15.10.1934
Neðri deild: 10. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1116 í B-deild Alþingistíðinda. (1482)
35. mál, Kreppulánasjóður
Hannes Jónsson:
Án þess að ég ætli að öðru leyti að blanda mér í þær umr., sem hér hafa orðið, vil ég þó benda hæstv. forsrh. á það, að bráðabirgðal. hefði ekki þurft að setja lántakenda vegna, eins og virðist vera skoðun hans. Þeir, sem lánin taka, fá sjálfir enga peninga úr Kreppulánasjóði, en þeir, sem eiga kröfur á hendur þessum lántakendum, eiga aðgang að sjóðnum. Hér getur því ekki verið um það að ræða að létta fyrir þeim, sem lánin fá, heldur í hæsta lagi fyrir þeim, sem eiga kröfur á þessa menn. Ég veit, að menn hafa óskað eftir því, að skuldabréfin yrðu ekki undirskrifuð fyrr en eftir 15. nóv., en Kreppulánasjóður færist ekki undan því, að þessi lán séu uppgerð fyrir þann tíma, ef skuldheimtumennirnir óska eftir því. En það er gert í þágu skuldakröfuhafanna, en ekki lántakenda. Ef hæstv. ráðh. hefði farið þá leið, að óska eftir því, að Kreppulánasjóður borgaði ekki út meiri lán um tíma, en biði eftir l., sem væntanlega yrðu samþ. á næsta Alþ. um lánskilmála, býst ég við, að stofnunin hefði orðið við þeim tilmælum. - En ég vil undirstrika það, að bráðabirgðal. var ekki þörf vegna lántakenda, þau gera enga þá breyt. á högum þeirra, sem ekki hefði getað beðið eftir lagasamþ. á venjulegan og eðlilegan hátt.