01.11.1934
Neðri deild: 25. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 985 í B-deild Alþingistíðinda. (1360)
6. mál, gjald af innlendum tollvörutegundum
Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):
Ég verð að segja fáein orð út af þeim andmælum, sem fram hafa komið hjá hv. minni hl.
Hv. 3. þm. Reykv. benti á það sem sína skoðun, að með því að afnema þessar undanþágur frá 1927 sé það svo, að með því sé verið að svíkja loforð, sem hafi verið gefið af Alþingi og skyldi gilda til ársloka 1935. Ennfremur benti hann á það, að vafasamt sé, hvort slíkt fengi staðizt fyrir dómstólunum. Um síðara atriðið vil ég segja, að það er ekkert vafamál, að það stenzt fyrir dómstólunum, því að Alþingi er heimilt að breyta l., sem það sjálft hefir samþ.
Um hitt, hvort hér sé óráðvandlega að farið gagnvart þeim, sem hafa notið þessarar undanþágu, vil ég segja, að mér finnst það ekki vera, vegna þess að þessar undanþágur, sem hér um ræðir og áttu að vera til hagsbóta fyrir eldri fyrirtæki, eru nú í raun og veru engin sérstök hlunnindi fyrir þau, því að nú hafa öll slík fyrirtæki fengið þessa undanþágu, svo að þetta verkar í heild sem almenn tolllækkun, en ekki sem hlunnindi fyrir viss fyrirtæki, eins og hún var upphaflega hugsuð. Það er því aðeins aðferðarmunur í þessu tilfelli, hvort undanþágan er afnumin eða tollurinn hækkaður. Að stj. vildi heldur fara þá leiðina að afnema undanþáguna frekar en hækka tollinn, var sökum þess, hversu erfið hún var í framkvæmd. Ég fæ því ekki séð, að hér sé neitt óráðvandlega að farið gagnvart þeim fyrirtækjum, sem hér eiga hlut að máli.
Hv. frsm. minni hl. vildi halda því fram, að oflangt væri gengið t. d. með tollálagningu á ölið. Ég fyrir mitt leyti lít svo á, að ekki sé ógerlegt að hækka hann nokkuð frá því, sem nú er. Hann myndi samkv. þessu verða 262/3 eyrir á lítra, eða samkv. því, sem öl er selt nú, um 20% af útsöluverði, og ég verð því að segja það, að við höfum ýmsan varning, sem nauðsynlegri er en ölið, hærra tollaðan en það. Að þessi tollhækkun verki ekki sem tekjuauki fyrir ríkissjóð, má að sjálfsögðu deila um. Því hefir verið haldið fram, að framleiðsla á öli hafi minnkað vegna síðustu tollhækkunar, en því fer fjarri, að það sé rétt. Nautn óþarfa vara hefir eðlilega minnkað af þeim einföldu ástæðum, að kreppt hefir að mönnum með peninga, og þeir því sparað það fyrst við sig, sem auðveldast var án að vera. Þá ber og þess að gæta hér, að fyrir 2 árum síðan var tveimur ölgerðarverksmiðjum steypt saman, notaðist þá betur að birgðunum og dró úr framleiðslunni. Ég get því ekki séð neina ástæðu til þess, að tollhækkunin muni verka á þennan hátt. Eins og ég hefi tekið fram, þá verður tollhækkun þessi um 51/3 eyri á ölflösku, ætti hækkunin á flösku því ekki að fara fram úr 6 aurum í allt. Hún gæti líka orðið minni, því að verksmiðjurnar hafa smásöluverð í hendi sér, og gætu látið það lækka, ef þeim sýndist svo.
Um hækkun á tolli af kaffibæti má að sjálfsögðu deila. Eftir till. meiri hl. fjhn. myndi hún nema 15-16%. Ástæðan fyrir því, að hún kemur fram, er sú, að eftir að kaffibætisgerðin fluttist inn í landið hefir tollálagningin verið of lág.