15.10.1934
Neðri deild: 10. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1115 í B-deild Alþingistíðinda. (1480)
35. mál, Kreppulánasjóður
Forsrh. (Hermann Jónasson):
Ég þarf ekki að svara miklu í ræðu hv. þm. G.-K., en vil þó segja honum það, að hans föðurlegu áminningar munu hafa jafnlítið að segja hér eftir eins og hingað til. Ég mun ekki fara þar í skóla til að læra siðfræði eða mannasiði.
Að öðru leyti er nákvæmlega það sama að segja um þetta, sem nú hefir komið fram í málinu, og það sem áður hefir komið fram í því, að rökin fyrir því, að ekki hafi þurft að setja bráðabirgðal. fá ekki staðizt. Þau rök, sem hv. þm. eru að reyna að færa fram fyrir máli sínu, eru þessi, að við þá bændur, sem eftir lánunum biðu, hefði átt að segja: „Þið getið beðið þangað til Alþ. er búið að ganga frá þessum l., því að ykkur liggur ekkert á að taka lánið fyrr“. Nú er það vitað, að meirihlutafylgi var fyrir því hér á Alþ. að fá 1. breytt og gera lánskjörin aðgengilegri. Um það má deila aftur og fram., hvenær brýn nauðsyn sé fyrir hendi til að setja bráðabirgðal., en eins og á stóð og á stendur fyrir bændum, og þegar litið er á þá töf, sem hefði orðið á framkvæmd l., ef þetta hefði ekki verið gert, þá lít ég svo á, að um mjög brýna nauðsyn hafi verið að ræða. - Þá vil ég líka segja hv. þm. G.-K. það, að hann hefir sjálfur sett l. um fiskeinkasölu, l. sem gerðu ekki minna til að taka fram fyrir hendur einstaklinga heldur en þessi 1., nema síður sé, og ég vil segja, að undir þeim kringumstæðum, sem þá voru, hafi verið um nokkuð vafasamari nauðsyn að ræða heldur en nú.
Það fer eftir því, hvern mælikvarða menn leggja á þetta mál, hvort þeir telja, að bráðabirgðal. hafi verið þörf eða ekki. Ég er ekki í nokkrum efa um það, að hér var brýn nauðsyn fyrir hendi, og aðfinnslur við stj. fyrir setningu 1. eru því gersamlega ástæðulausar.“
Og hvað mig snertir, þá mundi ég ekki hika við að setja bráðabirgðal. hvenær sem væri, ef ég teldi þess eins brýna nauðsyn og með þau l., sem hér um ræðir. Því að það er í anda stjskr.