09.11.1934
Neðri deild: 32. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1048 í B-deild Alþingistíðinda. (1415)
12. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Hannes Jónsson:
Brtt., sem ég ber fram hér á þskj. 359, fara í mjög svipaða átt að nokkru leyti eins og brtt. frá hv. 2. þm. N.-M., og eru um persónufrádráttinn. Ég geri hann jafnan alstaðar á landinu og tek aðeins þann frádrátt, sem gert er ráð fyrir í frv. sjálfu, að eigi að gilda fyrir Rvík. Ég gæti vel gengið inn á það, að einhver önnur tala ætti að gilda, en hefi tekið töluna, sem í frv. er gera ráð fyrir, að gildi fyrir Rvík. Því hefir verið haldið fram, að frádrátturinn ætti ekki að vera miklu hærri hér í Rvík en annarsstaðar. Þegar hv. 2. þm. N.M. var að mæla fyrir þessari skoðun sinni, þá var gripið fram í fyrir honum og hann var spurður um mjólkurverðið hér í Rvík. En ég vil nú aftur spyrja um, hvað mjólkurverðið sé t. d. í Hafnarfirði og á Ísafirði o. fl. stöðum. Það er ekki lægra á þessum stöðum en í Rvík. En vitanlega getur ekki persónufrádrátturinn farið eftir því, hve mjólkurverðið er hátt á hverjum stað. (ÁÁ: Hver er húsaleigan í Rvík?) Þá verð ég að spyrja hv. þm. V.-Ísf. um það, hver þau þægindi séu, sem þeir, sem hér búa, njóta fram yfir aðra, fyrir að borga hærri húsaleigu en aðrir. Þau eru mikil. Þá er sagt, að þeir sem búi í lélegum kofum úti um sveitir landsins, þeir komist ódýrara af, og þess beri að taka tillit til, þegar um persónufrádráttinn er að ræða. (Fjmrh: Það eru til lélegir kofar í Rvík.). Nei, þeir eru ekki til hér í Rvík, og þess vegna er ekki um samanburð að ræða. Svo eru það margskonar önnur þægindi, sem þeir menn hljóta, sem hér búa, fram yfir þá, sem búa úti um byggðir landsins, og þó að af þeim ástæðum verði dýrara að lifa í Rvík, þá á ekki að nota það til þess að hækka persónufrádráttinn. Því að þeir, sem ekki hafa þau þægindi, sem hér eru á boðstólum, verða að hafa eitthvað í staðinn, og þá virðist ekkert óeðlilegt, að þeir hafi þá heldur meiri afgang í sambandi við persónufrádráttinn. Þetta á við a- og b-lið frv.
En svo er það c-liður frv. Þar er talað um frádrátt vegna barna og skylduómaga. Í till. minni reyni ég að færa þetta meira út, og að frádráttur verði leyfður vegna annara skyldmenna, sem eru á framfæri hjá ættingjum sínum. Það er alveg fráleitt að leyfa ekki slíkan frádrátt, ef t. d. systkini framfæra hvert annað eða nánustu vandamenn, því að með því móti er því opinbera, sveitar- og bæjarfélögunum hlíft við útgjöldum, sem þau annars mundu hafa af því að sjá um framfærslu þessa fólks. Mér virðist fyllsta ástæða til þess að taka þetta til greina og viðurkenna rétt þessara manna, með því að bæta þessu inn í frv. og gera þessa ómaga jafnréttháa skylduómögum. Þetta er það, sem ég vildi segja um brtt. mínar, en af því að tími er naumur nú og tækifæri gefst til þess við 3.umr. málsins að ræða einstök atriði frv. nánar. þegar maður hefir séð, hver verða afdrif þeirra brtt., sem nú liggja fyrir, sem margar hverjar hafa mjög mikil áhrif á verkanir frv., þá get ég látið þetta duga í þetta sinn, en vil eindregið hvetja hv. þdm. til þess að greiða brtt. mínum atkv., því að þær eru sanngjarnar.