18.10.1934
Efri deild: 14. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1219 í B-deild Alþingistíðinda. (1760)

14. mál, tolllög

1760Pétur Magnússon:

Mér kemur ekki til hugar að kasta steini að hæstv. fjmrh., þó að hann sé nú ekki tilbúinn að svara því, hve mikinn tekjuauka hann mundi vilja áætla af þeirri breyt., sem nú á að gera á áfengislögunum. Hinsvegar finnst mér hann óþarflega svartsýnn, et hann ætlar að gefast upp við að gera nokkra tilraun til þess. Það eru þó til atriði, sem má hafa nokkra leiðbeiningu af, t. d. hvað salan var mikil áður en bannið kom upphaflega og hvað áfengisinnflutningur er mikill hjá þjóðum, sem ætla má, að neyti álíka mikils áfengis og við Íslendingar. Á ég þar fyrst og fremst við Norðmenn.

Það er alveg rétt, að það er ekki hægt að vita nú, hve mikil álagningin verður á sterka drykki, en ekki sýnist það fjarri lagi, að stj. hefði sett þar eitthvert hámark og lágmark, og ef tekið hefði verið meðaltalið af því, þá hefði það varla orðið mjög fjarri lagi. En hvað sem þessu líður, þá sýnist mér það ekki geta orkað tvímælis, að ef þessi lagabreyt. verður samþ., þá muni þar af leiða tekjuaukningu fyrir ríkissjóð, og hana ríflega. Það þýðir hvort sem er ekki að draga dul á það, að meginhluti þess áfengis, sem neytt er í landinu, er ólöglega fengið, og er það mest búið til í landinu sjálfu. Má þar benda á það, að nýlega voru í einum smábæ hér á landi gerðar upptækar 11 bruggverksmiðjur. Og þegar þannig gengur í einum smábæ, þá má gera sér í hugarlund, hvernig það muni vera þar, sem neytendahópurinn er stærri. Ég býst ekki við, að þótt bannið yrði afnumið, yrði allt það áfengi, sem neytt yrði, löglega fengið, en það mundi þó verða svo um langmestan hlutann. Þarf þar ekki frekar vitnanna við til að ganga úr skugga um, að af þessu leiðir mikinn tekjuauka fyrir ríkissjóð.

Mér þykir leitt, að hæstv. ráðh. getur ekki verið við þessar umr., því að ég vildi beina því til hans, að það er ekki ástæða fyrir stj. til að leggja mikið kapp á að koma nýjum tekjuöflunarfrv. í gegn nú í þingbyrjun. meðan óséð er um það, hverja afgreiðslu fjárlagafrv. hlýtur og hvers tekjuauka má vænta af þessu frv. og öðrum, sem hér hafa verið nefnd og liggja nú fyrir, önnur en þau beinu skattaaukafrv. Þá verður fyrst séð, hvers skattauka þarf með, þegar þetta frv. og önnur slík hafa verið afgr.