18.12.1934
Neðri deild: 63. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1655 í B-deild Alþingistíðinda. (1713)

31. mál, sala mjólkur og rjóma

Forsrh. (Hermann Jónasson) [óyfirl.]:

Það er aðeins til þess að gera grein fyrir skoðun minni á þeim brtt., er hér liggja fyrir, að ég tek til máls, en ég mun ekki svara þeim almennu ummælum, sem fram hafa komið, að þessu sinni.

Ég vildi þá fyrst mega benda á, að till. þær, sem hér liggja fyrir frá hv. þm. A.-Húnv. og hv. þm. Ak., hafa legið hér fyrir áður, og um þær get ég verið stuttorður fyrir þá sök, að ég hefi áður eytt nokkrum tíma í að sýna fram á, að ég álíti, að þær eigi ekki rétt á sér.

Ég hefi áður talað um verðjöfnunargjaldið, hvað það ætti að vera hátt, og ég sé ekki ástæðu til þess að endurtaka þær umr. Sama gildir um það, að ég álít, að eigi geti komið til mála að undanþiggja frá verðjöfnunargjaldi 1800 lítra hjá hverjum mjólkurframleiðanda. Það hefir sýnt sig nú, að þegar búið var að fá þessa undanþágu í gegn hér í hv. d., að mjög mikil óánægja kom fram hjá mjólkurframleiðendum í nágrenni Rvíkur. Það var haldinn stór fundur uppi í Mosfellssveit til þess að andmæla því, að slík undanþága skyldi nokkrum veitt, og nú síðustu daga hefir varla verið hægt að snúa sér við fyrir Reykvíkingum, sem ekki hafa viljað þessa undanþágu. En það eru aftur á móti ýmsir hér í Rvík, sem vilja hafa þessa undanþágu, en það ber miklu meira á óánægjunni yfir, að undanþága skuli veitt, og þess vegna finnst mér ekki koma til mála að ganga ennþá lengra. Sömuleiðis vildi ég benda á það, sem ýmsir hafa áður vakið athygli á, að verði þessi till. samþ., er tiltölulega auðvelt að komast í kringum lögin.

Hér kemur ennfremur fram till. frá þessum sömu hv. þm., sem er í samræmi við þá till., sem fyrir liggur frá öðrum hv. þm., hv. 2. þm. Reykv., á þskj. 870. viðvíkjandi því, að ríkissjóður eigi að greiða kostnaðinn við mjólkursölunefndina. Ég vil vekja athygli á því, að þessar till., sem í fljótu bragði sýnast réttlátar, eru alveg fjarri því að vera það á nokkurn hátt. Eins og nú er fyrir mælt í l., þá er svo ákveðið, með leyfi hæstv. forseta, í sambandi við síðustu málsgr. 6. gr.:

„Þóknun til mjólkursölunefndar skal að 3/7 hlutum greidd úr verðjöfnunarsjóði og að 4/7 hlutum úr ríkissjóði, og sé þóknunin ekki hærri en kr. 10.00 til hvers fundarmanns fyrir hvern fundardag. Annar óhjákvæmilegur kostnaður við störf nefndarinnar greiðist af sömu aðilum og í sömu hlutföllum.“

Það er enginn vafi, að hér er átt við það, — og ég get þá um leið svarað fyrirspurn hv. 2. þm. Reykv. —, að hér er átt við þann kostnað, sem leiðir af störfum n., og þess vegna er kveðið svona að orði í niðurlagi 6. gr. (HV: Er skrifstofukostnaður þar með?). Ég skal taka það fram, að skrifstofukostnaður er mjög lítill. Húsnæðið er aðeins ein stofa, sem n. hefir komið saman í að öllum störfum sínum í Rvík að þessu, en megnið af þessum störfum flyzt vitanlega yfir á mjólkursölun., sem nú tekur við. Þessi n. kemur aðeins saman til þess að stjórna þessum málum, og því er það, að kostnaðurinn er ekki annar en leiga á þessu húsnæði, sem hún hefir yfir að ráða.

Ég vil vekja sérstaka athygli á því, að þetta ákvæði var þannig sett inn í 1., af því að það voru framleiðendur, sem gerðu kröfu til þess alveg réttilega , að ef í þessari n. væru menn bæði af hálfu bæjarstj. Rvíkur og ennfremur frá Alþýðusambandi Íslands, og svo einn skipaður af ráðh., sem er engu síður fulltrúi neytenda en framleiðenda, þá væri það réttlátt, að framleiðendur greiddu ekki þann kostnað, sem leiddi af því, að neytendur fengju fulltrúa í n. til þess að fylgjast þar með. Það er ekki rétt, að framleiðendur séu látnir greiða þann kostnað, sem leiðir af því, að fulltrúar neytenda fái að fylgjast þar með. Þess vegna var svo ákveðið, a. m. k. á meðan þetta er á reynslustigi og meðan neytendur gera kröfu til að hafa umboðsmenn í n., að framleiðendur greiddu ekki kostnaðinn, sem af því leiddi, því að það væri alveg rangt að láta þá gera það. Þess vegna var þessum kostnaði þannig skipt. En sýni það sig, að þetta reynist mjög svo illa, þá má taka það til athugunar á næsta þingi.

Þá er hér í öðru lagi brtt. frá sama hv. þm., hv. 2. þm. Reykv., sem fer í þá átt, að í staðinn fyrir „eina kú“ komi „3000 lítra“, sem þá miðar að því að binda undanþáguna fyrir Rvík eingöngu við ársnyt, og að það kæmi þá þannig út, að t. d. sá maður, sem hefir 10 kýr, fái undanþágu frá verðjöfnunargjaldi, ekki fyrir 10 kýr, heldur fyrir 10X3000 lítra, eða 30000 lítra. Þetta finnst mér heldur til hins lakara, því að ef einhver fer vel með sínar kýr, svo að hann fær ársnyt t. d. 3500 lítra, sem vel getur komið fyrir og hefir oft komið fyrir — ef hann fer vel með kýrnar og hefir mikla grasnyt —, þá leiðir það til þess, að hann þarf að borga verðjöfnunargjald af talsvert miklu af sinni framleiðslu, og það gjald kemur á hann sem refsiskattur fyrir það, að hann fer vel með sínar kýr. Þetta eggjar því framleiðendurna í nágrenni Rvíkur á það, að láta ársnytina ekki komast fram úr 3000 lítrum, því að þá fá þeir á sig refsiskatt fyrir að hafa farið vel með kýrnar. Þess vegna finnst mér, að hver framleiðandi í nágrenni Rvíkur eigi að fá undanþáguna eftir kúatölu, en ekki að fara einmitt að skattleggja þá, sem bezt stunda sína framleiðslu, því að ef það væri gert, þá færi það svo, að t. d. maður, sem hefði 10 kýr og ársnyt væri 3000 lítrar, slyppi við að borga neitt, og svo væri annar, sem færi sérstaklega vel með kýrnar, svo að ársnyt væri t. d. 3300 lítrar, hann yrði að borga verðjöfnunarskatt.

Þá er hér brtt. um að breyta skipun n. Þessari brtt. er ég algerlega mótfallinn. N. hefir verið skipuð til l. maí næstk., svo að þessu verður ekki breytt, a. m. k. ekki þangað til. Í öðru lagi er það, að það er réttast að láta þá menn framkvæma þessi mál, sem eru búnir að undirbúa þau störf, sem nú liggja fyrir, og eru því þessum málum kunnugastir. Ég er því þessari brtt. algerlega mótfallinn, og ég vildi helzt óska þess , að aðeins brtt. landbn. yrðu samþ., en hinar allar teknar aftur. Það finnst mér réttast, úr því sem komið er, en koma þá heldur á einhverjum smábreyt., þegar þessi l. verða endurskoðuð. En þær brtt., sem landbn. hefir flutt, get ég vel fallizt á, m. a. af því, að þar eru engar efnisbreyt., nema að í staðinn fyrir það, að nú er í frv. leyfi fyrir menn í nágrenni Rvíkur að selja beint, þá leggur n. til, að mjólkursölun. geti leyft mönnum að selja beint.

Ef farið er að samþ. brtt. við þetta frv., m. a. þær brtt., sem eru á þskj. 870 og 881, þá má vel búast við því, að þá verði frv. aftur breytt í Ed., og þá verður það ef til vill að koma til kasta Sþ. að skera úr þessu máli. En það var aldrei ætlun mín að ganga frá þessu máli þannig, að ég geti unað við hverskonar breyt., sem koma af tilviljun á síðustu stundu. Ég hefi alltaf reynt að halda málinu í því formi, sem ég hefi haldið, að væri heppilegast að leysa það í, ef það á að komazt að gagni. Ef nú á að samþ. breyt. á síðustu stundu, þá getur það vel orðið til þess, að það tefji afgreiðslu málsins, og eru þar að auki breyt., sem vel mega bíða þangað til síðar, því að vitanlega verða þessi l. endurskoðuð eftir 1 —2 ár.

Ég vil svo endurtaka þau tilmæli, að samþ. verði till. frá landbn., en vil helzt mælast til, að hinar verði teknar aftur.