13.11.1934
Efri deild: 37. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1498 í B-deild Alþingistíðinda. (1582)
31. mál, sala mjólkur og rjóma
Magnús Guðmundsson:
Ég vildi fara nokkrum orðum um nál. á þskj. 361. Það er ritað á þann hátt, sem enginn annar en hv. þm. S.-Þ. ritar nál.
Það á að vera saga málsins, en hún er svo fölsuð í verulegum atriðum, að mjög er leitt, ef plagg þetta yrði lagt til grundvallar um gang þessa máls. Til þess að leiðrétta nokkrar af þeim aragrúa missagna, sem eru í þessu nál., ætla ég með fáum orðum að benda á það, sem áður hefir gerzt í þessu máli. — Hv. þm. S.-Þ., sem hefir samið nál., segir, að á þingi 1932 hafi Bjarni Ásgeirsson flutt mjólkurmálið inn í þingið. Þetta er ósatt, það var landbn. Nd., sem gerði það, — mér er vel kunnugt um þetta, því að ég átti þá sæti í n., — og frv. var útbúið af búnaðarþinginu. — Höfundur nál. lætur í veðri vaka, að frá því fyrsta hafi jafnaðarmenn barizt við hlið Framsfl. í þessu máli, og að þeim flokkum beri allur heiður af því. Ég skal sýna fram á, hvernig jafnaðarmenn snerust við málinu á þingi 1932, með því að lesa upp nokkur orð úr ræðu hv. 2. þm. Reykv. — Hann segir svo:
„Jafnaðarmennirnir í bæjarstj. hafa barizt fyrir því í mörg ár, að bærinn kæmi upp fullkomnu kúabúi, fyrst hann á nóg landrými, og gæti slíkt bú vafalaust fullnægt þörfum bæjarins. Þetta er ólíkt skynsamlegri leið en sú, sem farin hefir verið, að teygja mjólkurkaup bæjarins alltaf lengra og lengra burt frá honum. En verði þetta frv. samþ., mundu slík bæjarkúabú lenda undir stjórn sveitanna, og álít ég það mjög óheppilegt“.
Hv. 2. þm. Reykv. segir þarna skýrum stöfum, að það sé og hafi verið stefna jafnaðarmanna í þessu máli að koma upp svo stóru mjólkurbúi í Rvík, að enga mjólk þurfi að kaupa þar að. Og í samræmi við þetta var afstaða hinna flokksbræðra hans. — En í nál. stendur eftirfarandi klausa:
Jafnhliða þessu létu leiðtogar íhaldsins í Rvík hafa eftir sér, að þeir myndu nota sér einkasölulögin frá 1917 og láta bæinn verzla sjálfan með mjólk, og þá fyrst og fremst kaupa af bæjarmönnum og beztu vinum sínum í nágrenninu“.
Hv. 2. þm. Reykv. ásakar sjálfstæðismenn fyrir það, að hafa ekki viljað koma upp svo öflugu mjólkurbúi í Rvík, að enga mjólk hefði þurft að kaupa að. En hv. þm. S.-Þ. talar um það í ásökunartón, að sjálfstæðismenn hafi viljað nota mjólkurl. frá 1917 til þess að taka alla mjólkursölu í hendur bæjarins. Ekki ber þeim nú sem bezt saman, þessum hv. flokksbræðrum. (JJ: Ekki erum við nú flokksbræður!). Ég held, að óhætt sé að nefna þessa hv. þm. flokksbræður, a. m. k. hálfbræður. En svona er málið flutt úti um sveitir landsins. Á fundi í Landeyjum fyrir skömmu reis þar upp bóndi og sagði, að undarlegt væri, að þar hefði málið verið flutt svo, að allir sjálfstæðismenn væru andvígir málinu, og af þeim ástæðum hefði stj. orðið að lækka mjólkurverðið til þess að halda hylli jafnaðarmanna, — annars hefði málið ekki gengið fram. En svona er þetta ekki. Hér er öllu snúið öfugt. Á þingi 1932 gekk málið í gegnum Nd., og mætti þar lítilli mótstöðu af hálfu annara en jafnaðarmanna, og var samþ. þar með 16:2 atkv. En svo dagar málið uppi í Ed. Og þá hafði hv. þm. S.-Þ. ekki meiri áhuga á þessu máli en svo, að hann tók ekki til máls um það. Og á þingi 1933 var dugnaður hv. þm. S.-Þ. ekki meiri en svo, að hann lét limlesta málið í höndum sínum eftir slælega vörn. Og þess er hvergi getið, að 1. flm. frv. á þingi 1933 var hv. þm. G.-K., og kemur það illa heim við þá fullyrðingu, að Sjálfstfl. hafi alltaf verið á móti málinu, og því hafi verið hrundið fram af hv. þm. S.-Þ. og flokki hans eingöngu. Ég skal svo ekki eyða löngu máli til þess að ræða nál. Í því er frekar veitzt að hv. 10. landsk. en mér hvað snertir afskipti stj. okkar af framkvæmd l. Þó vil ég leiðrétta það ranghermi, að ég hafi gefið fyrirskipun um að stöðva það mjólkurmál, er til dómstólanna kom. Það eina, sem ég gerði í þessu máli, var að fresta framkvæmd dómsins yfir hvítasunnuna, með samtali við fulltrúa lögreglustjóra. Síðan var ekki frekar um það talað. Ef hæstv. forsrh. vefengir þetta, skal ég lesa upp bréf, sem taka af öll tvímæli í þessu efni. (Forsrh.: Ég vefengi ummæli hv. þm.). Hvað er ósatt í þeim? (Forsrh.: Það er ósatt, að ráðh. hafi ekki stöðvað málið). Ég skal þá lesa upp þessi bréf, svo að hæstv. forsrh. verði að renna þessari staðhæfingu niður aftur. — Fyrsta bréfið er frá honum sjálfum sem lögreglustjóra í Reykjavík, dagsett 23. des. Það hljóðar svo:
„Hér með leyfi ég mér allra virðingarfyllst að senda hinu háa ráðuneyti dómsgerðir í málinu: Valdstjórnin gegn Jafet Sigurðssyni.
Bera dómsgerðirnar það með sér, að dómfelldur hefir óskað dóminum skotið til hæstaréttar.
Þar sem dómi þessum er áfrýjað, kemur það hér með undir úrskurð ráðuneytisins hvenær fullnægja beri dómi þessum og mörgum hliðstæðum, er á eftir koma, með því að banna algerlega sölu á ógerilsneyddri mjólk framleiddri utan lögsagnarumdæmisins. Ef ráðuneytið tekur þann kostinn að láta fullnægja dóminum áður en fullnaðardómur hæstaréttar er genginn í máli þessu, þá vil ég þó mjög eindregið leggja það til, að fullnustunni verði minnsta kosti frestað fram yfir hátíðar, því ella mundi valdið fyrirvaralítið og nú um hátíðirnar óverjandi truflun og óþægindum fyrir alla aðila þessa máls.
(Sign.) Hermann Jónasson“.
Hér kemur hæstv. forsrh. sjálfur með till. um að fresta framkvæmd dóms þessa yfir hátíðar, nákvæmlega eins og ég gerði, aðeins er hér að ræða um jólahátíðina, en í hinu var það hvítasunnan. Þessu svarar dómsmrn. með bréfi, dags. 29. des. 1933, svo hljóðandi:
„Til lögreglustjórans í Reykjavík.
Hérmeð sendir ráðuneytið yður dómsgerðir undirréttarins í málinu: Valdstjórnin gegn Jafet Sigurðssyni.
Er þess beiðzt, að þér látið birta fyrir dómfellda áfrýjunarstefnu þá til hæstaréttar, sem rituð er á dómsgerðirnar, og endursendið síðan dómsgerðirnar hingað með venjulegri áritun um birtingu. Jafnframt tekur ráðuneytið það fram, að lögreglunni ber auðvitað að sjá um, að enginn selji mjólk gegn skýlausum fyrirmælum laga nr. 97 frá 1933, hvað sem líður áfrýjun þessa máls“.
Hvernig er hægt að gefa skýrari fyrirskipanir en þetta. Málinu var áfrýjað, en sagt, að lögreglustjóra beri að sjá til, að ákvæðum 1. um sölu ógerilsneyddrar mjólkur skyldi hlýtt. Samt leyfir hæstv. ráðh. sér að vefengja orð mín, og þó þekkir hann þessi bréf. 29. des. fær lögreglustjóri fyrirmæli um að framfylgja l., hvað sem líði áfrýjun þessa máls. Samt er sagt í nál., að ég hafi gert tilraun til þess að stöðva málið. Mig furðar það nokkuð, að hv. 1. þm. N.-M. skuli skrifa athugasemdalaust undir þetta nál.; ég hefi haft það álit á þessum hv. þm., að hann mundi ekki skrifa undir það, sem bersýnilega er rangt með farið. Aftur á móti undrast enginn slíkt um hv. þm. S.-Þ. — Hv. 1. landsk. hefir verið svo sniðugur að skrifa undir nál. með fyrirvara, og bak við þann fyrirvara getur hann hulið sína persónu.
En úr því að ég stóð upp, er rétt að gera fyrirspurn til hæstv. forsrh. Hvort er tilætlunin, að Borgarfjörður fylgi viðskiptasvæði Reykjavíkur eða ekki? Um þetta fer tvennum sögum, og er því æskilegt að vita það rétta.
Annars hefi ég aldrei dregið neina dul á, að ég væri því samþykkur að brýna nauðsyn bæri til að skipuleggja mjólkursöluna. En það verður að taka hæfilegt tillit til allra aðila, og það er aðalvandi málsins að finna þar rétta leið. Ég hefi nokkuð athugað þetta mál og mun koma fram með brtt. við 3. umr. Ég vil þó nú þegar benda á þau ákvæði í 5. gr. frv., sem gera mjólkurbúunum að skyldu að hafa ávallt næga mjólk til þess að fullnægja eftirspurn. Ég vil vekja athygli hv. þm. á, hvort hér muni ekki vera of þung byrði lögð á mjólkurbúin, að þau ábyrgist að hafa allt af nóga mjólk og rjóma til sölu. Ég sé ekki betur en að það geti komið fyrir þeir tímar, að flutningar stöðvist vegna illviðra og snjóa, — og hvernig eiga þá mjólkurbúin að sjá um, að nóg sé til af mjólk og rjóma? — Ég skal svo í bili ekki tefja umr. með lengra máli, en áskil mér rétt til að svara hæstv. forsrh., þegar hann hefir flutt sín andmæli, sem ég býst við, að hann a. m. k. reyni að gera.