21.11.1934
Efri deild: 44. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1582 í B-deild Alþingistíðinda. (1652)
31. mál, sala mjólkur og rjóma
Páll Hermannsson:
Ég þarf ekki að ræða neitt um skrifl. brtt., sem ég hefi borið fram, hún er aðeins leiðrétting, og ég veit, að allir skilja hana. En mér þykir rétt að minnast á það, sem hér hefir komið í ljós, að n. hefir ekki farizt eins höndulega eins og búast mátti við afgreiðsla þessu máls. Ég játa þetta, en hinsvegar eru nokkrar ástæður fyrir hendi til réttlætingar á þessu. Ég vil í fyrsta lagi benda á, að þetta nýmæli er erfitt í vöfum og auk þess viðkvæmt hagsmunamál. Í öðru lagi má benda á það, að vinna að þessu máli hefir verið unnin af fleirum aðilum en venja er um þingmál. Náttúrlega hefir ákveðin n. í d. haft málið til meðferðar, en það er líka ákveðin n. úti í bæ, sem hefir fjallað um það. Og í þriðja lagi hefir að undanförnu af ýmsum ástæðum gengið hálfilla að hafa skipulagða vinnu í landbn. Það hafa legið til þess eðlilegar ástæður, sumir þm. hafa verið veikir, aðrir haft sérstökum önnum að sinna, eins og t. d. hv. 4. landsk. núna þessa dagana. Af þessum ástæðum hefir n. ekki náð að taka málið svo föstum tökum sem hún hefði þurft. En ég vona, að þetta lagist og málið fái góða endalykt.
Ég ætlaði mér að útskýra fyrir d. þennan „óskiljanlega“ lið í brtt. n., þar sem 5. gr. frv. er orðuð um, en af því ég held, að menn séu nú farnir að skilja hana, ætla ég ekki að blanda mér inn í það.
Umr. eru nú orðnar svo langar, að ég vil ekki bæta verulega við þær. Aðeins vil ég geta þess, að frá mínu sjónarmiði er þetta frv. sérstaklega til þess að sporna við því, að mjólk, sem seld er hér í Rvík., falli óheyrilega í verði, og það jafnvel án þess að það verðfall komi neytendum mjólkurinnar hér verulega til tekna. Ég hefi ekki beinlínis skilið þetta frv. þannig, að það hefði nákvæmlega sama tilgang og frv. um kjötsöluna; það frv. skildist mér hafa þann tilgang að hefja verð vörunnar, sem þar um ræddi sem var fallin niður fyrir það, sem mögulega gaf átt sér stað til lengdar. Ég veit að vísu, að það mun vera nokkuð lágt verð á mjólkinni hjá sumum, sem selja mjólk sína hingað til Rvíkur. Ég hefi heyrt sagt, að það hafi jafnvel fallið niður í 13 aura í vasa framleiðandans. Þetta verð tel ég of lágt. En þó verð ég að álíta, að jafnvel þetta verð mjólkurinnar gefi þeim, sem hana framleiða, betri búskaparaðstöðu heldur en sauðfjárræktin. En aftur á móti heyri ég sagt, að í sumum mjólkurbúum hafi fengizt upp í 25 aur., og þegar það verð fæst árið um kring, þá er það langsamlega miklu glæsilegri útkoma en nokkursstaðar er hægt að fá af öðrum greinum landbúnaðarins. Mér skilst líka, að þetta frv. eigi að stuðla að því, að ekki verði haldið við þeim ósið og því ólagi, að mjólk, sem framleidd er í nágrenni Rvíkur, verði notuð til vinnslu, en svo flutt hingað til neyzlu mjólk t. d. austan úr Árnessýslu og norðan úr Borgarfirði, sem hefir viðgengizt hér að undanförnu.
Ég vil vona, og ég álít, að það verði að veru svo, að afleiðingarnar af þessu frv. verði þær, að mjólkurframleiðendur fái gott og sanngjarnt verð fyrir sína mjólk, en að hún geti samt lækkuð í verði hjá neytendum hér í Rvík. Ég álít, að þegar svo er komið, að framleiðendur fá ekki nema 13—15 aur. í sinn vasa, en neytendur í Rvík verða að gefa 40—42 aur., þá sé sannarlega ástæða til að taka þetta mál til athugunar, því þessi mismunur er svo óeðlilegur, að ekki getur gengið.