18.12.1934
Neðri deild: 63. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1662 í B-deild Alþingistíðinda. (1732)
31. mál, sala mjólkur og rjóma
Pétur Halldórsson [óyfirl.]:
Að fengnum þessum upplýsingum hv. þm. Mýr. vildi ég gjarnan fá að heyra, hvort líkur eru til þess, að mjólkursölunefnd geti jafnað á milli þessara aðilja með því verðjöfnunargjaldi, sem nú er ákveðið í frv. Mér skildist á hv. þm. Mýr., að menn myndu ekki verða ánægðir fyrr en allir hefðu fengið nokkurnveginn jafnt verð. (BÁ: Það sagði ég aldrei). Ekki með berum orðum, en hann sagði, að hækka yrði verðjöfnunargjaldið þangað til þeir, sem fjær búa Rvík, yrðu ánægðir, og ég held líka, að ekki verði komizt hjá því. Ég býst ekki við því, að þeir, sem fjær búa, verði fyllilega ánægðir fyrr en þeir fá h. u. b. sama verð fyrir sína mjólk og hinir, en til þess verður auðvitað að hækka verðjöfnunargjaldið. Mér virðist líka, að þetta sé sú hugmynd, sem er á bak við lögin, þótt þetta sé ekki tekið fram berum orðum. Annars býst ég við, að þessi löggjöf verði tekin til endurskoðunar þegar á næsta þingi, því að ég er ekki eins bjartsýnn og forsrh., að búast við því, að þessi lög geti staðið óbreytt í 2 —3 ár.
Ég hefði þurft að beina nokkrum orðum til hæstv. forsrh. og þykir miður að sjá hann ekki hér í d. Ég veit hann hefir um margt að hugsa þessa síðustu daga þingsins, en ég get ekki fallizt á, að það, sem ég gerði fyrirspurn til hans um, hafi verið lítið atriði, sem ekki komi þessu máli við. Ég spurði hæstv. forsrh. að því við 2. umr. þessa máls 1) með hvaða heimild einum aðila hefði verið gefinn einkaréttur á því að flytja inn erlendar mjólkurafurðir, 2) hver hafi fengið þennan einkarétt, 3) hve mikið hafi verið flutt inn, og 4) hvort þessi heimild gildi enn og eigi að haldast framvegis.
Hæstv. forsrh. kveðst nú hafa gleymt því að afla sér upplýsingu um innflutning, en telur, að hann muni hafa verið um 100 kvartil þetta ár. Þetta nemur þó alltaf 10 þús. pundum. Nú mun mega fá smjör erlendis fyrir 1/3, þess verðs, sem það er selt fyrir hér. Gróði á þessum innflutningi hefir því orðið 15 —20 þús. kr. Ég tel víst, að markaður sé fyrir talsvert af erlendu smjöri hér og megi því græða allmikið fé á því að hafa einkaheimild til slíks innflutnings. Ef mjólkurbúin austanfjalls fá leyfi til þess að flytja inn smjör og selja það Reykvíkingum fyrir þrefalt verð, þá vaknar sú spurning. hvort ekki væri réttmætt, að einhver fríðindi kæmu á móti til framleiðenda í Reykjavík. Þetta er því stórt mál, sem ég tel, að hæstv. ráðh. hafi vanrækt að gefa um sjálfsagðar upplýsingar.