10.10.1934
Neðri deild: 6. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1110 í B-deild Alþingistíðinda. (1470)

35. mál, Kreppulánasjóður

Forsrh. (Hermann Jónasson) [óyfirl.]:

Ég sé ekki ástæðu til að lengja mjög umr. um þetta frv., en vil aðeins svara hv. 8. landsk. nokkrum orðum. Það, að nauðsynin fyrir bráðabirgðal. hafi ekki verið fyrir hendi, er byggt á mesta misskilningi og þekkingarleysi. Það lágu fyrir fjöldi af lánbeiðnum, og margir þessara manna voru þannig stæðir, að þeir sáu sér ekki fært að taka lánin með þeim kjörum, sem ákveðin voru í l., að greiða jafnar afborganir og þá háu vexti, sem eðlilega eru á fyrstu árunum og kæmu einmitt harðast niður á þeim á kreppuárunum. Hér er því ekki gert annað en það, sem gert er í veðdeildum, þar sem ársgreiðslur eru jafnar. Það var þess vegna ekki um nema tvennt að gera, annað hvort að þeir menn, sem báðu um lán, biðu með að skrifa undir samningana þangað til þing kæmi saman og þannig tefja afgreiðslu lánbeiðnanna, eða að gefa út bráðabirgðal. Þriðja leiðin var vitanlega fær, að þvinga lánbeiðendur til að taka lánin með þessum kjörum, af því að þeim lá á að fá þau sem fyrst. Það var því nauðsynlegt að setja bráðabirgðal., en það verður vitanlega alltaf matsatriði, hvenær nauðsynlegt er að setja þau, og fer það eftir því, hvaða augum maður lítur á hagsmuni þeirra manna, sem hlut eiga að máli. Get ég trúað því, að hér skiptist leiðir milli mín og hv. 8. landsk. um þetta atriði.

Þá minntist hv. 8. landsk. á, að þetta væri ekki veruleg breyt. á l. frá því, sem nú er ákveðið í l. Þetta byggist einnig á misskilningi, því það hefir verið reiknað út, að það munar hátt á 2. millj. kr. á afborgunum og vöxtum á fyrstu 15 árunum. Afleiðingin af þessari breyt. er sú, að greiðslur skiptast jafnar niður á öll árin, í stað þess, að þær komi þyngst niður á fyrstu árin.

Þá kom það fram hjá hv. 8. landsk., að rangt hefði verið að setja þessi l., vegna þess að einmitt hefði verið rædd þessi leið á þinginu 1933, að hafa ársgreiðslur jafnar, en svo kemur hann aftur að því, að ekki hefði þurft annað en að setja reglugerð til þess að breyta þessu ákvæði. Þetta er, eins og menn sjá, hreinasta mótsögn. Það er alveg misskilningur, að það sé ákveðið í l., hvernig lánin skuli veitt. Það er einungis ákveðið, hvernig bréfin skuli dregin inn. Sjóðstj. er gefin heimild til þess að haga lánunum eins og hagkvæmt er fyrir lántakendur.

Ég vil þess vegna mótmæla því eindregið, enda tel ég það sagt móti betri vitund, að ekki hafi verið ástæða til að setja um þetta bráðabirgðal.