09.11.1934
Neðri deild: 32. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1028 í B-deild Alþingistíðinda. (1409)

12. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Hv. þm. G.-K. vildi byggja afstöðu sína til þessa máls á því, að uppi væru tvær stefnur í afgreiðslu fjárl. á þessu þingi. Önnur stefnan væri sú, að hafa útgjöld há og þurfa þá um leið að hækka skatta og tolla. Hin leiðin væri sú, að spara, og þá að því er mér skildist svo mikið, að ekki þyrfti að bæta á þær byrðar, sem menn bera nú til ríkisþarfa. Út frá þessu vildi hv. þm. segja það, að Sjálfstfl. geti ekki fallizt á að fylgja því tekjuaukafrv., sem hér liggur fyrir. Nú held ég, að ef menn vilja skoða málið frá þessu sjónarmiði, þá geti menn ekki öðlast á því réttan skilning, vegna þess að það er óhætt að slá því föstu, að þótt Sjálfstfl. hafi haft aðstöðu til að ráð. um afgr. fjárl. og annara þeirra mála, sem áhrif hafa á fjárhagsafkomu ríkissjóðs, mundi honum ekki hafa tekizt, eftir þeim till., sem fram hafa komið frá flokknum, að afgr. fjárl. með lægri útgjöldum en þeim, er felast í þessu fjárlagafrv. Það rökstyð ég með því að taka fram, að flokknum muni hér ekki takast að færa útgjöld á fjárlagafrv. niður sem nemi útgjaldahækkuninni í öðrum frv. vil ég þar benda á 2 frv., sem flokkurinn stendur að, þar sem um er að ræða 900000 kr. útgjaldahækkun eða tekjurýrnun fyrir ríkissjóð. Á þessu byggi ég það, að flokknum hefir ekki tekizt að afgr. þetta mál með lægri heildarútkomu eftir þeim till., sem fram eru komnar frá þingflokknum. Þess vegna er það ekki svo, þegar við erum að taka afstöðu til þessa máls, að við getum rætt það út frá því sjónarmiði, hvort hér sé um það að ræða, að taka þessar upphæðir í ríkissjóð, eða taka þær ekki, heldur hygg ég, að rétti grundvöllurinn fyrir umr. um þetta mál sé sá, að gera sér grein fyrir, hvort þessi upphæð, sem ríkissjóður hefir þörf fyrir, skuli tekin með þessari leið, sem bent er á í frv., eða með öðrum leiðum. Og þá kemur til greina, að bera saman þessa leið við aðrar þær leiðir, sem fyrir hendi eru. Nú eru tollar af óþörfum varningi, sem menn eru yfirleitt sammála um að hafa sem hæsta, svo háir, að í flestum tilfellum er þar ekki miklu á bætandi. Þá er annarsvegur um það að ræða að setja beina skatta eins og hér er gert, og hinsvegar að leggja einhverskonar gjöld á varning, sem er ekki með öllu óþarfur eða beinlínis þarfur. Það sem andmælendur frv. hafa aðallega fundið því til foráttu, er tvennt. Fyrst það, að það gengi allmjög á rétt bæjar- og sveitafélaga um rétt til tekjuöflunar, og hafa sumir gengið svo langt að halda því fram, að það geri þeim nær ókleift að afla nauðsynlegra tekna. - Hin mótbáran er sú, að með frv. sé boginn spenntur svo hátt með álagningu á tekjur manna, að það muni draga úr viðleitni þeirra að afla sér tekna, og þar af leiðandi úr löngun manna til fjársöfnunar. Út frá þessu vil ég minnast á þessar tvær mótbárur. Það eru aðallega tvær leiðir til að afla ríkinu tekna. Fyrst sú, að afla þeirra með beinum sköttum, en hin með tollum og óbeinum sköttum. Hér liggur það því fyrir að athuga, hvor þessara tekjuöflunarleiða komi verr við bæjar- og sveitarfélögin. Ég þori hiklaust að fullyrða, að með því að leggja á tolla í stað beinna skatta fara þau bæjar- og sveitarfélög verst út úr því, sem minnstar hafa tekjur og erfiðasta eiga afkomu. Aftur á móti borga þau sveitarfélög mest, sem bezt eru stæð, ef ríkið tekur tekjur sínar með beinum sköttum, en hin sleppa betur eins og vera ber. Það er því öldungis víst, að eins og tekju- og eignarskattur virðist réttlátastur gagnvart einstaklingunum, eins er hann réttlátastur þegar miðað er við bæjarfélögin. Með því að leggja hann til grundvallar, er fengin trygging fyrir því, að frá þeim sveitar- og bæjarfélögum, sem bezt eru stæð, koma mestar tekjur í ríkissjóðinn, án tillits til fólksfjölda. Þess vegna er það hin mesta blekking, þegar talað er almennt á móti frv. á þeim grundvelli, að með því sé verið að ganga á rétt þessara félaga; því verður þvert á móti ekki í móti mælt, að ennþá hefir ekki verið komið auga á skattstofn, sem réttlátlegar komi niður á bæjar- og sveitarfélögin en einmitt tekju- og eignarskatturinn. Það kemur því úr hörðustu átt að vera að slá því fram, að með honum sé verið að ganga á rétt þeirra. Hitt er rétt, að þau bæjar- og sveitarfélög, sem vel eru stæð, greiða á þennan hátt meira en ef farið væri eftir tollaleiðinni, en hjá því verður ekki komizt, ef skattarnir eiga að koma réttlátlega niður.

Í þessu sambandi hefir því verið haldið fram, að með hækkun tekju- og eignarskattsins eins og frv. fer fram á, sé verið að neyða bæjar- og sveitarfélögin til þess að hækka hjá sér óbeina skatta. En þetta er á algerðum misskilningi byggt, því að ef maður lítur á útsvarsálagningu á þeim stöðum, sem tekjuhæstir eru, eins og t. d. Rvík, og kröfur þær um tekju- og eignarskatt, sem felast í frv., þá dylst engum, að hér í Rvík er hægt að halda áfram að leggja útsvör á eftir þeim sömu reglum og verið hefir, og það er langt frá, að möguleikinn til þess að hækka þau sé tæmdur, og því til sönnunar vil ég benda á skýrslu, sem birt er í nál. hv. meiri hl. fjhn., þar sem bent er á, hve mikill skattur og útsvör verði samkv. stjfrv. á meðalfjölskyldu hér í Rvík af tekjum hennar. Ég skal láta nægja að nefna aðeins 3 dæmi. Það eru því fyrst hjón með 6000 kr. hreinar tekjur, þau greiða 3,8% af tekjum sínum í skatt og útsvar, og tekjurnar eru reiknaðar út að frádregnum skatti og útsvari fyrra árs. Ég býst nú ekki við, að nokkur, sem þekkir til um útsvarsálagningu til sveita, telji ekki, að hægt sé að hækka útsvar undir þessum kringumstæðum.

Þá vil ég nefna annað dæmi, það eru hjón með 12 þús. kr. tekjur, eftir að skattur og útsvar frá f. á. hefir verið dregið frá, þau myndu þurfa að borga 15% af þessari upphæð í tekjuskatt og útsvar. Þetta myndi svara til 14 þús. kr. launa. Ég fæ nú ekki séð, að maður með meðalfjölskyldu og 14 þús. kr. laun geti ekki vel greitt 800 kr. skatt og 1000 kr. útsvar. Mér finnst m. a. s. vel hægt að hækka á honum dálítið.

Þá eru hjón með 20 þús. kr. tekjur, sömuleiðis að frádregnum skatti og útsvari f. á. Þau eiga samkv. frv. að greiða í skatt og útsvar um 5 þús. kr., eða um 24% af tekjum sínum. Um þau er alveg sama að segja og hin, að á öðrum eins vandræðatímum og nú virðist fullkomlega forsvaranlegt að hækka á þeim að einhverju leyti. Það kann nú að vera, að um einstaka bæjarfélag sé svo ástatt, að það eigi erfitt með að hækka útsvör, ef svona er lagt á, en það nær engri átt, að fyrir slíkar undantekningar eigi ríkissjóður að fara að falla frá beinu sköttunum og hverfa inn á tollaleiðina.

Þá vil ég í þessu sambandi minnast á brtt. á þskj. 308 frá hv. minni hl. fjhn., um að helmingur af tekju- og eignarskattinum, sem innheimtast samkv. l. þessum, renni fyrst um sinn í bæjar- eða sveitarsjóð, þar sem hann er innheimtur. Ég veit nú ekki, hvort hv. flm. hafa gert sér fulla grein fyrir því, hvað þeir fara fram á með brtt. þessari, og vil því í nokkrum orðum skýra það fyrir þeim og hv. þdm. Ef brtt. þessi yrði samþ., þá myndu tekjur ríkissjóðs lækka um 127 þús. kr. miðað við skattalögin frá 1921. En miðað við það, sem tekjur ríkissjóðs af þessum skattstofni voru á árunum 1932-'33, er farið fram á að lækka tekjur ríkissjóðs um ½ millj. á ári. M. ö. o., þessir hv. þm., sem ekki eru á móti því, að skattur þessi verði innheimtur með 40% álagningu, fara nú fram á, að tekjur ríkissjóðs af honum verði ½ millj. kr. lægri en vænta má, að þær verði í ár. Ég er ekki frá því, að það gæti komið til mála, þegar tekju- og eignarskatturinn væri orðinn mjög hár, að ætla bæjar- og sveitarfélögum einhvern hluta af honum, en meðan boginn er ekki spenntur hærra en gert er í þess frv. getur ekki verið um neitt slíkt að ræða.

Um hina mótbáruna, að beinu skattarnir verði of háir með þessu frv., get ég verið stuttorður. Að svo sé alls ekki nægir að vísa til skýrslu þeirrar, er fylgir frv. Með því að kynna sér hana getur hver maður gert sér grein fyrir, hvort of langt sé gengið eða ekki. En til þess að fyrirbyggja misskilning um það, hvenær skatthækkunin byrjar, vil ég geta þess, að hér í Rvík byrjar hún við 6 þús. kr. tekjur, en utan Rvíkur við 5 þús. kr. tekjur. Hv. þm. G.-K. kvartaði strax um þennan mismun utan Rvíkur og kallaði það gífurlega skatthækkun. En sjá, það er orðin ein króna, sem hér er um að ræða, og það gæti vel komið til mála, að hægt yrði að semja við hv. þm., svo þessi 1 kr. félli niður.

Þá skal ég með örfáum orðum víkja að einstökum brtt., sem fyrir liggja, og þá fyrst að brtt. hv. meiri hl. fjhn. á þskj. 258. Brtt. sú, sem ég fyrst vil gera að umtalsefni, er hin 6. í röðinni og hljóðar um það, að rekstrartap megi færa á milli ára og jafna með því rekstrartekjurnar.

Eins og hv. þdm. munu eflaust muna, þá gat ég þess þegar við 1. umr. þessa máls hér í d., að ég væri fús til samninga um að reyna að draga úr þeirri áhættu atvinnufyrirtækjanna, sem misjöfn afkoma á milli ára getur valdið þeim, en ég tók það strax fram, að ég gæti ekki gengið inn á að jafna það að fullu, í fyrsta lagi sökum þess, að öll skattalöggjöf er byggð á því, að tekjur hvers árs skuli skattlagðar sérstaklega, og þó að maður hafi misjafnar tekjur, þá er gengið út frá því, að hvert ár sé lagt til grundvallar út af fyrir sig. Það getur því ekki komið til mála að jafna rekstrartapið alveg út. Eins og hér er ástatt, þá getur orðið gífurlegur gróði annað árið, en tap hitt árið. Þessi aðstöðumunur hér um afkomu atvinnuveganna, samanborið við ýmsar aðrar þjóðir, réttlætir það, að víkja frá þeirri reglu, sem viðurkennd er meðal allra þeirra þjóða, er tekjuskatt nota, að leggja skattinn á, miðað við hvert ár út af fyrir sig. Það er vegna þessarar sérstöku aðstöðu hér, að ég hefi borið fram brtt. á þskj. 283, sem hnígur í þá átt, að undanþegin skuli tekjuskatti helmingur þess hluta af hreinum tekjum skattgreiðenda, sem gengur til þess að jafna rekstrartöp þriggja síðustu ára og varasjóður hrekkur ekki fyrir. En ef af öðru því fé, sem aldrei er lagt í varasjóð, en varið er til að mæta tapi fyrri ára, á ekki að greiða neinn skatt, þá sé ég ekki betur en að það fyrirkomulag orsaki það, að löngun félaga til þess að leggja fé í varasjóð hljóti að minnka. ef ekki hverfa með öllu, ef félög eiga von á einhverju rekstrartapi.

Ég álít vera ósamræmi í því að undanþiggja frá skatti helming þess fjár, sem greitt er úr varasjóði upp í töp fyrri ára, en undanþiggja að fullu það fé, sem varið er af rekstrargróða til að mæta slíkum töpum og greitt er framhjá varasjóði. Þess vegna finnst mér rétt að samþ. mína brtt. á þskj. 285. Í till. er það takmarkað, að tapið megi ekki vera eldra en þriggja ára, sem bætt er upp með tekjuafgangi, til þess að skattívilnun geti komið til greina. Með því að miða þessa heimild við 3 ár, ætti það að verða keppikefli fyrir hlutafélög að leggja hæfilegan hluta af gróða sínum í varasjóð, af því að það fé, sem lagt er í varasjóð og síðan fer til að jafna töp félagsins, verður alltaf skattfrjálst að hálfu leyti hvað gamalt, sem tapið er. Aftur á móti verða þær tekjur, sem jafnað er upp í töp, ekki skattfrjálsar að hálfu, nema töpin séu frá síðustu 3 árum, og ætti það að hvetja menn til að leggja í varasjóð. En ástæðan fyrir því, að ég álít þetta verða hvöt fyrir félög að leggja í varasjóð, er fyrst og fremst sú, að ef félagið er búið að leggja fé í varasjóð, þá á það á hættu að þurfa að borga af því fullan skatt, ef það er útborgað úr varasjóði til hluthafa eða sett í eitthvað annað, og gerir það féð fastara í varasjóði. Af þessum tveimur ástæðum er till. komin fram, að skattleggja skal allar tekjur hvers árs fyrir sig, og hinsvegar vegna þess árekstrar, sem er á milli ákvæðanna um skattfrelsi þess fjár, sem lagt er í varasjóð, annarsvegar, og hinsvegar till. meiri hl. n. við 9. gr. Ég skal þó taka það fram, að ef n. getur ekki fallizt á mína till., þá mun ég reyna að fara þá leið, sem mér þykir miklu lakari, að bera fram brtt. við 3. umr. um það, að tap, sem ágóða má nota til að greiða, ef hann á að vera skattfrjáls, má ekki vera nema tveggja ára eða jafnvel eins árs eftir því, sem mér þykir hagkvæmara við nánari athugun. Annars verður að ganga út frá því, að tekjur hvers árs séu skattlagðar út af fyrir sig, þó að ég viðurkenni, að þessar undantekningar verði að gera vegna hinna sérstöku staðhátta hér á landi.

Um brtt. 296 frá hv. 2. þm. N.-M. við brtt. fjmrh. um það, að miða við tap tveggja síðustu ára í stað þriggja skal ég segja það, að mér finnst sanngjarnara að miða við þrjú ár eins og till. mín fer fram á, og legg ég því til, að hún verði samþ. óbreytt. Sama er að segja um brtt. sama hv. þm. á þskj. 274, að ég vil ekki samþ. hana. Mér finnst ekki sanngjarnt, að hér í Rvík sé sami persónufrádráttur og annarsstaðar vegna þess, að það er ómótmælanlegt, að hér er miklu dýrara að framfæra lífinu en annarsstaðar á landinu.

Hv. 8. landsk. leggur til með brtt. á þskj. 337 að veita undanþágu frá tekjuskatti fyrir arð af allt að 10000 kr. sparifjáreign. Ég verð að segja, að ég get ekki verið samþ. þessari till., þó að fyrir henni megi færa ýms rök. Það má náttúrlega um það deila, hvort rétt sé að skattleggja vexti af öllu sparifé. En ástæða fyrir því, að ég tel, að fella eigi þessa till., er fyrst og fremst sú, að það er ómögulegt að reikna út, hvaða áhrif till. hefði á frv. sem tekjuöflunarfrv. Í öðru lagi tel ég hæpið að leggja út á þá leið, að undanþiggja skattgreiðslu vexti af sparifjárinnstæðum, á sama tíma og skattur er tekinn of vöxtum af eign í atvinnufyrirtækjum, meira og minna áhættusömum, eins og gert er í frv. Mér finnst því, þó að æskilegt hefði verið að geta veitt slíka undanþágu með sparifé, að það mundi verða vafasöm leið með tilliti til þess skatts, sem þeir verða að greiða, er leggja fé sitt í hættu í fyrirtæki. Auk þess vil ég benda hv. flm. á það, að þessir vextir eru sízt minni en þeir, sem fé bundið í atvinnufyrirtækjum gefur af sér, hvort sem um er að ræða landbúnaðar eða sjávarútveg, sem eru nú aðalatvinnuvegirnir. Ég sé því ekki ástæðu til að samþ. þessa till. Ég er líka á móti síðara lið brtt. á sama þskj., um að hækka frádrátt úr 300 kr. í 500 kr. frá skattskyldum tekjum vegna lögboðinna tryggingargjalda eða lífeyris skattgreiðanda eða konu hans. Mér sýnist, að 300 kr. frádráttur sé það ríflegur í þessu tilfelli, að ekki sé ástæða til að hækka hann. Með 300 kr. má áreiðanlega greiða iðgjöld af allhárri líftryggingu og er því ekki ástæða til að hækka þá upphæð.

Ég skal svo ljúka hér máli mínu. Skal ég kannast við það, að ég hefi orðið nokkuð langorður, en ég stend fyrir það betur að vígi með að spara ræðutíma minn síðar við þessa umr. og mun þá aðallega takmarka mínar ræður við að svara þeim nýju atriðum, sem fram kunna að koma í málinu.