08.10.1934
Neðri deild: 4. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1003 í B-deild Alþingistíðinda. (1390)
12. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):
Út af aths. hv. þm. G.-K. þykir mér rétt að segja nokkur orð. Eitt er það, sem hann hefir mjög á móti frv., en það er, að hann telur, að með því sé gengið mjög á tekjustofna sveitar- og bæjarfélaga. Ég vil þá byrja með því að minna á það, að allir tollar og skattar til hins opinbera eru teknir af þeim eina tekjustofni, sem til er, og það eru tekjur manna. Hinsvegar er um ýmsar mismunandi aðferðir að ræða með að taka af þessum stofni. Ef tekið er með tollum, þá er það tekið af þeim hluta teknanna, sem fer til þess að borga vörur, ef tekið er í sköttum, þá er eins tekið af sama sjóðnum, en skatturinn ekki miðaður við vörukaup, heldur við það, sem einstaklingurinn ber úr býtum. Þess vegna er í raun og veru rangt að segja, að gengið sé á tekjustofna sveitar- og bæjarfélaga með þessu frv. Ef farið hefði verið fram á að innheimta eftir frv. meiri tekjur í heild handa ríkissjóði, þá væri þetta rétt, en nú er því ekki til að dreifa.
En það er annað, sem ég veit, að vakir fyrir hv. þm., þó að hann segði það ekki beint. Honum þykir skatturinn of mikið miðaður við tekjur manna og eignir. Hann var að minnast á útsvarsstigann í Rvík og sýna fram á, að háar upphæðir væru lagðar á tekjur og eignir með sköttum og útsvörum til ríkis og bæjar. Ég vil í því sambandi benda honum á, að ekki er rétt sú aðferð, er hann notar til þess að reikna út. hve mörg % tekjuskatturinn og útsvarið er af hreinum tekjum hjá hverjum einstaklingi.
Útsvar og tekjuskattur eru lögð þannig á, að fyrst er dregið frá hreinum tekjum útsvar og skattur frá árinu áður, og síðan eru útsvar og tekjuskattur reiknaður af því, sem þá verður eftir af tekjunum. Ef hv. þm. G.-K. hefir t. d. 30 þús. kr. hreinar tekjur, þá segir hann, að tekjuskatturinn af þeim sé 5 þús. kr., en þetta er ekki rétt, því að fyrst þarf að draga frá þessum 30 þús. kr. bæði tekju- og eignarskatt og útsvar eins og það var næsta ár á undan. Síðan er skatturinn lagður á það, sem þá verður eftir. Hv. þm. G.-K. gleymir að draga frá skattana og útsvarið. Með því fær hann það út, að skatturinn geti orðið 100% af tekjunum og jafnvel meira. Þetta gæti verið rétt, ef ekki væri dregið frá tekjunum skattar og útsvar frá árinu áður, eins og ég hefi nú sýnt fram á, að skal gera.
Ef þessi útreikningur hv. þm. G.-K. væri réttur hjá hv. þm., þá þýddi það, að Sjálfstæðisflokkurinn hefði á síðasta þingi samþ. tekju- og eignarskattsauka svo háan, að einstakir gjaldendur hefðu orðið að greiða meira en 100% af sínum tekjum. En þetta hafa þeir ekki gert. Þetta er mjög auðvelt að sanna. Ég hefi ekki tölur við hendina til að sanna þetta, en mun gera það við 2. umr. málsins, ef ástæða verður til.
Hv. þm. G.-K. talaði um gífurlega skattaviðbót, sem leiða mundi af þessu frv. Ég get nú ekki séð, að 450-500 þús. kr. sé neitt gífurleg skattaviðbót. Það má til samanburðar minnast þess, að bæjarstj. Rvíkur hefir á einu ári hækkað útsvör í bænum um eins háa upphæð og þessari hækkun nemur, en hún er þó fyrir allt landið.
Þá vil ég drepa á þær upplýsingar, sem hv. þm. G.-K. var að geta um skatthækkanir frv. á einstökum tekjum. Hann sagði, að með þessu frv. væri farið fram á að hækka tekju- og eignarskatt á lágum tekjum. Ég vil í þessu sambandi benda á það, sem hann raunar leiðrétti sjálfur, að samanburður hv. þm. getur ekki staðizt, þar sem hann miðar við skattskyldar tekjur. En nú er persónufrádrátturinn hærri í frv. stj. en í gildandi l. um þetta efni, og eiga tekjulágir skattgreiðendur því að greiða töluvert minna eftir frv. en l. Hv. þm. sagði, að þetta verkaði lítið, en þó er það svo, að ef reiknað er á réttan hátt, er útkoman sú, að skatturinn lækkar eftir frv., miðað við l. frá 1921 og 40% viðbótarskattinn, á þeim mönnum, sem lágt eru launaðir, og hækkun skattsins kemur fyrst fram, er tekjur eru orðnar í kringum kr. 7000 hjá mönnum með meðalfjölskyldu. Það er því síður en svo, að frv. fari fram á hækkun á skattgreiðslum þeirra manna, sem ætla má, að erfiðasta eigi aðstöðu.
Ég vil minnast á, að hv. þm. tók fram, réttilega, að prósentuhækkunin er lægri þegar kemur að vissu marki hárra tekna. Er þetta gert með tilliti til þess, að sveitar- og bæjarfélög, t. d. í Rvík, hækka nokkuð ört, svo að ekki þótti rétt að hafa prósentuhækkunina meiri en gert er í frv. Ég vil þó taka fram, að inn í þetta hefir slæðzt villa, á þann hátt, að stighækkunin er lægri en hún upphaflega átti að vera, og mun ég athuga um það við n., sem mál þetta fær væntanlega til meðferðar.
Þá vil ég fara fáum orðum um það, sem fram kom hjá hv. þm. um breyttan skatt hlutafélaga. Breyt. er byggð á því, að við skattaálagningu yfirleitt er ekki tekið tillit til þess, hve mikið fé hefir þurft að hafa undir höndum til öflunar teknanna. Ég vil benda á það, að hjá einstaklingum er enginn munur gerður í þessu efni í skattal., hvort einstaklingar hafa haft 100 þús., 200 eða 300 þús. kr. til öflunar teknanna. Því finnst mér hið sama eiga að gilda um félög, að ekki sé látið skipta máli frekar en um einstaklinga, hve mikið fé var nauðsynlegt til öflunar teknanna, sem skattskyldar eru. Mér finnst eðlilegt, að hlutafélög, sem reka starfsemi sína sjálfstætt, séu gagnvart skattalöggjöfinni sem einstaklingar út af fyrir sig. Og þá er ekki ástæða til, að gert sé upp á milli félaga í þessu tilliti frekar en einstaklinga. En ég vil benda hv. þm. G.-K. á það, að það gætir misskilnings hjá honum, þegar hann talar um háan skatt af stórum hlutafélögum, en lægri aftur af félögum með minna hlutafé. Hv. þm. gerir ekki mikið úr því, að hlutaféð, sem safnast saman, er ekki skattlagt, heldur talið til skuldar hjá félaginu. Og hjá hlutafélögum er viss prósenta dregin frá af innborguðu hlutafé. Ber því að skattleggja hreina eign félagsins, og með því að skattleggja þann hluta ágóðans, sem fer fram úr 4% af hlutafé samkv. frv., þá er fél. gert jafnt undir höfði og einstaklingum og aðstaðan til starfsemi stórra hlutafélaga fyllilega fyrir hendi.
Ég ætla svo ekki að fara fleiri orðum um frv. að sinni. Geri ég ráð fyrir, að frekari útreikningar og gagnrýni komi fram við 2. umr., og verður þá tækfæri til nánari umræðna.