01.11.1934
Neðri deild: 25. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 987 í B-deild Alþingistíðinda. (1362)

6. mál, gjald af innlendum tollvörutegundum

Garðar Þorsteinsson:

Ég ætla ekki að blanda mér mikið í þær umr., sem hér hafa orðið, en ég get ekki látið hjá líða að vekja athygli á því, að mér virðist sú aðferð, sem hér er viðhöfð, óeðlileg, og beinlínis brot á loforðum, sem löggjafinn hefir gefið þeim aðilum, sem standa að iðnaðarfyrirtækjum, sem stofnsett eru fyrir 1935. Á þinginu 1933 var skatturinn af öli hækkaður um 131/3 eyri á lítra. Við það bætist svo, að borga verður veitingaskatt, sem nemur 10% af söluverði. Sé söluverðið 1/30 á lítra, nemur sú hækkun 13 aurum á lítra. Þessi hækkun hefir orðið þess valdandi, að ölið hefir hækkað stórkostlega í verði, sem eðlilega hefir orðið til þess, að neyzla þess hefir minnkað að miklum mun, og enn mun hún minnka, verði skatturinn hækkaður frá því, sem nú er.

Hæstv. fjmrh. vildi halda því fram, að það væri sama, hvort lögin frá 1931 væru numin úr gildi eða skatturinn hækkaður að sama skapi og ívilnunin nemur. Þetta er rétt. En 1933 var ekki gengið gegn því loforði, sem þessum fyrirtækjum var veitt, innan þeirra takmarkana, sem lögin setja. Það er alveg víst, að sú stj., sem sat 1933, hefði haft þessa aðferð, ef hún hefði talið hana sæmandi. En hún hefir eðlilega viljað standa við loforð þingsins gagnvart þessum fyrirtækjum.

Ég verð nú að telja það mjög varhugavert, þegar Alþingi 1931 segir, að iðnaðarfyrirtækin skuli ekki til ársloka 1935 greiða nema sem svarar 1/6 hluta aðflutningsgjaldsins, þá skuli Alþingi 1934 hafa það að engu. Slík aðferð myndi fordæmd í öllu viðskiptalífi meðal siðaðra manna. Ég skil því ekki, að Alþingi vilji vera þekkt fyrir að hafa forgöngu í slíkum efnum, og vilji hæstv. fjmrh. því halda sama heiðri og fyrirrennari hans, þá á hann að falla frá þessu frv., þar sem líka engar líkur eru til, að þetta geti leitt til tekjuauka fyrir ríkissjóðinn, því að neyzlan hlýtur að minnka að sama skapi sem verðið hækkar.