09.11.1934
Neðri deild: 32. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1022 í B-deild Alþingistíðinda. (1407)

12. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Frsm. minni hl. (Ólafur Thors):

Ég heyrði ekki síðustu orð af ræðu hv. frsm. meiri hl., því að ég var boðaður á fund hæstv. atvmrh.

Hv. frsm. byrjaði ræðu sína á því að minnast á það, að tvær stefnur væru til í fjármálum. Önnur væri sú, að skerða ekki útgjöld fjárl., heldur skapa jöfnuð með nýjum sköttum. Hin stefnan væri sú, að skera niður útgjöld til þess að þurfa ekki að grípa til nýrrar skattaálagningar.

Hv. frsm. aðhyllist þá stefnuna að eyða og leggja síðan nýja skatta á landsbúa. Hann viðurkenndi að vísu, að á þessari stefnu væru ýmsir annmarkar, en samt komst hann að þeirri niðurstöðu, að réttast væri að eyða og eyða, og leggja síðan nýja og nýja skatta á þjóðina.

Þetta er greinilegur stefnumunur frá þeim niðurstöðum, sem Sjálfstfl. hefir komizt að í þessu efni. Sjálfstæðisfl. viðurkennir að vísu, að það er mjög miklum vandkvæðum bundið, á hvaða tíma sem er, að færa niður útgjöld fjárl., en það er nú einu sinni hlutskipti, sem hæstv. fjmrh. tekur að sér, þegar hann tekur við stjórn fjármálanna á svo slæmum tímum, sem nú ganga yfir þjóðfélögin.

Það er enginn vafi á því, að af tvennu illu er það skárra, með hliðsjón af þrautpíndum skattþegnum, að gera með karlmennsku og manndómi tilraun til þess að ráða bót á vandkvæðunum með niðurskurði. Þetta er bezt fyrir þjóðfélagið. En verði því haldið áfram, sem gert hefir verið undanfarin ár, að hækka og hækka skattana samtímis því, að atvinnureksturinn fer rýrnandi, þá verður þessi hækkun áður en langt um líður ekkert annað en pappírshækkun, því að skattþegnarnir geta blátt áfram ekki greitt þá skatta, sem löggjafinn leggur þeim á herðar. Mig undrar því, að gamall og gætinn fjármálamaður skuli láta þau orð frá sér fara, sem hv. frsm. meiri hl. n. lét falla í ræðu sinni. Skal ég þá gera grein fyrir afstöðu minni hl. n. til þessa máls og eins vil ég víkja nokkrum orðum að því, sem mér fannst gefa sérstakt tilefni til athugasemda í ræðu hv. frsm. meiri hl. - Minni hl. n. er andvígur þessu frv. fyrst og fremst fyrir þá sök, að stefna hans í þessu máli er sú, sem ég hefi getið um: að fara varlega með nýjar álögur á þrautpínda skattþegna, en gera tilraun til niðurskurðar á útgjöldum. Minni hl. vill vekja athygli á því í sambandi við þetta frv., að undanfarið hafa útsvörin, eða beinir skattar á tekjum og eignum borgaranna, verið svo að segja eini skattstofn sveitarfélaganna.

Eftir því, sem ríkissjóður hefir gerzt aðgangssamari um beitingu beinu skattanna, hefir það komið í ljós á Íslandi eins og alstaðar annarsstaðar, að beiting beinna skatta eru settar ákveðnar skorður, sem ekkert þýðir að reyna að komast úr. Þetta hefir sýnt sig hér á landi. með því að þar sem beinir skattar hafa lent harðast á, þ. e. á kaupstöðunum, hefir niðurjöfnunarn. neyðzt til þess að fara lengra og lengra út á þá braut, að taka þarfir sínar með tollum á nauðsynjavörur almennings. Þetta hefir átt sér stað í Rvík, Vestmannaeyjum og víðar. Beiðni um, að þetta megi eiga sér stað í framtíðinni hefir komið frá Akureyri og Siglufirði. Þessar beiðnir eiga að opna augun á löggjafanum fyrir því, að með því að nærri tvöfalda tekjuskattinn er löggjafinn í rauninni ekki að gera annað en að knýja sveitarsjóðina lengra og lengra inn á þær brautir, að afla tekna með tollaálagningu á nauðsynjavörur almennings. Það er ósæmilegt af þingmeirihluta að reyna á þennan hátt að koma sér undan því að viðurkenna, að hann hefir farið villur vegar í þessum efnum undanfarið, þegar hann hefir reynt að telja almenningi trú um, að hægt sé að beita beinum sköttum miklu meira en gert hefir verið undanfarið hér á landi.

Með þessu móti er meiri hl. aðeins að leggja þá kvöð, sem hvílt hefir á ríkissjóði um álagningu og innheimtu tolla, á herðar sveitarfélaganna, sem standa þó verr að vígi hvað þetta snertir. - Þetta er veigamikið atriði, sem hv. þdm. verða að gera sér grein fyrir. Deilan stendur í raun og veru um það, hvort það sé ríkið, sem notar sér þennan gjaldstofn eða hvort rétt sé að skylda bæjar- og sveitarsjóði til þess að afla tekna sinna með tollum.

Hv. frsm. meiri hl. vildi leitast við að hrekja þær tölur, sem minni hl. færir fram í nál. sínu. Hans rökstuðningur gegn réttmæti þessara talna byggðist á því, að okkar tölur séu rangar vegna þess að við gerum samanburð á lögunum frá 1921 og þessu frv., en miðuðum ekki við bráðabirgðalögin um 10% skattahækkun. Ég hygg, að bæði hv. frsm. og aðrir hv. þdm. skilji, að okkar samanburður var eðlilegur, en hans bæði óeðlilegur og óréttmætur.

Því hefir verið lýst yfir af Sjálfstfl. og öðrum, að þessi 40% hækkun væri neyðarúrræði til eins árs í senn, og það hafa komið fram raddir um það hér á hv. Alþingi, að menn vildu jafnvel heldur sætta sig við fjárl. með tekjuhalla heldur en slíka beitingu beinna skatta.

Þjóðin fær því rétta mynd af skattahækkuninni með því að gera samanburð á l. frá 1921 og þeirri hækkun, sem felst í þessu frv. Samanburðurinn sýnir það, að hækkunin er svo mikil, að jafnvel á 1000 kr. hreinum tekjum, sem hæstv. fjmrh. og hv. meiri hl. hefir viljað miða allt við, er hún komin upp í 47%. Á 4000 kr. tekjum er hækkunin komin upp í um 100%. Ef um fimm manna fjölskyldu, með 5000 kr. skattskyldar tekjur er að ræða, er hækkunin komin upp í 108%. Hækkunin er mest utan Rvíkur. Hún getur þar komizt upp í 100% á 7000 kr. hreinum tekjum. Þessi skattahækkun er svo geysileg, að minni hl. taldi ekki hægt að ganga inn á hana, nema því aðeins, að lögfest yrðu ákvæði, sem tryggðu sveitar- og bæjarsjóðum nokkurn hluta þessara tekna. Verði það ekki gert er það bein og ótvíræð yfirlýsing Alþ. um, að bæjar- og sveitarsjóðir eigi að afla tekna með tollum af nauðsynjum almennings.

Ég hefi nú talað um þá breyt. löggjafarinnar, sem mestu máli skiptir. Út af því, sem hv. frsm. meiri hl. sagði í sambandi við breyt. skattstiga hlutafélaganna, vil ég taka það fram, að það er rétt hjá honum, að hlutafélögin fá vissar ívilnanir með nýmælum þessa frv., en allar þær ívilnanir virðist mér ná jafnt til smærri sem stærri félaga og snerta því ekki deilumálið, og jafnvel þótt þær ívilnanir, sem hlutafélögin fá, væru hlutafélögunum eins mikils virði og réttindamissirinn, þá raskar það ekkert því, sem minni hl. hefir haldið fram, að þetta nýmæli bryti í bága við rökrétta hugsun. Það raskar ekki því, að þetta nýmæli löggjafarinnar kemur misjafnt niður á mönnum, eftir því, hvort fé þeirra er í stærri eða minni hlutafélögum. Þetta misrétti getur orðið til þess að draga kjark úr mönnum til þess að leggja fé í stærri hlutafélög, en það er viðurkennt, að hlutafélögin eru eina leiðin, sem fátæk þjóð eins og Íslendingar á til þess að leysa ýms verkefni, sem verða að teljast nauðsynleg, sérstaklega fyrir það, að þau geta verið betri leið til fjáröflunar fyrir þjóðfélagið heldur en aðrir úrkostir, sem völ er á.

Ég gæti náttúrlega haft lengri þær skýringar, sem sanna, að þessar breyt. á skattstiga hlutafélaga eru ekki í samræmi við rökrétta hugsun, en sú hlið löggjafarinnar snertir að minni hyggju ekki mjög hagsmuni almennings og ætla ég því ekki að ganga lengra inn á hana, heldur aðeins slá því föstu, að með þessari breyt. er brotið í bág við rökrétta hugsun, og verður það að vera á ábyrgð þeirra aðilja, sem bera þetta fram og mæla með því hér í d.

Hv. frsm. meiri hl. hefir gert grein fyrir ýmsum þeim breyt., sem eru fluttar af meiri hl. n., sumpart í samráði við og sumpart samkvæmt ábendingum frá minni hl. Ég sé ekki ástæðu til að endurtaka þau rök, sem liggja til grundvallar fyrir þeim breyt. Þó vil ég ekki láta hjá líða að minnast sérstaklega á eina brtt., en það er 6. brtt. við 11. gr., þar sem gefin er heimild til þess, að tap, sem verður á atvinnurekstri félags eða einstaklings og nemur meiru en varasjóði, megi flytjast á milli ára og dragast frá skattskyldum tekjum, þar til það er að fullu greitt. Ég tel þessa brtt., sem n. stendur öll að, sérstaklega merkilega till. Er þar rifjað upp gamalt deilumál, sem mikið var rifizt um á Alþ. 1925 og borið fram á grundvelli 3 ára meðaltalsins svokallaða. Hygg ég, að þessi till. nái að sumu leyti betur þeirri hugmynd, sem vakti fyrir till.mönnum þá, því að á þeirri till., sem þá var fram borin, var einn veigamikill galli. Höfuðtilgangur þessarar till. er að jafna misæri í ísl. atvinnuárferði, en einmitt þetta misæri hefir skapað gjaldþegnum mjög örðuga aðstöðu til skattgjalds. Það liggur líka í augum uppi, að þegar atvinnuárferði er með þeim hætti, að annað árið þarf að vera mikill gróði á atvinnurekstrinum, af því að hitt árið er mikið tap, verður skattþegn illa fyrir barðinu á löggjöfinni, ef hann þarf að greiða mjög háan tekjuskatt og útsvar, kannske 60-70% af arðinum, en fær enga ívilnun á tapárunum. Hugmynd n. með þessari till. er þess vegna að nema burt þennan skaðlegasta og hættulegasta agnúa á löggjöfinni. Ég hef ekkert um þennan tilgang að segja annað en það, að hann er mjög lofsverður.

Aftur á móti er ég hræddur um, að hér hafi slæðzt inn annar hættulegur agnúi, sem sé sá, að þessar ívilnanir tapáranna koma ekki skattþegni til framdráttar fyrr en upp er etinn varasjóður. Löggjafinn hefir að fornu og nýju í þessum l. viðurkennt fullkomlega, að mesta nauðsyn sé í okkar fátæka þjóðfélagi, að hlutafélög og aðrir atvinnurekendur séu hvattir á allan hátt til þess að safna varasjóðum til þess að standast töp í hallærum. Þetta hefir verið gert með því að áskilja skattþegni þau fríðindi, að 1/3 hluti þess ágóða, sem lagður er í varasjóð, sé skattfrjáls. N. hefir nú orðið sammála um að hækka þennan þriðjung upp í helming, sem er enn að nýju ein staðfesting þeirrar viðurkenningar, að löggjafanum ber að hvetja gjaldþegn til að safna í kornhlöður. Nú er ég aftur á móti hræddur um, að það ákvæði, að tap hallæris komi ekki til frádráttar á tekjum góðæris fyrr en upp er etinn varasjóður, drægi talsvert mikið úr viðleitni skattþegns til að safna sér varasjóði. Ég vil þó ekki á nokkurn hátt leggja á móti till. Hún geymir í sér alveg rétta viðurkenningu á nauðsyn atvinnurekenda. Og þó að hún kunni að hafa þennan annmarka, þá vænti ég þess, að þegar löggjafinn eftir dómi reynslunnar hefir komið auga á þá hættu, sem þarna kann að felast, þá sé hann reiðubúinn að afnema einnig þennan agnúa.

Ég þarf ekki að leiða neina athygli að því, að till. hæstv. fjmrh. við þessa brtt. gengur samkvæmt þeim rökum, sem ég hefi fært fyrir ágæti till. n., alveg í þveröfuga átt. Ég er henni þess vegna andvígur og vænti, að aðrir nm. séu það líka, því að það er tilgangslaust að flytja till., ef hún er svo að engu gerð með samþykkt slíkrar brtt., sem hæstv. fjmrh. hefir flutt við hana.

Það eru nokkrar brtt. í frv. frá eldri löggjöf, sem a. m. k. orka tvímælis, hvort rétt sé að lögfesta. Það hefir ekki verið talað um þær brtt. í n., og ég ætla þess vegna ekki að orðlengja um þær að þessu sinni, en mun ræða um þær í n. áður en málið kemur til 3. umr. En sannleikurinn er sá, að n. hefir átt örðugt með að halda fundi, af því að fundartími n. er síðari hluta dags, en hefir oft verið eyðilagður með fundum í d. N. hefir því ekki haft þann tíma, sem hún hefði þurft til að athuga sín mál.

Ég skal geta um það til leiðbeiningar, að ég tel vafasamt, hvort rétt sé að gera þá breyt. frá gildandi 1., að skattstjóra sé heimilt að leiðrétta framtal án þess að gera skattþegni aðvart um það. Hingað til hefir verið sú regla, að gera skattþegni aðvart, og ég held, að sé rétt, að sú regla haldist.

Ég held, að það orki líka tvímælis, hvort rétt sé að lögfesta það, að ef er ekki talið fram, þá geti skattstjórn lagt skattinn á án framtals, en ef það kemur í ljós, að skatturinn hefir verið reiknaður of lágt, má reikna skattinn upp aftur og taka þá 5 ár aftur í tímann. Þetta brýtur í bág við höfuðtilgang l., að taka af skattþegni nokkurn hluta þeirra tekna, sem hann á hverjum tíma hefir.

Út af því, sem hv. frsm. meiri hl. kom inn á í samanburði sínum við útlönd, um þann mun, sem er á skattstiganum erlendis og hérlendis, þá hygg ég, að engar af þeim tölum, sem við minnihl.menn tilgreindum, verði vefengdur. Ég hefi þær tölur frá öruggum heimildum. Sérstaklega var það athyglisvert, að hv. frsm. skyldi færa þau rök til ágætis því, að beinir skattar væru hærri hér á landi en annarstaðar, að aðrar þjóðir væru miklu ríkari en Íslendingar og gætu þess vegna lyft sér að hafa skattstigann lægri en fátækar þjóðir gætu leyft sér. Það er að vísu rétt, að fátæklingar verða að leggja harðara að sér en þeir, sem efnaðri eru, en það er varhugavert að láta þessa hugsun ná inn á þetta sérstaka svið. Ég held, að það sé almennt viðurkennt, að því ríkari, sem þjóðin er, því frekara megi beita beinum sköttum. Aðalóttinn við beinu skattana er sá, að ef ríkissjóður eða það opinbera er of aðgangshart, þá dragi það úr framtaki manna og lami löngun til fjáröflunar, og það veit ég, að hv. meiri hl. sér, að hvergi er slík lömun eins skaðleg og í þjóðfélagi, sem er komið skammt á leið um fjársöfnun. Það er almennt viðurkennt, að í hverju þjóðfélagi verður að haga skattalöggjöfinni eftir því, hvað vel efnahagsstarfseminni hefir miðað áfram, og það er jafnviðurkenni, að því skemmra, sem þjóðfélag er á leið komið í þessum efnum, þeim mun varlegar verður að fara í því, að beita beinum sköttum.

Ég held, að ég hafi þá í meginatriðunum tekið fram, hvað það er, sem veldur höfuðágreiningnum milli meiri og minni hl., þó að mörg minni atriði liggi á milli hluta, af því að þau þykja ekki skipta svo miklu máli, að þau geti valdið afstöðu n. til málsins.