13.11.1934
Efri deild: 37. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1522 í B-deild Alþingistíðinda. (1586)
31. mál, sala mjólkur og rjóma
Forsrh. (Hermann Jónasson) [óyfirl.]:
Mér leiðist nú satt að segja að vera að pexa lengur við hv. 1. þm. Skagf., sem er nú eins og hann er vanur að reyna að blása sig út af rakalausu og dauðleiðinlegu þrætunöldri. Það má strax koma með það sem dæmi um röksemdafærslu hans, er hann sagði síðast í ræðu sinni, að neytendur munaði ekkert um mjólkurlækkunina, þótt bændur munaði um hana yfir lengri tíma! Eins og lækkunin haldist ekki jafnlangan tíma hjá báðum aðilum!
Ég skal nú reka ofan í hann helztu fjarstæðurnar og ósannindin, sem hann fór með, og mun ég fara fljótt yfir sögu, því nærri liggur, að það sé lítillækkun í því að eiga orðastað við þennan hv. þm.
Ég skal ekki endurtaka mikið af því, sem ég hefi sagt áður, en ég vil fyrst minnast nokkru nánar á bréfið frá 29. des. Hv. 1. þm. Skagf. játar nú, að með því hafi ekki verið gefin fyrirskipun um að fullnægja dóminum, heldur að framfylgja skýlausum ákvæðum laganna, sem engin voru meðan ekki var búið að kveða upp dóm um málið í hæstarétti. Hv. þm. sagði, að ég hefði sagt, að ekki ætti að koma í veg fyrir afbrot meðan mál væru undir áfrýjun. Ég sagði einmitt alveg hið gagnstæða, enda er mér alveg eins kunnugt um þá réttarvenju eins og honum, þar sem ég hefi framfylgt lögum síðustu 10 árin. En í þessu tilfelli taldi ég nokkurn vafa leika á því, að rétt væri að fullnægja dóminum þegar, þar sem hér var að ræða um fyrsta mál, sem höfðað var eftir mjólkurlögunum. Ég áleit að sönnu dóm minn yfir manninum réttan, en þó ekki vafalausan.
En annars tekur bréfið, sem dómsmrh. sendir til lögreglustjóraskrifstofunnar eftir að dómur hafði verið felldur í hæstarétti, um fullnægingu þess dóms, allan vafa af um þetta mál. Hvaða ráðh. myndi skrifa svona bréf aðfinnslulaust, ef hann hefði verið búinn að gefa samskonar fyrirskipun löngu áður án þess að henni væri hlýtt? Ég er ekki að álasa hv. l. þm. Skagf. fyrir þetta, og veit satt að segja ekki, hvort ég á að vera að rífa niður þá skopmynd af honum, sem hann hefir hér búið til. Hvers vegna er t. d. sá lögreglustjóri látinn sitja kyrr, sem þverskallast svo greinilega við fyrirskipunum ráðh. sem hv. l. þm. Skagf. vill heita láta, að ég hafi gert? (MG: Nú leggst hæstv. ráðherra lágt í blekkingunum). Þetta er staðreynd, sem hvert einasta mannsbarn skilur.
Þá var frammistaðan ekki burðugri, þegar hann kom að símtalinu við fulltrúann, er dómsmrn. fyrirskipaði svo í maí í vor, er lögunum hafði verið framfylgt gagnvart öllum öðrum en þeim, sem neituðu að hlýða þeim, nema búðum þeirra yrði lokað, að beðið skyldi með að framfylgja, lögunum gagnvart þeim, unz ráðuneytið léti lögreglustjóraskrifstofuna vita. Um þetta liggur fyrir embættisvottorð fulltrúans sem hann hefir gefið að viðlögðum drengskap. Hv. l. þm. Skagf. kvaðst leiða hjá sér að fara út í þetta atriði. Já, furða var! En hann spurði mig að því, ef þetta væri satt, hvernig stæði þá á hinni bréflegu fyrirspurn lögreglustjóraskrifstofunnar um þetta sama efni 1. júní. Það var einmitt ágætt, að hann minnti mig á þetta. Þegar ég talaði við fulltrúann og spurði hann, hvers vegna ekki væri komið svar úr dómsmrn., sagði ég honum, að ég treysti ekki á nein munnleg svör frá því ráðuneyti, og því yrði hann að krefjast svarsins bréflega. Það kom líka á daginn, að þrætt var fyrir hið munnlega samtal. Það kom sér því vel, að þetta bréf var sent, eins og mig hafði órað fyrir, 21. júní kemur svo svar við þessu bréfi, og það er þá á þá leið, að þetta sé lögreglumál, sem komi ráðuneytinu ekkert við.
Svo er sagt, að gefnar hafi verið munnlegar fyrirskipanir til lögreglunnar um að framkvæma lögin. Hvar í víðri veröld skyldi það nú vera gert, að hringt sé frá dómsmrh. til einhvers í lögreglunni og fyrirskipað á þann hátt að framkvæma lög.? Mér er ekki heldur kunnugt um, að nokkurntíma hafi verið hringt til lögreglunnar um þessi efni frá dómsmrn., enda fullkomin ástæða til að rengja, að svo hafi verið gert, eftir þá reynslu af fyrrv. dómsmrh., að hann þrætir fyrir samtöl við menn, þótt þau séu vottuð með embættiseiði. Enda mun það varla eða aldrei koma fyrir í stjórnarráðinu, að þar séu gefnar fyrirskipanir öðruvísi en skriflega.
Þá vil ég drepa lítið eitt á þá fáránlegu blekkingu fyrrv. dómsmrh., er hann segir, að hann hafi ekki áfrýjað sýknudómi, sem kveðinn var upp yfir manni á þeim grundvelli, að þá höfðu engin mjólkurbú verið löggilt, vegna þess að hann hafi ekki viljað tefja framkvæmd mjólkurlaganna með áfrýjun! Daginn eftir var annar maður dæmdur sektardómi, því að þá var búið að löggilda búin, og þeim dómi var áfrýjað til hæstaréttar. Ef dómsmrh. hefði látið sér detta í hug, að fyrri maðurinn væri sekur, bar honum tvímælalaus skylda til þess að áfrýja einnig máli hans til hæstaréttar. En ráðh. gerði það ekki af því, að hann vissi, að ég hafði sýknað manninn á réttum grundvelli og hann myndi líka fá sýknudóm í hæstarétti.
Hv. 1. þm. Skagf. var að tala um, að ég væri grunnhygginn, og það er satt, að ég er enginn spekingur að viti. En ég held, að hv. þm. hefði sjálfur sýnt mest vit með því að þegja í þetta skipti.