21.11.1934
Efri deild: 44. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1563 í B-deild Alþingistíðinda. (1600)
31. mál, sala mjólkur og rjóma
Frsm. meiri hl. (Jónas Jónsson) [óyfirl.]:
Landbn. hefir borið fram brtt. við frv. á þskj. 537, og eru þær frá mjólkursölun., og allar nema ein þeirra frá mjólkursölun. óskiptri. Þessar till. eru eingöngu bornar fram vegna reynslu þeirrar, sem n. er nú þegar búin að fá af framkvæmd l., og skýra þær sig í raun og veru sjálfur. — 1. brtt. er aðeins orðabreyt. 2. brtt. er fram komin vegna þess, að samkv. skýrslum, sem n. hafa borizt, er meðalársnyt kúa í Rvík 3300 lítrar. N. taldi því réttara að leggja þá tölu til grundvallar, sem nú er gert í brtt., eða 3000 lítrar. — Þá er 5. gr. l. gerð skýrari en hún er nú. Það þykir nokkur hætta á því, að menn, sem búa í kaupstöðum og kauptúnum, gætu átt kýr í byggðunum í kring að yfirvarpinu, ef slíkt er látið óumtalað. Rétt þykir, að n. hafi vald til þess að úrskurða, hvort hér sé um eiginlega eign að ræða eða ekki.
Ég vil þá snúa mér að b-lið brtt. við 5. gr., sem ekki er komin frá mjólkursölun., heldur hefir verið borin fram öðruvísi. Þar er gert ráð fyrir að gera breytingar á skipulagi þeirra n., sem fjalla um þessa hluti. Í bráðabirgðal. var byggt á því, að í Rvík yrðu tvær n. starfandi. Þar væri ein fimm manna n., sem hefði til meðferðar aðalframkvæmdirnar á skipulaginu. Hennar úrskurði mátti svo skjóta til aðaln., þegar undirn., eða undirdómstóllinn réttara sagt, gat ekki orðið sammála. En þegar til framkvæmdarinnar kom, þóttu ákvæðin um það, hvernig skipa skyldi þessa n., ekki nógu ljós. Hana átti að skipa af viðkomandi mjólkurbúum, en svo var líka minnzt á félög framleiðenda í því sambandi, og það atriði þótti óglöggt. Það er til einn slíkur félagsskapur í Rvík og nágrenni, en sýnil. var, að fleiri félög gátu komið til greina á því svæði. Af þessu gat risið hinn mesti glundroði, en komið er í veg fyrir það með brtt. Aðalgallinn á þessu skipulagi frá byrjun var sá, að það var of þunglamalegt fyrirkomulag að hafa þessar tvær n., þetta kom í ljós með því, hvað afgreiðslan varð óhæg þegar fjöldi ágreiningsmála lá fyrir undirn., og við langan frest eða drátt á afgreiðslu margra þeirra varð alls ekki unað. Því gerum við ráð fyrir í brtt., að stjórn þessara mála í Reykjavík og Hafnarfirði skuli vera í höndum mjólkursölun. sjálfrar í vetur, meðan skipulagið er að komast yfir byrjunarörðugleikana. Ennfremur er gert ráð fyrir því, að náist samkomulag milli mjólkurbúanna og félaga framleiðenda á þessu svæði, geti þessir aðilar yfirtekið sitt fyrra starf, ef samþykki landbúnaðarráðh. kemur til. Þetta fyrirkomulag hefir tvímælalausa yfirburði yfir það, sem nú gildir í þessum efnum. Málið má ekki hindrast á byrjunarstigi vegna eilífra málskota frá einni n. til annarar. — Um síðustu brtt., við 14. gr., er að vísu ekki fullt samkomulag í landbn., en það mun koma fram við meðferð málsins, í hverju sá ágreiningur liggur.