17.11.1934
Efri deild: 41. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1200 í B-deild Alþingistíðinda. (1621)

15. mál, gjaldeyrisverslun o.fl.

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Ég þarf að svara hv. 1. þm. Reykv. nokkrum orðum, og þá aðallega viðvíkjandi því, hver mismunurinn sé á gjaldeyrishömlum eingöngu og svo aftur á móti gjaldeyrishömlum og innflutningshöftum jafnframt. Þessi hv. þm. vildi segja, að aðalmismunurinn á þessu - auk þess, sem sá munur verður auðvitað, að ef innflutningshöft eru, þá þarf að leita samninga um skuldbindingar erlendis - væri sá, að ef gjaldeyrishömlur væru einar út af fyrir sig, þá yrðu miklu frjálsari viðskipti og menn væru ekki eins bundnir við að sækja um smályfi. Þetta, sem hann heldur þarna fram, stenzt ekki, ef gjaldeyrishömlur eru framkvæmdar á þann eina hátt, sem réttlátt er, þ. e. a. s. þannig, að gjaldeyririnn sé fyrst látinn ganga til þess að greiða nauðsynlega vöru, og síðan sé afgangurinn látinn ganga til ónauðsynlegra vörukaupa. Þetta er sú eina framkvæmd á gjaldeyrisskömmtun, sem vit er í frá almennu sjónarmiði. Enda mun það vera svo, þegar gjaldeyrisskömmtun er framkvæmd og reynt er að haga henni þannig, að þá verkar hún að þessu leyti eins og innflutningshöft. Ef gjaldeyrisskömmtun er þess vegna framkvæmd á þennan hátt, eins og sjálfsagt er, þá er eini mismunurinn á gjaldeyrishömlum einum og svo aftur gjaldeyrishömlum og innflutningshöftum líka, að þá er ekki hægt að stofna skuldbindingar erlendis án leyfis, og þess vegna er hægt að hafa fastari tök á málinu en ella.

Hv. þm. sagði, að undanfarið hefðu innflutningshöftin ekki bjargað neitt í þessum efnum. Ég vænti, að hv. þm. sé það kunnugt, að núv. fyrirmæli hvað þetta snertir eru aðallega byggð á gjaldeyrisskömmtun, og að síðustu árin hafa innflutningshöft ekki verið framkvæmd nema að sumu leyti, að þau eru ekki á margskonar varningi, og það er einmitt þetta, að áliti þeirra, sem mest hafa um þessi mál fjallað, sem hefir orðið til þess, að framkvæmdir í þessu efni hafa að nokkru leyti farið í ólestri.

Hv. þm. var að tala um það, hvort innflutningshöft væru nauðsynleg út af fyrir sig, og las í því sambandi nokkurn hluta bréfsins frá bankaráði Landsbankans. Hann las þetta bréf eins og sagt er, að viss aðili fari að því að lesa biblíuna, því að hann las aðeins lítinn hluta af bréfinu, og þá aðeins þann hluta þess, sem kom sér bezt fyrir hans flokk. Hann las þetta: „Bankastjórnin er samþykk þeim aðaltilgangi frv. til laga um gjaldeyrisverzlun o. fl., sem nú liggur fyrir Alþingi“. Hann hefði átt að lesa lengra, því að svo stendur hér: „að enginn megi verzla með erlendan gjaldeyri nema Landsbanki Íslands og Útvegsbanki Íslands h/f, og að engar vörur megi flytja til landsins, nema með leyfi gjaldeyris- og innflutningsnefndar, og engum erl. gjaldeyri ráðstafa, nema með leyfi nefndarinnar og bankanna“. Það er skýrt ákvæði um það, að áliti bankaráðsins, að samhliða innflutningshömlum eigi að hafa gjaldeyrisskömmtun. Þeir segja skýrum stöfum, að enga vöru megi flytja til landsins nema með leyfi nefndarinnar. Þeir samþ. það sem aðalstefnu. Það er ekkert annað, sem frv. ákveður, en að það sé heimilt, að skilyrði fyrir innflutningi vara séu leyfð. Þeir eru vitanlega samþykkir því, að um þetta séu l., því að þeir eru sammála stj. um það, að nauðsynlegt sé að nota þetta með tilliti til núv. ástands.

Hv. m. sagði, að það væri ómögulegt að sameina það, að auka kaupgetuna innanlands, eða gera hana almennari en ella væri, og jafnhliða að halda sæmilegum greiðslujöfnuði við útlönd, miðað við núv. ástand. Ég verð að segja það, að þessi skoðun hv. þm. hlýtur að byggjast á því, að ekki sé hægt með gjaldeyrishömlum og innflutningshöftum að koma í veg fyrir að keyptar séu vörur frá útlöndum. Ég verð að segja, að ég hefi mikla trú á því, að með vel framkvæmdum gjaldeyrisskömmtunum og innflutningshöftum sé einmitt hægt að ráða alveg við það, hversu mikið er keypt af vöru frá útlöndum, og ef hægt er að ráða við það, þá þarf maður ekkert að vera hræddur við að dreifa kaupgetunni innanlands sem bezt milli þegnanna. Og þá á nefndin að beina alveg ákveðnum hluta hennar á erlendan markað, en ég tel, að það geri viðskiptalífið innanlands öruggara. (MG: Hvað tekur langan tíma að lagfæra þetta allt?) Ég geri ráð fyrir, að þessi hv. þm. hafi séð það, ef hann hefir skilið nokkurn hlut í þessu, að í fjárl. frv. stj. er lögð áherzla á að reyna að auka verklegar framkvæmdir, með það fyrir augum að auka kaupgetuna í landinu. Jafnframt þessu verður að skapa stj. grundvöll til þess að takmarka vörukaup frá útlöndum, einmitt með það fyrir augum, að hin aukna kaupgeta, sem kann að koma fyrir atbeina stj. í þessum efnum, beinist ekki óeðlilega mikið til þess að kaupa útlendan varning. En frá sjónarmiði þeirra, sem hafa enga trú á því, að hægt sé að hafa hömlur á innflutningi vara, verður eina ráðið að reyna að draga úr kaupgetu í landinu eins og hægt er, en ég verð að segja, að það sé hreinasta neyðarúræði og hrein og bein sveltipólitík.