18.10.1934
Efri deild: 14. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1214 í B-deild Alþingistíðinda. (1755)

14. mál, tolllög

Frsm. minni hl. (Magnús Jónsson) [óyfirl.]:

Ég hefi hér í nál. á þskj. 104 gert grein fyrir þeim ástæðum, hvers vegna ég samþ. ekki brtt. meiri hl. n. Ég minntist á það í sambandi við það mál, sem var hér á undan, og ég þarf því ekki að endurtaka það, að það kemur hér skýrt fram, að við sjálfstæðismenn viljum afgr. tekjuhallalaus fjárlög, þvert ofan í það, sem hæstv. fjmrh. hélt fram um okkur í Nd. í gær. Við viljum stuðla að því, að fjárl. verði afgr. tekjuhallalaus ef fallizt verður á þær leiðir, sem við bendum á, en ég er hræddur um, að þessar tollahækkanir komi ekki að liði. Það er ekki nóg að einblína á hækkun tolla. Við sjáum t. d. tóbakið, sem er í einkasölu og ríkið ræður því sjálft álagningu, það hefir hækkað aftur og aftur, og ég er hræddur um, að við séum komnir að því marki, að tekjurnar hætti að aukast, þó tollurinn sé hækkaður. Það er nefnil. örugg reynsla fyrir því, að þegar tollurinn hefir náð ákveðnu marki, hættir neyzla vörunnar að aukast, og þar af leiðandi vaxa ekki tolltekjurnar, heldur dragast saman vegna minnkandi neyzlu. Við getum sagt, að það sé ekki skaðlegt hvað snertir tóbakið, þó notkun þess minnki, en það er annað atriði, sem í þessu sambandi er athugavert, og er bæði skaðlegra og hættulegra, að það er mjög hætt við því, að meiri áherzla verði lögð á að smygla inn tóbaki en verið hefir. Er það hættulegt að því leyti, að þá fara peningar úr landinu til óheppilegra innkaupa og óhagstæðari, og í öðru lagi missir ríkissjóður þær tolltekjur, sem hann hefir haft. Ég er því hræddur um, að þó menn vildu hækka tekjur ríkisins með þessari álagningu, þá mundi það ekki takast, heldur þvert á móti. - Ég skal svo ekki fjölyrða um þetta frekar, en láta atkvgr. skera úr.