09.10.1934
Efri deild: 6. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1488 í B-deild Alþingistíðinda. (1577)
31. mál, sala mjólkur og rjóma
Forsrh. (Hermann Jónasson):
Hv. 10. landsk. fór fram á það, að ég léti frv. fara í hendur n. Það er hægt að verða við þeirri ósk. Ég vil taka fram, að þetta frv. er að efninu til að mestu leyti það sama, nema að því er snertir skipun n. Þegar reynt hefir verið að ná samkomulagi um þetta mál, hafa nm. verið látnir vita um það. Frv. er ekki lagt fram eins og það kom frá n. Það er samið í flýti, og er það ekki að öllu leyti í frv.formi sökum þess. Af þessari ástæðu hefi ég fengið málið fært í frv. í formi, sem viðunandi þótti.