11.10.1934
Neðri deild: 7. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1229 í B-deild Alþingistíðinda. (1795)

5. mál, útflutningsgjald

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Í málefnasamningi þeim, sem lagður var til grundvallar núv. stj., var gert ráð fyrir því að lækka útflutningsgjald af síld og afnema útflutningsgjald af landbúnaðarafurðum. Ennfremur, að endurgreiddur yrði sá mismunur á útflutningsgjaldi síldar, eins og það verður samkv. þessum 1., og því, sem greitt hefir verið í ár., og skyldi það renna til sjómanna. Frv. um endurgreiðsluna verður flutt af sjútvn., væntanlega henni allri, en a. m. k. af meiri hl. hennar. Stj. hafði þetta frv. ekki til, þegar stjfrv. voru send konungi til undirskriftar, og því verður það flutt af n. að fyrirmælum stj. - Hér í þessu frv. er farið fram á, að útflutningsgjald af síld verði það sama og af öðrum fiski, og að útflutningsgjald af landbúnaðarafurðum falli niður. Ég skal ekki fjölyrða um ástæður stjórnarflokkanna til þess að taka þessi mál upp. Útflutningsgjald af síld hefir verið óeðlilega hátt, ef miðað er við erfiðleika útvegsins undanfarin ár, og því óeðlilegt að íþyngja honum með því að hafa hærra útflutningsgjald af síld en öðrum fiski. Æskilegt hefði verið að lækka einnig útflutningsgjald af öðrum síldarafurðum, en stj. treysti sér ekki til þess að stíga skrefið lengra en hér hefir verið gert.

Hvað landbúnaðarafurðirnar snertir, telur stj. það ósæmilegt að vera að íþyngja landbúnaðinum með útflutningsgjaldi, eins örðug og afkoma hans nú er, enda lendir þetta útflutningsgjald á þeim, sem lægst verð fá fyrir vöru sína. Tekjurýrnun ríkissjóðs vegna þessara ráðstafana, lækkun síldartollsins og afnáms útflutningsgjalds landbúnaðarafurða, verður ekki nema 200 þús. kr., og vænti ég þess, að frv. verði mætt með vinsemd hv. dm. Ég óska svo, að máli þessu verði vísað til hv. fjhn.