyti en því, að fellt er úr l. að fresta framkvæmd jarðræktarlaganna að því er verkfærakaupasjóð snertir, og að 1/8 hluti menningarsjóðs skuli renna í ríkissjóð. Þykir ekki vert, að ríkissjóður taki í sinn hlut þennan litla hluta tekna menningarsjóðs, en að því er hitt atriðið snertir, þykir ekki mega fresta framkvæmdum verkfærakaupasjóðs lengur vegna þverrandi vinnuafls í sveitunum. Er nauðsynlegt að veita bændum aðstoð til verkfærakaupa til þess að vega upp á móti fækkun hinna vinnandi handa.
Með l. eins og þau verða samkv. frv. er frestað framkvæmd 5 gildandi l. Framkvæmd l. nr. 50 10. nóv. 1913, um að landssjóður leggi landsbankanum til 100 þús. kr. á ári í næstu 20 ár, er frestað til ársloka 1935. Er ég ekki svo kunnugur hag landsbankans, að ég viti, hvort bankinn er í þörf fyrir þetta framlag, en það er öllum vitanlegt, að ríkissjóður er í fullri þörf fyrir að losna við þessa kvöð. Framkvæmd 2. og 3. gr. l. nr. 45 10. nóv. 1913. um Bjargráðasjóð Íslands, er sömuleiðis frestað til ársloka 1935. Samkv. þessum l. her sveitar- og bæjarfélögum að greiða 23 aur. iðgjald í bjargráðasjóð fyrir hvern mann, sem þar er heimilisfastur, og ríkissjóði sömuleiðis. Er framkvæmd þessara ákvæða l. frestað. Þá er svo ákveðið, að tekjur af l. nr. 56 31. maí 1924, um skemmtanaskatt og þjóðleikhús, skuli renna í ríkissjóð til ársloka 1935, og ennfremur tekjur eftir l. nr. 58 8. sept. 1931, um einkasölu á tóbaki. Samkv. þeim l. rennur ágóðinn af tóbakseinkasölunni að hálfu til byggingar- og landnámssjóðs og að hálfu til byggingarsjóða verkamanna, en sjóðunum er bættur þessi tekjumissir upp að nokkru leyti með framlagi, sem þeim er ætlað í fjárl. ársins 1935, af tekjum tóbakseinkasölunnar. 100 þús. kr. til hvors. Loks fellir frv. svo niður til ársloka 1935 kennslueftirlit það, sem ræðir um í 6.—8. gr. l. nr. 35 19. maí 1930. Veit ég ekki, hve miklu þetta eftirlit nemur, en ég hygg þó, að kostnaðurinn við það muni svara um 15 þús. kr. Hvort heppilegt sé að fella eftirlitið niður eða ekki, skal ég ekkert segja um, en ég býst við, að hv. þm. V.-Ísf., sem skrifað hefir undir nál. með fyrirvara um þetta atriði, muni gera grein fyrir því.
Ég sé svo ekki ástæðu til að fjölyrða frekar um frv., en leyfi mér að leggja til f. h. fjhn., að frv. verði samþ. óbreytt.