01.11.1934
Neðri deild: 25. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 986 í B-deild Alþingistíðinda. (1361)

6. mál, gjald af innlendum tollvörutegundum

Frsm. meiri hl. (Sigfús Jónsson):

Hæstv. fjmrh. hefir að mestu tekið af mér ómakið með að svara þeim andmælum, sem fram hafa komið gegn frv., og þá sérstaklega að því er snertir ölið. Ég skal þá í fám orðum snúa mér að nál. hv. minni hl. og málflutningi hv. 3. þm. Reykv.

Fyrsta mótbára hv. minni hl. gegn því að fella niður þessar tollaívilnanir er sú, að þegar ívilnan þessi hafi verið lögleidd, þá hafi falizt í því loforð um, að hún stæði til ársloka 1935. Þessa er því að svara, að ég tel þessi lög ekkert friðhelgari en ýms önnur lög, sem Alþingi er sífellt að breyta, eins og t. d. lög um aðflutningsgjald, verðtoll o. fl. Þó að fólk hafi ekki búizt við slíkum breyt., þá verður það að sætta sig við þær. Það veit, að slíkar breyt. eru ekki gerðar nema fyrir þær sakir einar, að ríkissjóði er nauðsyn á að fá þær, til þess að geta risið undir útgjöldum sínum. Að því er snertir þessi iðnfyrirtæki, þá er það skoðun mín, að þau séu ekkert síður fær um að bera þessar tollaálögur en allur almenningur. Þau hafa þegar komið svo undir sig fótunum, í skjóli tollaívilnana og innflutningshafta, að mörg þeirra munu vera orðin vel fjárhagslega stæð. Þannig er mér t. d. téð, að Ölgerðin Egill Skallagrímsson og Efnagerð Reykjavíkur standi nú mjög föstum fótum.

Önnur mótbára hv. 3. þm. Reykv. gegn frv. var sú, að innlend framleiðsla á þessum vörum myndi minnka, en innflutningur á þeim frá útlöndum aukast að sama skapi. Þessi mótbára virðist mér hafa við mjög lítil rök að styðjast, því að eins og kunnugt er, þá er aðflutningsgjald á t. d. kaffibæti og öli svo hátt, að enginn mun láta sér detta í hug að flytja þær vörur inn, nema hin innlenda framleiðsla sé annaðhvort óholl eða léleg. En nú mun t. d. fengin sú reynsla, að hinn innlendi kaffibætir sé fullt eins góður og sá erlendi, og er því engin hætta á, að farið verði að flytja hann frá útlöndum fyrir þessa litlu tollhækkun.

Um kaffibaunirnar er það að segja, að ég býst ekki við, að þær verði framleiddar hér á landi, af þeim ástæðum, sem öllum eru kunnar, en sé það meining hv. minni hl., að menn myndu fara að auka innflutning á þeim sökum hækkunar á kaffibætinum, þá held ég, að það sé misskilningur, því að undanfarið hefir kaffibætirinn verið dýrari en kaffibaunirnar, en verið keyptur samt.

Samkv. framansögðu verð ég að halda mér fast við brtt. meiri hl. fjhn. og vona, að hv. þdm. samþ. þær.