13.12.1934
Neðri deild: 58. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1646 í B-deild Alþingistíðinda. (1696)
31. mál, sala mjólkur og rjóma
Forsrh. (Hermann Jónasson) [óyfirl.]:
Ég gleymdi að minnast á það út af þeim orðum, sem hv. þm. A.-Húnv. lét falla, að það er ekki rétt hjá honum, að það sé til neinn grundvöllur fyrir reglugerð, sem færi í þá átt, að framleiðendur megi ekki flytja í hvaða bú, sem þeir vilja. Þetta ákvæði, sem hann benti á, er í 15. gr. og um allt annað, sem ég vona, að hann sjái við nánari athugun. Það er eingöngu um það, að taka megi inn á verðjöfnunarsvæðið kauptún, sem ekki hafa verið þar áður. Eins var það, sem hann minntist á þennan rjóma að austan, að það var ekki rétt, sem hann sagði. — Jafnframt get ég upplýst það, að það eru samningar milli búanna austanfjalls og Mjólkurfél. Rvíkur, að taka ekki við framleiðslu frá viðskiptamönnum hvors annars. Hv. þm. verður því að viðurkenna, að hann hafi hér ekki farið með rétt mál, eins og hann hlýtur að sjá við nánari athugun.
Þá vil ég aðeins víkja orðum til hv. þm. Snæf. Hann sagði, að mjólkurl. hefðu verið brotin með því að lækka mjólkurverðið. Þessu vil ég ekki láta ómótmælt. Hann sannaði það líka sjálfur með þeirri gr., sem hann las upp, að þetta var ekki rétt. Gr. hljóðar þannig, með leyfi hæstv. forseta:
„Útsöluverð skal á hverjum tíma reiknað út, eftir því sem við verður komið, eftir vísitölum. Nánari ákvæði um þetta skulu sett í reglugerð“.
Nú er ekki búið að ákveða vísitöluna, og þess vegna varð því ekki við komið að reikna verðið út eftir henni. Annars liggur fyrir hæstaréttardómur um það, að framkvæmdin hafi verið lögleg, og því er fjarstæða, að halda því fram, að l. hafi verið brotin.
Viðvíkjandi vöruvönduninni er það að segja, að n. hefir ekki ákveðið enn, hvaða fyrirkomulag verður tekið upp í því efni.
Fyrirspurn hv. 5. þm. Reykv. vil ég svara á þá leið, að ég fékk upplýsingar frá þeim aðilum, sem mest hafa haft með þetta að gera, en að öðru leyti er ég ekki reiðubúinn að gefa frekari upplýsingar nú. — Fleira þarf ég svo ekki að taka fram að þessu sinni.