17.11.1934
Efri deild: 41. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1195 í B-deild Alþingistíðinda. (1618)
15. mál, gjaldeyrisverslun o.fl.
Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):
Það er nú deilt um það hér, hvort gjaldeyrisráðstafanir einar skuli nægja eða hvort þeim ráðstöfunum sé nauðsynlegt að fylgi innflutningshöft. Ég verð nú að segja, að mér finnst hv. 1. þm. Reykv. halda uppi andófi í þessu máli, eins og öðrum, meira af vilja en mætti, og finnst mér einkennileg sú stefnu- og viðhorfsbreyt. hjá Sjálfstfl. til þessara innflutningsmála frá því, sem var fyrir nokkru síðan. Ég vænti þess, að hv. dm. hafi tekið eftir því að það, sem hv. 1. þm. Reykv. færði því til sönnunar, að gjaldeyrishömlur einar geti nægt, er það, að þær séu í raun og veru innflutningshöft. Nú er svo komið hjá honum, sem lengst barðist gegn innflutningshöftunum, að aðalkosturinn á frv. eins og það yrði, ef hann fengi sínum brtt. framgengt, er sá, að það verkar eins og innflutningshöft. Þetta er ekki rétt að öllu leyti, og kom það raunar fram í ræðu hv. þm., og er því nauðsynlegt að gera sér grein fyrir því, hver munur er á að hafa gjaldeyrishöft ein og gjaldeyrishöft og innflutningshöft jafnhliða. Ég held, að munurinn sé greinilegast skerður þannig, að ef innflutningshöft eru jafnhliða gjaldeyrishöftum, þarf ekki aðeins að sækja um leyfi til þess að geta innt af hendi greiðslu varningsins, heldur líka um leyfi til þess að flytja hann inn. Það er þessi munur að hafa innflutningshöftin með, að það þarf líka leyfi til þess að stofna til skuldbindingar í öðrum löndum. Mér er óhætt að fullyrða það, að þeir, sem mest hafa farið með þessi mál undanfarið, eru sammála stj. um það, að nauðsynlegt sé að sækja um innflutningsleyfi fyrir vöru, til þess að hægt sé að hafa eftirlit með því, að ekki sé óeðlilega miklar skuldbindingar stofnaðar erlendis, því að það er nú einu sinni reynslan, að ef slíkar skuldbindingar eru stofnaðar, er gengið á eftir því með svo miklu kappi að fá vörurnar greiddar, að lítt eða ekkert stenzt, svo þó gjaldeyrisskortur sé, leiða slíkar skuldbindingar alltaf til meiri gjaldeyrisútláta heldur en verður, ef sótt er um leyfi, þegar stofnað er til þeirra. Og mér er óhætt að fullyrði, að fulltrúi verzlunarstéttarinnar í gjaldeyrisnefndinni er þeirrar skoðunar, að til þess að þetta geti farið reglulega vel, þurfi líka að vera innflutningshömlur, en gjaldeyrisleyfið eitt dugi ekki, því það er oft sótt eftir á, þegar búið er að stofna til skuldbindingarinnar, og getur það stofnað áliti og lánstrausti verzlunarstéttarinnar í voða, ef ekki er við þær staðið. Það er þessi munur á því að hafa gjaldeyrishömlur einar og gjaldeyrishömlur og innflutningshömlur jafnframt, að það er haft eftirlit með því, hversu miklar skuldbindingar eru gerðar af hálfu íslenzkra kaupmanna í öðrum löndum, og reynzlan hefir sýnt, að þetta eftirlit er nauðsynlegt. Hv. 1. þm. Reykv. sagði, að engum dytti í hug að stofna til slíkra skuldbindinga án þess að tryggja sér gjaldeyri, en það er reynsla fyrir því, að margir láta sér detta þetta í hug, og einmitt það, að þessar skuldbindingar hafa verið stofnaðar, hefir orðið til þess, að látið hefir verið meira út af gjaldeyri heldur en gert hefði verið, ef hægt hefði verið að taka afstöðu til innflutnings hlutaðeigandi vöru um leið og hún var pöntuð. Þó þetta sé stórt atriði, að hafa innflutningshömlur með, til þess að hægt sé að hafa eftirlit með stofnun skuldbindinga, þá er það aðallega stórt atriði út á við; inn á við er það ekki eins stórt atriði, því þó innflutningshömlur séu ásamt gjaldeyrishömlum, þá er svipuðum reglum fylgt um úthlutun gjaldeyrisleyfa. Það er bara útilokað, að menn geti stofnað til skuldbindinga erlendis og flutt inn vörur án þess að n. geti haft nokkuð að segja um það fyrr en til greiðslunnar kemur.
Um það, að innanlandsráðstafanir þurfi að gera til að hjálpa til þess, að hægt sé að halda uppi greiðslujöfnuði við útlönd, höfum við hv. 1. þm. Reykv. rætt áður, við 2. umr. þessa máls. Ég tók þá skýrt fram, að stefna stj., eins og sést á fjárl., er sú, að auka kaupgetu almennings, en jafnframt er stj. ljóst, að ef slíkt á ekki að draga til vandræða, verður að hafa sterkar gjaldeyris- og innflutningshömlur, til þess að hæfilegum hluta af hinni auknu kaupgetu verði beint á innanlandsmarkaðinn, og einmitt með því að hafa þessar ráðstafanir sterkar hyggst stj. að geta sinnt þessu hlutverki sínu, að auka kaupgetu meðal almennings.