21.11.1934
Efri deild: 44. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1574 í B-deild Alþingistíðinda. (1643)

31. mál, sala mjólkur og rjóma

Frsm. meiri hl. (Jónas Jónsson) [óyfirl.]:

Það er rétt hjá hv. 1. þm. Skagf., að í 1. málsgr. 3. brtt. er villa, „málsl.“ fyrir „málsgr.“, og mun n. sjá um leiðréttingu á því.

Þá vil ég svara því nokkuð, sem sagt hefir verið um brtt. við 5. gr., þ. e. a. s. efnishlið hennar. Ef borin er saman byrjun gr. í frv. og í brtt. á þskj. 553, sést, að mjólkurnefnd, sem samið hefir þessa brtt., hefir ekki talið byrjunina nógu nákvæma í frv. Eftir frv. gæti litið svo út, sem vald mjólkurskipulagsins næði út til byggðanna, og því er tiltekið í upphafi 3. brtt. á þskj. 553, að þetta valdi nái fyrst og fremst til kaupstaðanna. En í viðbæti við þetta er síðan seinna í brtt. talað um, að vissar sveitir, hlutar úr sveitum eða kauptún geti verið tekin undir sölu og dreifingarrétt mjólkurbúa og sölumiðstöðvar, ef mjólkursölunefnd þykir ástæða til.

Þessi viðbætir er settur með tilliti til kauptúna eins og Akraness og Keflavíkur, svo að ég taki einhver dæmi, sem að vísu hafa enn sem komið er engin mjólkurbú og falla því ekki undir skipulagið, en gætu vel gert það síðar, þegar skilyrði væru fyrir hendi. En sérstaklega er þetta ákvæði þýðingarmikið til þess að hindra það, að upp rísi nýjar stöðvar kringum Rvík, sem keppi við hina viðurkenndu stöð þar á óleyfilegan hátt.

Till. meiri hl. landbn. um stjórn samsölunnar er samþ. af 5 mönnum af 7 í mjólkurnefnd. Af þeim tveimur, sem ekki greiddu atkv. með brtt., sat annar hjá, þar sem hann þóttist ekki geta greitt atkv. vegna umbjóðenda sinna, en einn, formaður Mjólkurfélagsins í Reykjavík, greiddi atkv. á móti. Annars var mjólkurnefnd sammála um allar brtt., nema máske þá að verðjöfnunargjald í Rvík miðaðist við 3000 lítra á kú í stað 2500. Þau atriði, t. d. refsiákvæðið, sem hv. 4. landsk. hefir gert að umtalsefni hér, skipta í sjálfu sér litlu máli.