18.12.1934
Neðri deild: 63. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1650 í B-deild Alþingistíðinda. (1710)
31. mál, sala mjólkur og rjóma
Jón Pálmason:
Eins og hv. þdm. muna, tókum við hv. þm. Ak. brtt. okkar við þetta frv. aftur við 2. umr., af því að þm. vantaði í d. við atkvgr. N. hefir í ýmsum atriðum gengið inn á brtt. okkar síðan, t. d. um skiptingu 5. gr. Brtt. okkar voru allmjög ræddar þá, og sé ég því ekki ástæðu til að fara langt út í þær nú.
1. brtt. okkar á þskj. 871 er á þá leið, að hámark verðjöfnunargjalds sé fært niður í 6% úr 8%.
Þá vil ég minnast á þá brtt., að á sama hátt og fulltrúi bæjarstj. Rvíkur á að víkja fyrir fulltrúa hlutaðeigandi bæjarstjórnar eða hreppsnefndar, þegar nefndin hefir til meðferðar málefni annara verðjöfnunarsvæða, svo víki og þeir fulltrúar mjólkurframleiðenda, sem sæti eiga í n., fyrir fulltrúum mjólkurframleiðenda á því verðjöfnunarsvæði, sem um er að ræða. Nú hefir hv. 2. þm. Reykv. komið fram með till. þess efnis, að bæjarstj. Rvíkur kjósi tvo fulltrúa í n., sem þýðir það, að minni hl. bæjarstj. fær fulltrúa í n. í stað þess fulltrúa, sem landbrh. átti að skipa, við hv. þm. Ak. leggjum aftur á móti til, að fulltrúi komi í nefndina tilnefndur af mjólkurframleiðendum þar sem aðalsala mjólkur fer fram. Við teljum ekkert um það að segja, ef fulltrúi kemur í n. af hálfu mjólkurframleiðenda, frá hvaða flokki hann er og hverrar skoðunar hann er á pólitíska sviðinu, því að það tel ég að komi málinu ekkert við, heldur tel ég, að ekki sé ósanngjarnt, að sá hópur framleiðenda eigi sæti í n.
Það var allmikið deiluatriði hér við 2. umr. þessa máls, að það skyldi gerð undanþága fyrir mjólkurframleiðendur innan kaupstaða frá því að borga verðjöfnunargjald af þeirri mjólk, sem þeir nota til heimilisþarfa. Þá var samþ. till. þess efnis frá hæstv. forsrh., að þetta skyldi fellt niður. Í öðru lagi var samþ. við 2. umr., að bein sala skyldi eiga sér stað frá framleiðendum innan sölustaðar, því að það var ætlun n., að með þessum hætti væri a. m. k. þeim, sem eiga 1 eða 2 kýr, gefinn kostur á því að hafa rýmri hendur um sölu mjólkurinnar heldur en frv. upphaflegu gerði ráð fyrir. En með því að fella niður undanþáguna með þessa 2 þús. lítra, er heimildin um frjálsa sölu gerð ónýt fyrir þá framleiðendur, sem minnsta mjólkina hafa, og þeir þar með neyddir til að ganga inn í mjólkursölusamlagið vegna þeirrar mjólkur, sem þeir hafa afgangs sínum heimilisþörfum. Þess vegna flytjum við á þskj. 871 brtt. þess efnis, að sett sé inn í frv., að 1800 lítrar skuli undanþegnir verðjöfnunargjaldi, af því að það beri að skoða sem mjólk til heimilisnota. Um þetta er náttúrlega ágreiningur, og það verður vitanlega að skeika að sköpuðu, hvernig atkv. falla um það.
Að öðru leyti eru þær till., sem hér liggja fyrir, þær sömu og ræddar voru við 2. umr. málsins hér í hv. d., og sé ég því ekki að sinni ástæðu til að fara nánar út í þær við þessa umr. En grundvöllurinn fyrir öllum þessum till. er að tryggja, að mjólkurframleiðendur sjálfir hafi sem mest vald yfir þessum málum — að ekki sé dregið undan mjólkursölun. og undir hið opinbera meira vald heldur en við teljum brýna þörf á.
Áður en einhver andmæli koma á ný gegn því, sem ég nú hefi drepið á, sé ég ekki ástæðu til að fara um þessar till. fleiri orðum.