04.12.1934
Efri deild: 52. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1172 í B-deild Alþingistíðinda. (1550)

19. mál, varnir gegn því að verða barnshafandi og fóstureyðingar

Atvmrh. (Haraldur Guðmundsson) [óyfirl.]:

Ég get ekki fallizt á dagskrána, sem hér er komin fram. Ég er hissa á, að hún skuli komin fram, og þeim forsendum, er hv. þm. hefir fyrir henni.

Það er ekki hægt að una því, að fóstureyðingar séu jafnvíðtækar og sýnt er fram á í grg. frv., án þess að eitthvað sé aðhafzt. Það er viðurkennt, að ástandið sé slæmt, og þýðir ekki að loka augunum fyrir því. Það er ekki hægt að ráða bót á þessum málum nema að leyfa að framkvæma fóstureyðingar í þeim tilfellum, er sjúkdómsástæður koma til greina; í öllum öðrum tilfellum er það bannað. Hver, sem reynir að fresta málinu, vinnur þar með að því, að ástandið haldist óbreytt.

Brtt. á þskj. 504, frá hv. 5. landsk., er ég ekki sammála. Þær eru þær sömu að efni og till. er fram komu við 2. umr., og læt ég því nægja að vísa til þess, er ég sagði þá. Viðvíkjandi brtt. við 1. gr. er það að segja að betra væri að fella málsgr. alveg niður, því að ef þessum orðum verður bætt inn, þá fellur þessi málsgr. undir 1. málsgr. sömu gr.

2. brtt., við 2. gr., um að fella burt þar tilgreind orð, sé ég ekki betur en dragi úr gagnsemi frv. Sama er að segja um brtt. við 9. gr. Ég er í rauninni ekki á móti 4. brtt., við 10. gr., en í sumum tilfellum getur það verið erfitt að kalla til tvo lækna og eina ljósmóður og getur valdið töfum. Mér er ekki heldur ljóst, að fyllri trygging fáist, þótt bætt sé við einni ljósmóður, en í frv. nú er gert ráð fyrir tveimur læknum. (GL: Það er oft leitað til ljósmóðurinnar fyrst). Já, það má vel vera, en það er engin þörf á að binda það í l.

Viðvíkjandi brtt. á þskj. 644, frá hv. 10. landsk., er það að segja, að mér virðist hún þýðingarlaus. Í mörgum búðum eru prentaðar leiðbeiningar í þessum efnum og ekki hægt að stemma stigu fyrir því á þennan hátt. Vitaskuld fer enginn að setja sig niður til þess að stunda slíkur leiðbeiningar, aðrir en læknar. - Um breyt. á orðalaginu í 7. málsgr. 3. gr. skiptir ekki miklu máli, en ég held, að orðalag frv. sé bezt.

Viðvíkjandi brtt. á þskj. 530 er það að segja um fyrri brtt., að mér fannst fyrst, að ég gæti fallizt á hana, en við nánari athugun sé ég, að ég get ekki fallizt á hana.

Ég er sammála hv. 1. þm. Reykv. um það, að óviðkunnanlegt sé að gera ráð fyrir sérstakri löggildingu í þessu efni. Þessi aðgerð má samkv. frv. ekki fara fram nema á viðurkenndum sjúkrahúsum, og virðist það nægilegt. Að veita ákveðnum mönnum rétt til þessa, finnst mér óviðkunnanlegt, og greiði því atkv. á móti því.

Viðvíkjandi síðari brtt. á þskj. 530 er það að segja, að ég hygg, að sá tími, er þar er tiltekinn, sé of stuttur, þar sem ekki er kostur á að fá skýrslur um þessi efni fyrr en á miðju ári 1936. Ef ástæða er til að endurskoða 1., þá er þetta of skammur reynslutími, enda óþarfi að setja ákvæði um þetta í l. Það sýnir sig fljótt, hvort l. eru í samræmi við almenningsálitið, og breyt. verða þá gerðar á 1., ef almenningur sættir sig ekki við þau. Það er ástæðulaust að binda sig við endurskoðun. - Ég vildi mæla með því, að allar brtt. væru felldar, svo að málið þyrfti ekki að fara aftur til Nd.