09.11.1934
Neðri deild: 32. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1035 í B-deild Alþingistíðinda. (1411)
12. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Pétur Halldórsson [óyfirl.]:
Ein af ástæðunum til þess, að ég verð að telja þessa hækkun á tekju- og eignarskatti varhugaverða, er sú, að það má kalla, að þessi tegund skatta sé sérsköttun á kaupstaði landsins, og þá sérstaklega á Rvík. Því hefir nú verið lýst, hvaða áhrif mjög mikil hækkun tekju- og eignarskatts hefir á gjaldstofna sveitar- og bæjarfélaga, og skal ég því ekki fara lengra út í það í þetta sinn. En þegar litið er á það, hvaðan ríkissjóður hefir fengið tekjur af þessari löggjöf, t. d. árið 1933, þá kemur það greinilega í ljós að þetta má kallast sérskattur á kaupstaðina.
Árið 1933 hefir skatturinn numið samtals kr. 1437000. Af þessari upphæð kemur á
Rvík
kr. 1055000
Ísafj.s. og Ísafjörð
- 46900
Siglufj.kaupstað
- 27800
Eyjafjörð og Akureyri
- 91100
N.-M. og Seyðisfj.
- 10300
Vestmannaeyjar
- 23300
Gullbr.- og Kjósars.
- 91300
Þetta er samtals
kr. 1345700
Þannig er það ekki nema rúmar 90 þús. kr., sem öll önnur héruð borga í ríkissjóð með tekju- og eignarskatti, en kaupstaðirnir 1345700 kr. Þetta er greinilegur vottur þess, að þetta er sérskattur á kaupstaði landsins, og af því að svo er, er ákaflega varhugavert og ranglátt að hækka þennan sérstaka skatt upp úr öllu valdi og gera hann að stærri lið í tekjuöflun ríkissjóðs með ári hverju.
Þetta er ein af ástæðunum til þess að ég er á móti þessari tekju- og eignarskattshækkun, því að eitt af því, sem Alþ. á að hafa fyrir augum í álagningu skatta er vissulega það, að skattarnir komi nokkurnveginn hlutfallslega jafnt niður á landsfólkið, miðað við getu þess til þess að leggja skattana fram. Hæstv. fjmrh. var að vísu að tala um það, að sérstaklega væri óhætt að hækka þennan skatt í Rvík, vegna þess að það, sem Rvíkurbær tekur af þessum sama gjaldstofni, sé ekki svo ýkjamikið, og að Rvík muni kannske betur en aðrir kaupstaðir á landinu og önnur bæjar- og sveitarfélög geta unað þessum skatti, án þess að hann sé mjög tilfinnanlegur. Og hæstv. ráðh. talaði ennfremur um það, að það væri engin frágangssök fyrir bæjarfélögin að hækka útsvörin, þrátt fyrir það, þó þetta frv. yrði að l., og miðaði hann þá sérstaklega við það, að í Rvík væri töluvert af tekjum borgaranna eftir í þeirra höndum, þó þessi löggjöf yrði sett, og fannst mér hann miða sérstaklega við það þó, að þeir, sem hefðu 4-10 þús. kr. tekjur. borguðu ekki svo mikið með þessum skattstofni til sveitar- og bæjarfélaga og ríkissjóðs. Sama virtist mér skína út úr ræðu hv. frsm. meiri hl. fjhn., þar sem hann sagði, að þeir, sem nú hefðu miðlungstekjur, ættu samt eftir nokkuð mikið meira en skattinum nemur til lífsframfæris sjálfs sín og sinna. En mér finnst þetta ákaflega röng mælisnúra að fara eftir, því að aðalatriði málsins er það, að þjóðfélagið þolir ekki, að öllu aflafé og tekjum sé eytt á ári hverju. Þess vegna dugar það ekki að leggja á þann mælikvarða, að taka megi af tekjum allra borgara allt það, sem þeir ekki þurfa, að áliti þessara hv. þm., sjálfum sér og sínum til framfæris. Það er líka rangt mat þá um leið þegar talað er um það, að þeir, sem hafi 100 þús. kr. í tekjur eins og hv. 1. landsk. sagði, ættu eftir að þeir væru búnir að borga þennan skatt 27300 kr. til þess að lifa af. Ef þ. ætlar að leggja þetta eitt til grundvallar við ákvörðun skatta, þá hygg ég, að ekki sé langt að bíða, að erfiðleikar atvinnulífsins verði meiri en þeir þó eru orðnir nú, því það má ekki loka augunum fyrir því, að þjóðfélagið þarf á því að halda að geta auðgazt svo á ári hverju, að það geti veitt nýjum borgurum lífsframfæri. Það hefir verið reiknað út erlendis í iðnaðarlöndum, að það þurfi 20 þús. kr. höfuðstól til þess að láta einn nýjan borgara bætast við í hópinn og hafa lífsframfæri sitt með þjóðinni. - Þess vegna er það röng skoðun, að þeir, sem ekki nota allt það fé, sem þeir afla á ári hverju, séu fyrst og fremst fjandmenn þjóðfélagsins, því þeir geta í staðinn fyrir að nota þetta fé til eigin þarfa, lagt það til ríkisþarfa og til að auka og efla atvinnulíf þjóðarinnar, eftir því, sem henni fjölgar og fleiri þurfa á þeim höfuðstól að halda, sem þarf til þess að stunda atvinnu og að framleiðsla sé möguleg. Þess vegna má ekki leggja þann mælikvarða á, að menn eigi rétt eftir til lífsframfæris, þegar þeir hafa borgað skatta sína, því þjóðfélagið þarf að spara á ári hverju til þess að atvinnulífið geti haldizt við, og það er sjálfsagt komið að því hér eins og víða annarsstaðar, að þessi sparnaður er ekki nægilega mikill - m. a. vegna hárra skatta - til þess að atvinnulífið geti þróazt og verið í fullu fjöri. Þetta er kannske ein af ástæðunum fyrir atvinnuleysinu og erfiðleikum viðskiptalífsins vor á meðal.
Hæstv. fjmrh. sagði líka, að ekki bæri að kveinka sér við að setja slíka löggjöf, þar sem þeir væru fáir utan Rvíkur eða kaupstaða landsins, sem hefðu yfir 5 þús. kr. tekjur. M. ö. o., hann býst við og telur það til meðmæla með frv., að litlar líkur séu fyrir því, að utan Rvíkur sé mikill sparnaður á ári hverju. Ég vil því segja, að hér sé beinlínis verið að hugsa um að taka í ríkissjóð allt, sem umfram það er, sem þessir hv. þm. kalla þurftarlaun. En ef þessi verður stefna Alþ. í þessum málum, þá er augljóst, að þetta þjóðfélag leggst fljótlega í rústir.
Það hefir verið deilt um það á undanförnum árum, hvort bæjarstj. Rvíkur misþyrmdi skattborgurunum með þeim útsvörum, sem tekin eru til bæjarþarfa, og hæstv. fjmrh. hefir verið einn í flokki þeirra manna, sem ávítar mjög þá stefnu, sem bæjarstj. Rvíkur hefir í þessum málum, og sem segja, að hér sé svo dýrt að lifa. m. a. af því, hvað skattaálögurnar séu þungar, og það sé að sliga þjóðfélagið, eins og þeir kalla það. En nú kemur það fram í ræðu hæstv. fjmrh., að það hafi aldrei verið meiningin að ávíta bæjarstj. Rvíkur fyrir það, hvað skattarnir hafi verið þungir, heldur fyrir það, hvað þeir hafa hækkað frá ári til árs. En ég hélt, að þetta gæti varla verið ávítunarefni hjá hæstv. ráðh., þegar tekið er tillit til þess, að á síðustu 15 árum hefir tvöfaldazt íbúatala bæjarins og þar með um leið þörfin til þess að hafa opinberar framkvæmdir í nokkru samræmi við framkvæmdir einstaklinganna. Nú hefir það verið svo í Rvík á síðustu árum, að bæjarstj. hefir hlífzt við að hafa framkvæmdir bæjarsjóðs eins örar og þurft hefði, vegna þess að hún hefir álitið ennþá nauðsynlegra að byggja t. d. hús heldur en að gera góðar götur og fullkomnar meðfram þeim. En nú er það aftur á móti ávítunar- eða umkvörtunarefni, að opinber gjöld séu svo lág í Rvík, að þau séu miklu hærri víða annarsstaðar, og þá á að hlaupa í skarðið og taka þær tekjur með þessu frv. um hækkun á tekju- og eignarskatti, sem bæjarstj. hefir neitað sér um að taka af borgurunum.
Ein af þeim ástæðum, sem hv. 1. landsk. færði fyrir þessari hækkun á tekju- og eignarskattinum, var sú, að nú þurfi framar venju að halda uppi verklegum framkvæmdum í landinu. En getur ekki verið nokkurt samband milli þessa óhæfilega skattafargans
í landinu og þess, að ríkissjóður verður að halda uppi opinberum framkvæmdum? Með þessari skattakúgun geta að sjálfsögðu framkvæmdir einstaklinganna ekki verið í samræmi við þeirra vilja og þarfir, vegna þess að þeir verða árlega að skila mestum hlutanum af sínu aflafé og ágóða til sveitarfélaga og ríkissjóðs. Nú vil ég spyrja, hvort ríkissjóður sé þess megnugur og hvort það sé vilji þessara hv. þm., að ríkið taki að sér að leggja atvinnulífið í rústir með því að skattleggja fyrirtæki landsmanna til þess að halda uppi góðgerðaframkvæmdum. Ég held, að viturlegra væri að láta þá, sem eiga þetta aflafé, halda því sem mestu til þess að auka og efla sín fyrirtæki og hafa framkvæmdirnar sjálfir heldur en að ríkissjóður taki fyrirtækin af þeim og ráðstafi þeim eins og hér er að verða venja.
Eitt er það enn, sem ég álít vera hættulegt í frv., og það er það, að misræmi skapast líka á annan hátt, með því að öll atvinnu- og fjáröflunarfyrirtæki, nema samvinnufélög, greiða þennan skatt, og því hærri sem hann er því ójafnari verður sá leikur. Með þessari skattaálögu má beinlínis koma í veg fyrir og útrýma allri annari starfsemi en samvinnufélögum, ekki aðeins í verzlun, heldur líka í framleiðslu. Þetta er því yfirvofandi hætta með slíkri löggjöf, sem hér um ræðir.
Hæstv. fjmrh. sagði, að að vísu kæmu hæstar upphæðir í ríkissjóð frá Rvík samkv. þessum 1. um tekju- og eignarskatt. Það er líka rétt, að það er mjög miklu hærri upphæð en frá nokkru öðru sveitarfélagi á landinu. En það er ekki aðalatriðið, heldur hitt, að þessi löggjöf er svo ung, að ekki hefir unnizt tími til þess að framkvæma hana svo, að hún sé réttlát, og það hefir gengið lengst í Rvík í því efni að framkvæma hana svo, að eftir 10-20 ár gætu komið til skatts allar tekjur og eignir manna. En því er ekki til að dreifa annarsstaðar á landinu. Þess vegna er þessi löggjöf ranglát enn sem komið er. En ef það tækist á næstu áratugum - vegna þess að það þarf langan tíma til þess að allar tekjur og eignir náist til skatts með tekju- og eignarskatti - að samræma framkvæmdir l. á þennan hátt, þá er þó minna ranglæti í því að hækka skattstigann; en meðan þessu samræmi er ekki náð, er þetta þar að auki sérsköttun á Rvík.
Af þessum ástæðum, sem ég hefi nú talað um, tel ég þetta óheppilega og rangláta löggjöf fyrir utan það, að skattstiginn er orðinn svo hár, að það má beita vonlaust um stærri fyrirtæki í landinu, að þau geti nokkurntíma orðið öflug. Fyrirtæki, sem hefir 100 þús. kr. tekjur og borgar 72700 kr. til skatts, getur ekki orðið öflugt, þegar áhættan er öðrum megin svo mikil sem hér er yfirleitt við alla atvinnuvegi.
Mér finnst vanta hjá meiri hl. n. og hæstv. fjmrh. þá hugsun, sem er meira social en að vilja hafa þessa skattálögu sem hæsta, þá hugsun, að þjóðfélagið, hinn máttarminni borgari ekki síður en hinn máttarmeiri, verði að krefjast þess, að ríkisvaldið sjái um, að ekki sé útilokað, að þjóðfélagið eflist og auðgist. En það má heita útilokað, ef þessum sérstaka skatti er beitt svo miskunnarlaust sem hér er stefnt að. Þetta er hagsmunamál allra sameiginlega og það er miklu meiri social hugsun í því heldur en kemur fram í frv.
Af þessum ástæðum öllum verð ég að lýsa því yfir, að ég mun ekki fylgja frv. eins og það er úr garði gert og greiði atkv. á móti því af því að ég álít það ósocialt og til tjóns fyrir þjóðarheildina.