09.10.1934
Efri deild: 6. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1186 í B-deild Alþingistíðinda. (1608)
15. mál, gjaldeyrisverslun o.fl.
Magnús Jónsson:
Ég veit, að það er uppgerð hjá hæstv. ráðh., að hann þykist ekki skilja þetta með Spánarundanþáguna. Það er alveg satt, að Spánverjar gera ekki frekari kröfu en að við aukum viðskiptin við þá. En þegar þetta eru einu dyrnar, þá má ganga út frá því sem vísu, að það ganga allir í gegnum þær dyr. Þegar kaupmenn vita, að gjaldeyrisnefndin hefir ekki leyfi til að banna innflutning frá Spáni, þá kaupa þeir allir þaðan. Ég sé því ekki betur en að höftin séu alveg gagnslaus í raun og veru, þegar ekki má hefta innflutning frá einu ríki.