22.10.1934
Neðri deild: 16. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1128 í B-deild Alþingistíðinda. (1517)

19. mál, varnir gegn því að verða barnshafandi og fóstureyðingar

Magnús Torfason:

Ég hefi leyft mér að bera hér fram brtt. við 1. gr. frv. Ástæðan til þess er sú, að ég tel 2. málsl. þessarar gr. alveg óþarfan, þar sem ég lít svo á, að þeir, sem hér eiga hlut að máli, muni rata leiðina án lagaleiðbeininga. Ég tel ekki heldur rétt að skylda lækna til að gefa slíkar leiðbeiningar, og þykir jafnvel vafasamt, að það sé unnt, svo víðtæk sem þessi skylda á að vera, þar sem hún á ekki aðeins að ná til héraðslækna, heldur og allra annara lækna og sérfræðinga. Ég er ekki viss um, að þeir séu skyldugir til þess að inna þetta af hendi, sízt þar sem ekki er til tekið í frv., að þeir eigi að fá neina þóknun fyrir.

Ég skal játa, að mér er að vísu ókunnugt um, í hverju slík leiðbeiningarstarfsemi er fólgin eða hve mikilvæg hún er, en þær ástæður, sem ég nú taldi, eru til þess, að ég vil ekki láta lögleiða slíka leiðbeiningarskyldu hér, sízt þar sem grg. frv. bendir til þess, að slík skylda tíðkist hvergi í Guðs kristni.

Ég er ekki í neinum vafa um það, að lögleiðing slíks ákvæðis sem þessa myndi leiða til mikilla skemmda á þeim hluta mannkynsins, sem hér á hlut að máli, og jafnvel hinum líka. Ég er t. d. í engum vafa um það, að kynsjúkdómar myndu aukazt stórkostlega, ef þetta væri í lög leitt, og ég vil benda á það, að sveitirnar eru alveg varnarlausar gagnvart þeim vágesti. Og þess verður að krefjast, að verði þetta ákvæði að lögum, verði um leið lögfestar reglur og fyrirskipanir til hjálpar gegn kynsjúkdómum, enda gæti ég trúað, að löggjöf um þau efni væri nú þegar fullt eins aðkallandi.

Ég gat þess, að ég vissi ekki til, að slíkt væri í lög leitt neinsstaðar annarsstaðar, og liggja til þess mikilvægar ástæður.

Það er ekki annað sýnna en að löggjöfin sé hér sérstaklega að vinna að því, að hér hefjist mikil mannfækkunaröld. Menn hafa að vísu haft ýmsar skoðanir á þessu atriði, en þó er það svo, að jafnvel þjóðir, sem byggja þéttbýl lönd og eiga fullt í fangi með að sjá fyrir sínum, hafa ekki gripið til þeirra ráða að fækka mannfólkinu á þann hátt, sem frv. gerir ráð fyrir. Að vísu liggja oft til þessa þær sérstöku ástæður, að þau vilja hafa sem flesta þegna til varnar sínu landi. Þá ástæðu getum við ekki borið fram hér, þar sem landið er hlutlaust. En við höfum sannarlega stríð að heyja fyrir því. Þetta stóra land, sem allt er óræktað að heita má, en þó fullt af möguleikum, byggja 100 þús. sálir. Og þó er löggjöfin að gera gildringar til þess með frv. eins og þessu, að fólki fækki en fjölgi ekki. Einnig frá þessu sjónarmiði er mjög varhugavert að leiða þau ákvæði frv., sem lengst ganga, í lög.

Í allri vorri sjálfstæðisbaráttu hefir undirstaðan verið sú, að þessi þjóð ætti sér mikla framtíð fyrir höndum. Þessi trú hefir gert það að verkum, að vér höfum tekið þá ábyrgð á oss að verða sjálfstæð þjóð. Hefðum vér séð fram á það þá, að þessi þjóð ætti ekki fyrir höndum að vaxa, hefðum vér verið mjög varkárir í því að taka á oss slíka ábyrgð. Enginn vafi er á því, að þjóðin ætti með réttu að geta gert sér vonir um að stækka í þessu landi, og einmitt þess vegna njótum við virðingar meðal annara þjóða, þótt sú virðing megi að vísu ekki minni vera, en nú er verið að draga úr eða jafnvel eyða þessum vonum.

Ég vænti þess því, að hv. þdm. sjái, að það er ekki að ástæðulausu, að þessi brtt. er borin fram. Ég vil að lokum geta þess að mér virðist 3. málsgr. í 1. gr. vera næg til þess að ná takmarki laganna og í meira samræmi við höfuðtilgang þeirra að vissu leyti en 2. málsgr. Ég hefi ástæðu til að ætla, að höfundur laganna líti svo á, að fyrirmæli 2. málsgr. séu enginn höfuðtilgangur. Í 3. málsgr. er sagt, að „ráðherra gefi út og landlæknir fái læknum í hendur leiðbeiningar fyrir konur um varnir gegn því að verða barnshafandi“. Þetta lít ég svo á, að sé alveg nægilegt og rétt að það standi, einkum þar sem ekki verður séð annað en að landlæknir hafi ekki treyst læknum til að gefa leiðbeiningar sínar leiðbeiningalaust.

Vænti ég þess, að hv. deild taki brtt. mínar til greina, þar sem hún getur ekki skaðað aðaltilgang frv. að neinu leyti, en þingið kemst jafnframt hjá að lögleiða atriði, sem a. m. k. geta orðið mjög deildar skoðanir um.