20.11.1934
Efri deild: 43. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1161 í B-deild Alþingistíðinda. (1537)
19. mál, varnir gegn því að verða barnshafandi og fóstureyðingar
Guðrún Lárusdóttir:
Herra forseti. Ég á örfáar brtt. við þetta frv., sem ég þarf að segja fáein orð um. Ég hefi áður látið í ljós skoðun mína á málinu og gert grein fyrir því, sem ég hefi við það að athuga, og ætla því ekki að lengja mikið umr. í þetta sinn, en geri aðeins stuttlega grein fyrir því, á hverju brtt. mínar eru byggðar.
Fyrsta brtt. mín er við 2. málsgr. 1. gr., þar sem læknum er ætlað það skyldustarf að veita konum yfir höfuð þá læknisaðgerð, sem þar um ræðir. Mér finnst það vera í samræmi við anda og tilgang frv., að bæta inn í gr. orðunum „sjúk eða veikluð“. Þetta ber ég fram samkv. því áliti mínu á málinu, að konur eigi ekki að leita læknis í þessum tilgangi, nema þær séu sjúkar eða veiklaðar.
Önnur brtt. mín, við 2. gr., er sama eðlis, að læknum skuli aðeins heimilt að framkvæma þær aðgerðir, sem þar er um rætt, ef um sjúkdómshættu eða lífshættu er að ræða fyrir konuna. Ég álít þetta svo alvarlegt mál og mikilsvert, að fóstureyðing megi ekki koma til greina, nema um alvarlega sjúkdómshættu sé að ræða fyrir konuna, og því vil ég fella þessi orð úr gr., sem brtt. tiltekur. Mér finnst, að þetta hvorttveggja megi missa sig úr frv. að skaðlausu.
Þriðja brtt., á þskj. 516, er mjög smávægileg, hún er við 3. gr. Mér finnst, að þetta orð í frv.gr. - „framkalla“ (fæðingu) sé ef til vill óíslenzkulegt, enda þótti það sé almennt notað, og datt mér því í hug að bera fram brtt. um að nota orðið „valda“ (fæðingu) í þess stað. Önnur brtt. hefir komið fram um þetta, frá hv. 2. þm. Rang., að í stað orðsins „framkalla“, komi „vekja“ (fæðingu), og er það ef til vill viðfelldnara, ég geri lítinn greinarmun á því.
Þá kem ég að 9. gr. frv., sem mestum ágreiningi hefir valdið og deilum í umr. um frv. Ég flyt brtt. við hana á þskj. 504, um að fella nokkur orð úr greininni, síðustu málsgr. og bæta við hana nokkrum setningum. Ég hefi áður tekið skýrt fram skoðun mína á því, að erfiðar heimilisástæður þungaðra kvenna og annað því um líkt, sem þjóðfélagið getur bætt úr á annan hátt, megi ekki koma til greina sem tilefni þeirra læknisaðgerða, er frv. gerir ráð fyrir. Þess vegna hefi ég lagt það til, að sá hluti 9. gr., sem fjallar um þessar heimilisástæður, verði sérstök málsgr., svo sem sjá má á þskj. 504, og breytt efnislega, þannig, að við mat á því, hverskonar ástæður þungaðra kvenna geti gefið tilefni til fóstureyðinga, þá skuli þær einungis vera miðaðar við heilsufar konunnar, og ef of skammt er liðið frá síðasta barnsburði. Þetta tel ég lögmætar ástæður, en álít hinsvegar, að það megi ekki hafa hliðsjón af bágbornum heimilisástæðum konunnar í þessu augnamiði, heldur legg ég það til í brtt. minni, að í slíkum tilfellum skuli lækni vera skylt að tilkynna það viðkomandi fátækrastjórn, sem tafarlaust taki umkvörtun hans til greina og bæti kjör konunnar á viðeigandi hátt.
Ég vona, að hv. þdm. þyki þessi brtt. í alla staði réttmæt og sýnist eins og mér, að það sé fullkomin ástæða til þess, að fátækar konur hugsi til þess með kvíða, ef þjóðfélagið býður þeim ekki önnur úrræði til að bæta úr hörmungum þeirra en þær læknisaðgerðir, sem frv. gerir ráð fyrir.
Ég vona, að hv. þdm. sjái við nánari athugun, að samkv. brtt. minni er tekið ólíkt mannúðlegar í strenginn. Og ég fæ ekki séð, að sú ákvörðun, sem felst í brtt., raski á nokkurn hátt aðaltilgangi frv. - Þvert á móti.
Þá á ég aðeins eftir að minnast á lítilsháttar brtt. við 10. gr., þess efnis, að á eftir orðunum „tveggja lækna“ í 2. tölul. komi: og umsögn lögskipaðrar ljósmóður. Ég lít svo á, að í mörgum kringumstæðum hafi ljósmæður verið barnamæðrum ráðhollastar í erfiðleikum þeirra, og ef til vill þeirra eina traust. Og með því að ég álít, að ljósmæður geti enn, eins og áður, verið heppilegustu ráðunautar heimilanna í mörgum tilfellum, þá finnst mér ekki úr vegi, að þær séu nefndar ásamt læknunum í sambandi við þetta mál.