15.10.1934
Neðri deild: 10. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1120 í B-deild Alþingistíðinda. (1486)

35. mál, Kreppulánasjóður

Forsrh. (Hermann Jónasson) [óyfirl.]:

Ég sé ekki ástæðu til að lengja mikið þessar ómerkilegu umræður. Það má auðvitað deila endalaust um það, hve brýn nauðsyn hafi verið á því að gefa út þessi bráðabirgðal. Skoðanir á því atriði byggjast vitanlega einkum á því, hvaða augum litið er á hagsmuni hlutaðeigenda.

Ég skal aðeins leiðrétta örfátt af þeim villum, sem fram hafa komið, t. d. það, sem hv. þm. V.-Húnv. var að tala um, að þessi breyt. væri einkum gerð með hagsmuni skuldareigenda fyrir augum. En breyt. er í því fólgin, að lánin greiðast hægar fyrstu árin. Þetta er vitanlega óhagur skuldareigendum, en hagur lántakendum. Hv. þm. V.-Húnv. hefir því snúið þessu alveg við. Breyt. er gerð með hagsmuni lántakenda fyrir augum, og ég hefi orð eins af búnaðarbankastjórunum fyrir því, að bændur hafi talið mikla nauðsyn á að fá þessa breyt.

Út af því, sem hv. 8. landsk. var að segja, að ég mundi ekki hafa kynnt mér, að þetta væru ekki peningalán, heldur bréf, er því til að svara, að hv. þm. veit vel, að þessi bréf gilda sem peningagreiðsla á öllum skuldum, sem stofnaðar eru fyrir vissan tíma.

Hv. þm. G.-K. var enn með þá villu, að hægt hefði verið að veita lánin með þeim kjörum, sem ákveðin eru í eldri l. og breyta síðan þeim ákvæðum á Alþ. (ÓTh: Margar leiðir opnar til lausnar!). Það getur verið, að þeim virðist margar leiðir opnar, sem ekki vita, hvernig þessu er fyrir komið. En það liggur í augum uppi, að þegar búið var að veita lánin og afhenda bréfin, gat Alþ. ekki breytt afborgunarákvæðunum nema á þann hátt að leggja fram peninga til jafns við það, sem eldri l. gera ráð fyrir hraðari afborgunum en bráðabirgðal. Hér hefði því komið nýr og ekki óverulegur útgjaldaliður á ríkissjóð samkv. þessum ráðagerðum hv. þm. G.-K., því að vitanlega hefði orðið að fara eftir þeim ákvæðum, sem í bréfunum stóðu, eftir að þau komu í hendur skuldareigendum. Allt skraf hv. andstæðinga um þetta er byggt á skökkum forsendum, af því að þeir hafa ekki gert sér ljóst, hvernig þessum málum er fyrir komið. Er því ekki ástæða til að taka áminningar þeirra og aðfinnslur hér í d. mjög hátíðlega.