21.11.1934
Efri deild: 44. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1581 í B-deild Alþingistíðinda. (1648)
31. mál, sala mjólkur og rjóma
Forseti (EÁrna):
Mér hafa borizt tvær skrifl. brtt. við brtt. á þskj. 553. Sú fyrri er frá hv. 1. þm. N.-M. og hljóðar svo: [Sjá þskj. 561,l]. Síðari till. er frá hv. 1. þm. Skagf., svo hljóðandi: [Sjá þskj. 561,II].
Þar sem brtt. þessar eru of seint fram bornar og auk þess skrifl., verður að veita tvenn afbrigði frá þingsköpum, til þess að þær geti komið til umr. og atkvgr. á þessum fundi.