18.10.1934
Efri deild: 14. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1220 í B-deild Alþingistíðinda. (1762)
14. mál, tolllög
Sigurjón Á. Ólafsson:
Ég tek nú til máls fyrst og fremst til að svara orðum, sem féllu hjá hv. 2. þm. Rang. Mér þótti þessi hv. þm. gera sér nokkuð bjartar vonir um tekjuauka í sambandi við áfengislagafrv. það, sem nú hefir verið lagt fyrir hv. Nd. Ég get tekið undir þau orð hv. 1. þm. Reykv., að í raun og veru er réttast að bíða með að tala um það mál, þangað til það kemur hér til umr. En fyrst nú er farið að minnast á þetta mál, vil ég segja örfá orð um það.
Hv. 2. þm. Rang. reiknar með því sem sjálfsögðu, að þetta frv. muni ná fram að ganga. En ég vil nú fyrst og fremst benda honum á, að hæstv. stj. mun ekki standa óskipt að þessu frv. Í öðru lagi vil ég benda honum á það viðvíkjandi þingmeirihlutanum, að það er alveg órannsakað mál, hvort nægilega margir þm. muni ljá frv. fylgi. Nú eiga hér sæti fjölda margir þm., sem voru ekki á síðasta þingi, og svo má minna á það, að frv. er nokkuð seint fram komið, og það þarf áreiðanlega langan tíma til að koma því í gegnum báðar d., því að það get ég fullvissað alla um, að orðalaust gengur slíkt „princip“-mál ekki gegnum þingið. því að við, sem erum andvígir því, látum það ekki ná samþykki hljóðalaust. (PM: Styðjið innlendan iðnað!).
Af þessum ástæðum álít ég mjög óráðlegt að gera ráð fyrir tekjuauka í sambandi við þetta frv., þar sem það er allsendis óvíst, að það nái fram að ganga á þessu þingi. En ef hv. þm. heldur, að landsmenn þyrsti nú svo mjög eftir sterkum drykkjum, þá má gera ráð fyrir, að þegar farið yrði að selja þá, mundi það draga úr neyzlu þeirra léttari vína, sem ríkið verzlar með nú, svo að tekjur ríkisins af þeirri verzlun minnkuðu.
Ég álít, að þó að það sé þungur kross að skattleggja ýmsar neyzluvörur, þá verði þó að gera þar greinarmun á því, hvort varan telst nauðsynleg eða ekki. Hér er nú um þær vörur að ræða, sem geta ekki beinlínis talizt nauðsynlegar sumar hverjar, og sumar má framleiða í landinn sjálfu. Verði nú þessi tollur hækkaður, þá verkar hann sem verndartollur fyrir þann innlenda iðnað. Afstaða mín er því sú, að ég mun að sjálfsögðu vera með þessu frv. fremur en að reikna með tekjum af þeim frv., sem er alveg óvíst, hvort verða samþ., og óvíst, hvort gæfu tekjur, þó að þau næðu fram að ganga.