13.12.1934
Neðri deild: 58. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1626 í B-deild Alþingistíðinda. (1682)

31. mál, sala mjólkur og rjóma

Forsrh. (Hermann Jónasson) [óyfirl.]:

Ég skal reyna að svara þessari ræðu hv. þm. G.-K. með fáum orðum. Hv. þm. var nokkuð taugaóstyrkur og óstilltur í byrjun ræðu sinnar, en svo endaði hann með ákaflega hrífandi ræðu, svo að þetta fór þess vegna allt sæmilega. En upphafið var ekki að öðru leyti í samræmi við endirinn, því að hann bar mér það á brýn, og þeim öðrum, sem eiga að sjá um framkv. l., að þeir mættu vita það, að þeir fengju eyra fyrir ýmsum ósanngjörnum kröfum hjá þeim ráðh., sem með l. ætti að fara, og þess vegna væri ekki við góðu að búast við framkvæmd þeirra. En svo endaði hann ræðu sína með því að segja, að allt mundi þetta fara vel úr hendi og mennirnir mundu reynast starfi sínu vaxnir, m. ö. o., hann endaði ræðu sína með því að mótmæla mestöllu, sem hann hélt fram í upphafi hennar.

Ég skal þá drepa á þau sárfáu atriði, sem hv. þm. G.-K. minntist á í sinni ræðu. Í fyrsta lagi, þegar ég í sambandi við þá 2 þús. lítra, sem ég tel, að ekki eigi að undanþiggja verðjöfnunargjaldi, hvorki hér í Rvík né í öðrum kaupstöðum, hafði þau ummæli upp eftir hv. þm. Ak., að kýrnyt væri lægri þar en hér í Rvík, þá dró hv. þm. G.-K. þá broslegu ályktun út frá því, að ég væri að fara með svívirðingar um íslenzka bændur. Annars hélt ég satt að segja, að þessi hv. þm. vissi það, að kýrnyt er yfirleitt talsvert hærri í kaupstöðum en í sveitum, vegna þess að í kaupstöðum er gefinn fóðurbætir með heyjunum, svo að þær mjólki betur, en bændur uppi til sveita gefa kúm sínum yfirleitt eingöngu hey. Hinsvegar var það rétt ályktun út frá þeim ummælum, sem hv. þm. Ak. hafði hér, að mjólkurframleiðendur á Akureyri færu annaðhvort verr með sínar kýr en mjólkurframleiðendur hér í Rvík, eða þá að þeir væru meiri búskussar en bændur hér. En því hefir ekki verið mótmælt og það er aðalatriðið í þessu sambandi, að kýrnyt hér sé meiri en 3 þús. lítrar á ári, og því hefir heldur ekki verið mótmælt, að þetta ákvæði er sett inn í frv. samkv. beiðni þess manns, sem á sérstaklega að sjá um þessa hlið málsins. Og þar með eru fengnar fullar sannanir fyrir því, að það er ekkert ranglæti í því að nema burt þessa 2 þús. lítra, einkanlega þegar á það hefir verið bent, sem ég hefi bent á í minni síðustu ræðu, að menn geti alltaf gengið í Mjólkursamlagið og fengið mjólk sína án þess að borga verðjöfnunargjald.

Þá minntist hv. þm. G.-K. á það, að það hefði verið óþarfi fyrir mig að láta þau orð falla, að ekki hefði verið sem bezt samkomulag í Mjólkursambandinu, sem svo er kallað. Hann sagði, að Mjólkursambandið hefði starfað með góðum árangri og sæmilegri samheldni. En ég vil bara benda á þær staðreyndir, að það eru allir hv. þm. sammála um það, að nauðsynlegt sé að setja þessi l., og hv. þm. G.-K. hefir einnig haldið því fram í sinni ræðu. Þrátt fyrir þau samtök, sem hér hafa verið á þessu sviði, eru hér í Rvík 105 mjólkurbúðir, en um það eru allir sammála, að slíkt sé algerlega óviðunandi. Þetta er nú hinn prýðilegi árangur Mjólkurbandalags Suðurlands. Þar að auki veit maður það vel, að þar hefir komizt inn eðlileg samkeppni á milli bænda austanfjalls og vestanfjalls, um að koma mjólkinni á Rvíkurmarkaðinn, þeir hafa keppt um það og yfirboðið hver annan til þess að ná í mjólkurbúðirnar, til þess að geta selt mjólk sína hér í Rvík, og það með þeim árangri, að hér munu vera um 80 löggiltar mjólkurbúðir, en eru taldar vera 105 af mjólkursölun., með öllum þeim geipilega kostnaði, sem þetta veldur.

Þá minntist þessi hv. þm. á það, að með þessum l. eins og frá þeim mundi verða gengið, þá liti út fyrir, að það ætti að níðast á einum, öðrum til hagsbóta, og átti hann þá sérstaklega við það, að það yrði gengið á rétt þeirra, sem búa vestanfjalls, eða m. ö. o. í Reykjavík og Mosfellssveit, og til hagsmuna fyrir þá, sem austanfjalls búa. Þessu vil ég fyrst og fremst svara því, að hvað Rvík snertir, þá er gengið lengra í tilhliðrunarsemi við mjólkurframleiðendur í henni í þessu frv. heldur en í því frv., sem þessi hv. þm. flutti hér sjálfur. Samkv. þessu frv. er þeim heimilað að selja mjólk sína, þá, sem framleidd er á grasi, í gegnum mjólkurmiðstöð án þess að greiða af henni nokkurt verðjöfnunargjald. Það er þess vegna boðið upp á tvær leiðir í þessu frv., sem ekki var boðið upp á í frv. þessa hv. þm. Hver einasti maður, sem framleiðir mjólk hér í lögsagnarumdæmi Rvíkur og á grasi, getur þess vegna notað sér sölusamtökin án þess að greiða verðjöfnunargjald, og jafnframt getur hann verið fyrir utan sölusamtökin, eins og frv. nú er úr garði gert. Það er ómögulegt að segja, að það sé gengið á rétt Reykvíkinga í þessu máli, heldur er búið að ganga svo langt í tilhliðrunarsemi við Rvík og til samkomulags við þá, að það hefir hvergi annarsstaðar, þar sem þannig lög hafa verið sett um þetta efni, verið gengið jafnlangt fyrir framleiðendur, sem búa í nágrenni bæja, eins og hefir verið gert í þessum lögum. Og það er alveg áreiðanlegt, að hvernig sem þessi l. yrðu og hvernig sem frá þeim væri gengið, þá verður aldrei fullkomin ánægja með þau, þannig, að einstakir menn þykist ekki eiga að fá meira en þeir í raun og veru eiga að fá. Þannig hefir það gengið erlendis, þar sem 1. svipuð þessum hafa verið sett. Þar koma sífellt kröfur frá þeim, sem búa í nágrenni bæjanna, um að fá meiri undanþágur, vegna þess að þeir geti setið að markaðinum. En reynslan sýnir, að þeir geta það ekki, vegna þess að mjólkin streymir til bæjanna úr fjarlægari héruðum. Nei, Reykvíkingar verða sannarlega ekki útundan í þessari lagasetningu. — Þá talaði hv. þm. um afstöðu Mosfellinga til l., og er það auðskilið, þar sem þar er um að ræða mikið hagsmunamál fyrir hann sjálfan. Ég get ekki séð, að Mosfellingar þurfi að kveinka sér undan því að greiða 3 au. á lítra í verðjöfnunarsjóð. Þeir selja mjólkina á 40 aur., kostnaður við dreifingu og gerilsneyðingu fer aldrei fram úr 9 aur. á lítrann, og fá þeir þá 28 aur. af hverjum lítra, sem þeir selja, en hafa að þessu ekki fengið nema 20 —24 au. Einmitt fyrir þá, sem í nágrenninu búa, verður hagnaðurinn mestur, og vafalaust meiri en bændanna austanfjalls, sem þurfa að vinna ódýrari vöru úr sinni mjólk. — Ég skal líka geta þess, að þegar gjaldið var sett án hámarks, kom öll stjórn Mjólkurfél. Rvíkur til mín, einir fjórtán menn, og fóru fram á, að sett yrði hámark á verðjöfnunargjaldið, þetta hámark, sem hv. þm. nú vill vera laus við. En þessir menn frá Mjólkurfél. Rvíkur lögðu áherzlu á það, að hámark yrði sett, og fóru fram á, að það yrði 7%. Ég sagði þeim þá, að ég gæti ekki lofað því, að hámarkið yrði sett 7%, en ég skyldi sjá til, hvort 8% gæti ekki gengið. Milli till. minnar og þeirra er því aðeins 1% munur. Ég vil líka benda á það, að n. hafði öll komið sér saman um 7% hámark, en það var miðað við núv. ástand, en bersýnilegt er, að nauðsyn ber til að hafa verðjöfnunargjaldið hærra, þegar búið í Borgarnesi kemur inn á verðjöfnunarsvæðið og framleiðslan á því verður meiri en nauðsynlegt er. Af þessu vænti ég, að það sé augljóst, að þetta hámark er sett í samræmi við kröfur þeirra, sem lengst ganga, nefnilega þeirra, sem búa í nágrenni Rvíkur. Aðfinnslur hv. þm. G.-K. voru því langt frá á nógu sterkum rökum byggðar. Í sambandi við setningu þessarar löggjafar verður að hafa vakandi auga á því, að þeir framleiðendur, sem með henni er haldið úti af markaðinum, verði ekki svo illa settir, að þeir neiti að sætta sig við fyrirkomulagið. Og þá er aðalatriðið að hafa svo sanngjarnt verðjöfnunargjald, að hægt sé að halda fullri sanngirni í verðlaginn bæði austanfjalls og vestan. Og ég fullyrði, að til þess að ná slíku marki, má ekki ákveða hámark verðjöfnunargjaldsins lægra en 8%. Og það er aðeins einni prósentu hærra en uppástunga framleiðenda hér í nágrenninu. Þetta kann að koma harðar niður á þeim einstöku mönnum, sem hefðu getað selt mjólk sína á annan hátt en í gegnum sölusamlagið. En til þess má ekki taka tillit. Lögin verða að ganga jafnt yfir alla, hvort sem það eru stór bú eða smábændur.

Og þau eru sett með fyllstu sanngirni til allra aðila fyrir augum.