04.12.1934
Efri deild: 52. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1166 í B-deild Alþingistíðinda. (1546)
19. mál, varnir gegn því að verða barnshafandi og fóstureyðingar
Jónas Jónsson [óyfirl.]:
Ég flutti fyrir alllöngu 2 brtt. við þetta frv. Eftir að ég hafði gert brtt. á þskj. 530, þótti mér þó varlegra að orða fyrra hl. hennar öðruvísi, og er það á þskj. 533.
Ég vil ekki neita því, að mér finnst nokkur nauðsyn að taka þetta mál til meðferðar. En ég fæ ekki séð, að till. landlæknis sé varanleg úrlausn, því að þetta mál hefir enn verið lítið rætt opinberlega, og er skrefið stórt frá því, er fóstureyðingar hafa verið glæpsamlegar og varðað margra ára fangelsisvist, og til þess, að þær verði leyfilegar. Við svo mikla breyt. þarf náinnar athugunar. Hinsvegar skil ég, að það, sem knýr hæstv. stj. til að flytja þetta frv., er, að fóstureyðingar eru nú orðnar svo algengar hér, að talsvert margir læknar fremja glæp, sem þeir ættu að sitja mörg ár í tugthúsi fyrir. Grg. frv. játar, að þetta sé komið á slíkt stig. Auk þess má skilja af röksemdum landlæknis, að þetta sé komið á enn meiri glapstigu að því leyti, að leikfólk fáist mjög við þessar aðgerðir á þann hátt, að heilsu kvenna stafar af stórhætta.
Mér skilst, að síðustu ár hafi orðið nokkur breyt. á þessum hlutum. Það var venja fyrir svo sem 20 árum, að feður, sem voru hátt á strái og áttu börn utan hjónabands, sendu ungar varnarlausar stúlkur til útlanda, til þess að láta þær fæða börn á fæðingarheimili, þannig að þeim var óákveðin framtíð búin, eða þá að þær voru sendar á fóstureyðingastöð. Þetta var ekkert skemmtileg venja. En þegar sjálfstæðistilfinning vor jókst, fór læknastéttin hér að leyfa sér að reka þessa iðn, sem er orðin miklu stórfelldari en grg. landlæknis sýnir. Héraðalæknir hér skammt frá Rvík sagði mér, að til hans kæmi árlega fjöldi kvenna, giftra og ógiftra, sem óskuðu, að hann eyddi fyrir þeim fóstri. Hann kvaðst þá segja þeim, að til þess hefði hann ekkert leyfi, og færu þær síðan til Rvíkur og kæmu aftur, eins og ekkert hefði að orðið, og ályktaði hann, að fóstrunum hefði verið eytt þar.
Rökin fyrir breytingum í þessu efni eru þau, að fyrst þessi venja er orðin svona útbreidd og fyrst lögin geta engu þar um breytt, þá sé ekkert annað ráð en að breyta l. Vegna þessara röksemda sé ég mér ekki fært að rísa á móti frv. á þann hátt, sem ég hefði annars kosið. Læt ég mér því nægja að bera fram þessar 2 brtt. Önnur er þess efnis, að málið skuli aftur tekið til endurskoðunar á þingi, 1936, og vil ég þar með slá því föstu, að þar sem málið er svo þýðingarmikið, þá verði þessi lausn að teljast aðeins til bráðabirgða. Held ég, að til séu margar lausnir aðrar. Hin till. er þess efnis, að betur sé gengið frá því en landlæknir ætlast til, að fóstureyðingar séu ekki framkvæmdar nema við skilyrði, sem eru forsvaranleg frá heilbrigðilegu sjónarmiði. Landlæknir telur nóg, að tveir læknar, hvor öðrum óháður, komi sér saman um, að þetta skuli gera. Ég legg til, að valdir séu til að skera úr um þetta þeir 4 menn í landinu, sem bezt þekkja til þessara hluta, landlæknir og yfirlæknar landsspítalans. Eiga þeir svo að benda á lækna, sem trúandi sé til að framkvæma aðgerðina. Landspítalalæknarnir kenna læknaefnum í 6 ár og þekkja því bezt til lækna yfirleitt. Landlæknir er auðvitað, aðstöðu sinnar vegna, sjálfsagður til þessara hluta. Hingað til hafa leikmenn, og þá helzt lögfræðingar, haft úrskurðarvald í þessu, en þeir menn hafa ekki þá þekkingu til að bera, sem með þarf, og verða því að styðjast við annara dóm. Ég held, að tryggilega sé séð fyrir þessu atriði með till. minni, og gæti ég því látið hér staðar numið. En ég vil þó bæta við nokkrum orðum.
Ég er samdóma hv. 5. landsk., sem hefir einna mest andæft þessu frv. Fóstureyðingar eru eðlilegar og sjálfsagðar, ef víst er, að fóstrið eða móðirin séu veik. En hinar ástæðurnar eru lítils virði, sem sé þær mannfélagslegu ástæður, sem oft eru í því fólgnar, að faðirinn er of vel settur til að vilja kannast við barn sitt, og einstöku sinnum líka fátækt. Það voru aðallega þessar mannfélagslegu ástæður, sem ollu því, að konur voru sendar til annara landa, í því skyni að fæða þar börn til að deyja. Má í þessu sambandi minna á sögur skáldsins Zola. Í einni af sögum hans segir frá fóstru, sem hafði undir höndum slík óskilgetin börn og ók þeim út á svalir, þegar veður var hentugt, svo að þau fengu lungnabólgu og dóu. Hún hafði þennan starfa upp á akkorð, og hennar hagnaður var þess vegna því meiri sem börnin lifðu skemur. Ég hefi enga tryggingu fyrir því, að betur sé séð fyrir þessum börnum af hálfu íslenzkra feðra, sem senda barnsmóður sína til annara landa til að fæða börnin.
Hinni ástæðunni, fátæktinni, er hægt að gera við. Það er fjárhagslegt mál. Ef þjóðfélagið segir við foreldrana: Við skulum taka börnin og ala þau upp, í stað þess að deyða þau, þá er það annað svar. Íslenzka mannfélagið á að gefa slíkt svar. Þau heilbrigð börn, sem eiga að fæðast, en eiga svo fátæka foreldra, að þeir geta ekki séð fyrir þeim, eiga að hafa víst athvarf hjá mannfélaginu. Mannfélagið myndi áreiðanlega búa öðruvísi að börnunum en franska fóstran. En þetta er allt óundirbúið enn. Íslenzka mannfélagið veit ekki, að konur hafa verið sendar í tugatali til útlanda í þessu skyni, og það veit ekki heldur, fyrr en af frv. landlæknis, hve þessar fóstureyðingar eru komnar á hátt stig.
Þá er annað atriði, sem við kemur hinu íslenzka mannfélagi, en það er að breyta almenningsálitinu þannig, að konur bíði ekki meira álitstjón en karlmenn við að eiga börn utan hjónabands. Við þurfum ekki annað en að lesa bók, sem ekki er nema rúmlega 100 ára gömul, til að finna átakanlegt dæmi um afstöðu almenningsálitsins til slíkrar konu. Hin unga kona, sem þar ræðir um, kemur út að brunni og heyrir, hvernig fólk talar um stúlku, sem alið hafði óskilgetið barn. Hún finnur þar sinn dóm. Þetta og þvílíkt hefir hér á landi verið ein aðalástæðan fyrir þeim fóstureyðingum, sem leikmenn hafa framkvæmt.
Ef hið íslenzka mannfélag vildi vera réttlátt og hætta að grýta konuna, en láta hana sæta sama dómi og föðurinn, væri stærsta steininum velt úr götu læknanna. Það er þessi óskaplegi dómur, sem konan á yfir höfði sér, sem veldur miklu af fóstureyðingunum. En það er ekki hægt að breyta þessum dómi með lagaboði, heldur er margt annað, sem hægt væri að gera og mundi breyta afstöðu konunnar, svo sem meira atvinnufrelsi og aukið sjálfstæði.
Þá vil ég minnast á eina hlið á þessu máli, sem veldur því, að sú leið, sem hér er stungið upp á, er ekki nema til bráðabirgða. Það er sú sálarlega hætta, sem konunni stafar af því að eyða fóstri. Ég ætla ekki að tala um þá líkamlegu hættu; ég vil ekki með mínu leikmannsviti leggja neinn dóm á hana. En það er hin hliðin, sem menn reikna yfirleitt ekki með, sú óskaplega sálarlega hætta, sem liggur í því, ef kona, sem gengur með barn, lætur losa sig við það - oft einungis til þess að flýja undan hinum þungu dómum samfélagsins. Og e. t. v. auðnast konunni ekki að eignast afkvæmi eftir þetta hversu heitt, sem hún þráir það. Það er margt út á við, sem getur dreift huga karlmannsins, en það er nokkuð annað með konuna, sem e. t. v. situr ein heima í vonlausri þrá eftir að eignast barn og fá að hugsa um það og ala upp. Og sú gamla kona mun oft líta á þetta sem óbætanlega bernskuyfirsjón, er hún sem ístöðulítill einstæðingur hefir verið hrædd til að gera, af kaldgeðja karlmanni, er vildi sleppa undan skömm og erfiði. Ég býst við, að allir, sem hér eru inni, þekki eitthvað þessu líkt. Ég þekki efnaða konu, sem hafði látið eyða fóstri, og þjáðist svo stöðugt af blygðunartilfinningu yfir að hafa morð á samvizkunni, auk þess að fá ekki að njóta þeirrar hamingju að fá að ala upp barn.
Ég sé svo ekki ástæðu til þess að fjölyrða um þetta mál. Það er ekkert flokksmál og ekki heldur neitt hitamál; það er of stórt þjóðfélagsmál til þess. Þó mín till. verði ekki samþ. nú. verður hún tekin upp aftur. Þetta er allt of stórt mál til þess að afgr. það nú, og ætti því að lofa því að hvíla sig.