13.12.1934
Neðri deild: 58. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1631 í B-deild Alþingistíðinda. (1684)
31. mál, sala mjólkur og rjóma
Jón Pálmason:
Hæstv. forseti má ekki taka það illa upp, þó að ég geti ekki lofað að verða mjög stuttorður. Það er ekki óeðlilegt, að mörg verði ágreiningsatriðin í jafn stóru máli og þessu og mörg sjónarmiðin. það sýnir sig líka, að við hv. þm. Ak., sem flytjum brtt. á þskj. 768, stöndum mitt á milli tveggja skauta, ef svo mætti segja, eftir sjónarmiði hv. 5. þm. Reykv. að dæma. Ég mun þó sleppa honum, en víkja að hæstv. forsrh., sem gerir till. um að fella niður þessa 2000 lítra undanþágu í kaupstöðum. Mér finnst þetta mjög ósanngjarnt af honum, þar sem öll landbn. er sammála um þetta atriði. Hann segir, að meðalársnyt úr kú hér í Rvík sé 3300 lítrar. Mér þykir nú nokkuð hátt farið, að miða verðjöfnunargjaldið við það eingöngu. En segjum, að þetta sé rétt. Vil ég nú biðja hæstv. ráðh., sem væntanlega vill sýna einum sömu sanngirni og öðrum, að athuga, hver útkoman yrði. Hér í Rvík eru 33 menn, sem eiga eina kú hver. Þeir fá þá til heimila sinna 300 lítra hver af skattfrjálsri mjólk. Nú er 6 menn, sem eiga 10 kýr hver. Í hlut hvers þeirra koma þá 3000 lítrar af skattfrjálsri mjólk. Einn maður á 38 kýr. Hann fær 11400 lítra skattfrjálsa. Þetta sýnist nú reka sig dálítið á. Eftir till. landbn. eru undanþegnir 2000 lítrar, og með því er öllum gert jafnhátt undir höfði. Mér þætti mjög undarlegt, ef hv. deild féllist á að samþ. þessa till. hæstv. ráðh. Hann heldur því fram, að auðvelt sé að fara á svig við lögin í þessu atriði, en ég held, að það yrði mjög auðvelt að hindra slíkt, þó að undantekningar kynnu að eiga sér stað. Hæstv. ráðh. hélt því fram, að þýðingarlaust væri að tala um samkomulag milli þessara mjólkurbúa; það hefði sýnt sig, að um lítið samkomulag hefði verið að ræða, og því hefði verið gripið til þess ráðs að setja þau undir mjólkursölunefnd. Ég vil grípa í sama streng og hv. 2. þm. N.-M. gerði hér í kvöld. Aðstaða þeirra félaga, sem hér eiga hlut að máli, gerbreytist, svo að þótt ekki hafi verið um samkomulag að ræða áður, þá er undarlegt, ef þau geta ekki komið sér saman á þessum grundvelli. Það getur verið vafasamt, hve rétt er að ganga langt inn á þá braut að beita þvingunarráðstöfunum. Ég held, að bezt fari á því, að þessi samvinnufélög hafi sem frjálsastar hendur. Hér er um þeirra eigin hagsmuni að ræða, og er undarlegt, ef þau geta ekki komið sér saman.
Viðvíkjandi útreikningum mínum um verðjöfnunargjaldið fer því fjarri, að ég hafi aðeins miðað við neyzlumjólk austanbúanna á Rvíkurmarkaðinum. Þau senda aðeins um 800 þús. lítra, en ég miðaði við 1700 þús. lítra hjá báðum. Ég tel, að hlutaðeigendur gætu vel við unað, þó að verðjöfnunargjaldið væri ekki nema 6%, og viðvíkjandi því, sem hæstv. ráðh. sagði, að mjólkurnefndin í Rvík hefði óskað, að það væri 7%, skal ég segja það, að ég get sannað, að hann fór þar með rangt mál, því að hún lagði til, að það yrði 6%, eins og við hv. þm. Ak. leggjum til í brtt. okkar, en hvorki 7% né 8%. Auðvitað má um það deila, hvað hæfilegt sé í þessu efni, en mér virðist 72 kr. gjald á kú það hár skattur, að varhugavert sé að samþ. hærra hámark.
Þá er eitt atriði, sem talsverður ágreiningur er um milli mín og hæstv. ráðh., en það er sú till. okkar, að bændum skuli frjálst að flytja mjólk sína til hvaða hús sem þeir óska á sama verðjöfnunarsvæði. Hann sagði, að þetta væri sagt út í bláinn og af þekkingarleysi. Hann hefði mátt hafa um þetta vægari orð, því að þó að ég hafi ekki lögfræðiþekkingu á við hann, sýnist mér ljóst, að hér megi gera mönnum allþröngt fyrir dyrum. Hann sagði, að ekki væri grundvöllur fyrir þessu í lögunum, en í 5. gr. stendur, með leyfi hæstv. forseta: „Ef mjólkursölunefnd þykir ástæða til, getur hún, að fengnu leyfi landbúnaðarráðherra, ákveðið, að vissar sveitir, hluti úr sveitum eða kauptún skuli tekin undir sölu- og dreifingarrétt mjólkurbúa eða sölumiðstöðva þeirra með þessar afurðir“. — Á þessu ákvæði er hægt að byggja það, að taka hvaða sveit sem er undir sölu- og dreifingarrétt ákveðins mjólkurbús. Mér finnst rangt að amast t. d. við því, að menn austan úr sveitum geti selt rjóma til Mjólkurfél. Rvíkur. Það geta verið þeir staðhættir, að þeir hafi litla möguleika til þess að skipta við næsta bú, og er þá rétt að tryggja það, að þeir geti selt hvaða búi, sem þeir óska. Þessari till. hefir verið mótmælt af því að hún væri óþörf. En þó að þetta ákvæði kynni að vera óþarft, sýnist útlátalaust að lofa því að standa í frv., ef það er ekki skaðlegt. Hæstv. ráðh. sló því fram, að ég hefði verið að tala um stéttabaráttu, en því fór fjarri. Ég talaði um hugsanlega árekstra milli einstakra svæða, ef ekki væri gætt fulls samræmis. Um verðjöfnunargjaldið getum við ekki orðið sammála, og verða atkvæðin að skera þar úr. Ég vil láta stilla því svo í hóf, að tryggt sé, að þessir menn geti stundað atvinnu sína áfram. Hæstv. ráðh. gekk út frá því, að ef þeir gæfust upp, mundi reksturinn leggjast niður. En svo mundi ekki verða, heldur mundi bæjarfélagið verða að kaupa eignirnar og halda rekstrinum áfram, og það er ekkert smáræði, sem hér er um að ræða, því að samkv. upplýsingum frá Búnaðarfél. Ísl. standa hér 600 —700 þús. kr. í fjósum, haughúsum og hlöðum og um 1200 þús. í ræktuðu landi, sem mun vera um 600 hekt. Þar við bætast svo íbúðarhús og girðingar. Allt þetta yrði bæjarfélagið að kaupa, ef þessir menn færu á höfuðið, en það mundu þeir gera, ef frv. yrði samþ. eins og það kom inn í þessa hv. deild. Það ætti að vera hverjum manni augljóst, að til þess að l. komi að tilætluðum notum og komizt verði hjá árekstrum, sem vandræði mundu hljótast af, verður öllu að vera í hóf stillt, og að því stefna till. okkar hv. þm. Ak. Með þeim er dregið úr þeim takmörkunum á frelsi manna og félaga, sem ráðgerðar eru í frv. eins og það liggur nú fyrir. Landbn. er líka öll sammála um að greiða talsvert úr þeim annmörkum, sem á frv. eru. Ég skal ekki segja, hvaða afstöðu ég kann að taka, ef allar brtt. okkar verða felldar. Ég skal geta þess, að norsku lögin um sölu mjólkur og rjóma, sem ég hefi hér í þýðingu, eru aðeins heimildarlög, og neysluskatturinn er ætlaður til þess að bæta upp þeim, sem mestu verða að kosta til flutnings vegna fjarlægðar. Af svæðum þeim, sem selja mjólk til Oslo, koma um 300 millj. lítra af mjólk, og þessi samtök ganga svo vel í höndum samvinnufélagsskaparins, að sölukostnaðurinn er ekki nema 1/11 úr eyri á hvern lítra mjólkur. Ég býst við, að ef eins vel gengi hér, gætu allir verið ánægðir. En hvað sem líður öllum ágreiningi og pólitískum flokkum, hygg ég, að það stefndi helzt til bóta á þessu sviði, að samvinnufélagsskapurinn fengi tök á að koma þessu máli í gott horf án allrar þvingunar.