10.12.1934
Neðri deild: 55. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1176 í B-deild Alþingistíðinda. (1567)

19. mál, varnir gegn því að verða barnshafandi og fóstureyðingar

Thor Thors:

Ég vil geta þess, að ég fór fram á það á síðasta fundi, að máli þessu yrði frestað, svo að allshn. gæfi tekið það til nýrrar athugunar. Þetta fékkst ekki. Ég vil láta þess getið, að eina breytingin, sem gerð var á frv. í hv. Ed., var sú, að felld var burt úr því 10. gr. Sú grein hefir verið nokkurt ágreiningsefni, og tel ég því að brottfelling hennar geri frv. aðgengilegra.