24.11.1934
Neðri deild: 45. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1585 í B-deild Alþingistíðinda. (1659)

31. mál, sala mjólkur og rjóma

Forsrh. (Hermann Jónasson):

Ég skil, við hvað hv. þm. á með þessari spurningu. Það er sjálfsagt viðvíkjandi því, hvað verðjöfnunarsvæðisskiptingin kann að snerta Borgarfjörð eða mjólkurbúið í Borgarnesi. Ég get upplýst það, að um þetta hefir ekki verið tekin sérstök ákvörðun í Ed., vegna þess, að búið var að ganga þannig frá því, að mjólkurbúið verður á því svæði, sem hv. þm. óskar eftir. Ég veit að vísu ekki, hvort enn er búið að ganga frá þessu með formlegri samþ. í n., en mér er um það kunnugt, að ef það er ekki enn búið að taka formlega ákvörðun um þetta, þá verður það gert nú næstu daga, áður en málið fer út úr þessari hv. d. Um þetta hefir verið mikið rætt undanfarna daga, að gefnu tilefni frá hv. þm. Mýr., og þess vegna hefir því verið hraðað í n. og þessi ákvörðun nú tekin, þótt e. t. v. sé það enn ekki formlega ákvarðað.