15.11.1934
Neðri deild: 37. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1089 í B-deild Alþingistíðinda. (1441)
12. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Thor Thors:
Hæstv. fjmrh. hefir nú orðið að viðurkenna, að sú staðhæfing, sem hann sló fram í sinni ræðu, að brtt. mín sé óþörf, á ekki við rök að styðjast. Ég hefi bent honum á framkomu hans sjálfs sem skattstjóra. Hann vildi reyna að verja sig með því, að hann hefði tekið til greina upplýsingar frá okkur. Og hann benti á þann lið, sem hann vildi kalla launauppbót. En það var nú svo, að hæstv. fjmrh. sá ekki ástæðu sem skattstjóri til að taka til greina nema einn af fimm liðum, sem við tilfærðum undir þessu nafni, launauppbót og þóknanir. Við urðum því að halda málinu áfram til yfirskattan., sem féllst loks á, að þetta væri rétt hjá okkur. Hæstv. fjmrh. tók sem skattstjóri aðeins til greina einn lið, að upphæð um 3600 kr., en neitaði fjórum liðum, alls um 14 þús. kr. Hæstv. fjmrh. vildi láta líta svo út, sem hér hafi verið um risnu að ræða. En þetta er alrangt. Þetta voru eingöngu launauppbætur og þóknanir til starfsmanna og verkamanna, enda sannar úrskurður yfirskattan., að svo var. Annars hefði hún ekki breytt úrskurði skattstjórans og talið alla þessa liði frádráttarbæra. Þetta sýnir, að full ástæða er til að kveða skýrt á um þessa hluti í lögum, þegar skattayfirvöldin greinir jafnmikið á í þessu máli eins og ljóst er af þessu eina dæmi.
Ég skal ekki fara út í rökræður við hv. þm. Hafnf. um réttmæti till. minnar, að miða persónufrádráttinn við öll kauptún. Hann hefir sjálfur orðið að viðurkenna, að það er ekki hægt að finna neina allsherjarréttlætislínu í þessu máli, úr því að annars er farið inn á þessa braut. En ég vil benda honum á, að liðir eins og húsaleiga er mjög svipaður í öllum kauptúnum landsins, hvort sem þau eru stór eða smá. (EmJ: Nei). Jú, þetta er staðreynd, sem má sýna með tölum. Ýmsir aðrir liðir til lífsframfærslu eru líkir í hinum ýmsu kauptúnum landsins.