31.10.1934
Sameinað þing: 10. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2835 í B-deild Alþingistíðinda. (133)

Þingskrifarapróf

Gunnar Thoroddsen:

Ég vil leyfa mér að bera fram fyrirspurn til hæstv. forseta um það, hvernig á því stendur, að þingskrifarapróf hefir nú verið lagt niður. Um mörg undanfarin ár hafa slík próf verið haldin, keppendum gefnar einkunnir og þeir ráðnir til starfsins, sem bezt próf leystu af hendi. Nú virðist ráðningin að sumu leyti hafa farið fram af handahófi, því að ráðnir hafa verið nokkrir menn, sem hvorki hafa verið skrifarar áður né leyst af hendi þingskrifarapróf. Ég álít þetta miður farið, og leyfi mér því að spyrja hæstv. forseta, hvers vegna prófið hafi niður fallið, og jafnframt beina þeirri áskorun til hæstv. forseta, að það verði tekið upp aftur fyrir næsta þing.