18.10.1934
Efri deild: 14. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1215 í B-deild Alþingistíðinda. (1756)
14. mál, tolllög
Fjmrh. (Eysteinn Jónsson) [yfirl.]:
Það er alveg rétt frá skýrt hjá hv. 1. þm. Reykv., að Sjálfstfl. hefir í hyggju, að því er séð verður, að standa móti tekjuöflunarfrv. þeim, sem fram kunna að vera borin, en þó hann hafi það bak við eyrað, er engin ástæða til að ræða það almennt nú við umr. um þetta mál. En ég tel rétt að taka það fram, að það þarf 2 millj. kr. tekjuauka, ef þingið fellst á að samþ. þær lækkanir á tollum og útflutningsgjöldum, sem fjárl. gera ráð fyrir. Ég hefi heyrt það í hv. Nd., að Sjálfstfl. muni vera með því að lækka síldartollinn, en hér í d. mun hann vera á móti lækkun á kaffitollinum. Þegar dregin er frá þessi eina lækkun, sem Sjálfstfl. er meðmæltur, vantar 1,8 millj. kr.
Ég vil segja, að það sé æskilegt að fá að heyra, hvað Sjálfstfl. hefir bak við eyrað að flytja sem till. um tekjuhækkanir, eða hvað það er, sem hann hyggst að gera sínar till. um til lækkunar. Það er kannske til mikils mælzt, að hann geri grein fyrir því við þessa umr., þar sem fjvn. hefir ekki starfað lengi ennþá, en e. t. v. getur maður fengið að vita, hvaða aðalstefnu flokkurinn hyggst að taka. Það er ekki létt verk að lækka útgjöldin um 1,8 millj. kr., og er því æskilegt, að þeir, sem hafa í hyggju að gera það, fari að undirbúa sig með sínar till. (MG: Veit ráðh., nema farið sé til þess?). Nei, en ég nefndi þetta að gefnu tilefni, því ég hefi orðið var við í Nd., að flokksmenn þessa hv. þm. hafa fylgt þar ýmsum málum, sem skapa hækkun á útgjöldum ríkissjóðs, svo það getur vel orðið meira en 1,8 millj. kr., sem skera þarf niður. Ég get ekki hugsað mér, hversvegna Sjálfstfl. getur ekki stutt hækkun á tóbakstolli, er þeim er svo kunnugt um örðugleika ríkisins sem þeim hlýtur að vera.
Hvað því viðvíkur, að tollar á tóbaki séu orðnir svo háir, að hækkunin muni ekki gefa auknar tekjur, get ég haft það eftir mönnum, sem eru kunnugir þessu máli, - t. d. hefi ég borið mig saman við forstöðumann verzlunarinnar - og hann telur enga eða litla hættu á, að svo verði, enda er ráð fyrir því gert í fjárlfrv., að svo kynni að verða að einhverju leyti. Ég skal svo ekki fjölyrða frekar um þetta mál, aðeins óska ég þess, að hv. d. sjái sér fært að samþ. þennan tekjuauka, sem frv. felur í sér.